29.10.1934
Neðri deild: 22. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
5. mál, útflutningsgjald
Frsm. minni hl. (Ólafur Thors) [óyfirl.]:
Öll fjhn. hefir orðið sammála um, að rétt sé að fylgja lækkun á útflutningsgjaldi af síld til samræmis við útflutningsgjald af annari framleiðslu landsmanna. Um það sé ég því ekki ástæðu til að ræða.
Í frv. er svo stungið upp á að afnema útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum. Í tilefni af þessu hefir minni hl. fjhn. þótt rétt að vekja athygli á því, að ef búið er að lækka útflutningsgjaldið af síld, þá er útflutningsgjaldið af allri vöru landsmanna nema einni teg., komið niður í 1½% af andvirði vörunnar á skipsfjöl í íslenzkri höfn, og þessi eina vöruteg. er síldarmjölið.
2. gr. frv. fjallar um vörur, sem erlendir menn hafa sótzt eftir að kaupa hér í samkeppni við innlendan iðnrekstur á þessu sviði, þá menn, sem kaupa bein til fiskmjölsframleiðslu og síld til þess að vinna úr henni síldarmjöl og olíu.
Nú þykir minni hl. fjhn. rétt, að menn geri sér grein fyrir, hvort ástæða sé til, eftir að búið er að færa niður útflutningsgjaldið af allri annari framleiðsluvöru landsmanna ofan í 1½%, að þá sé síldarmjölið eitt skilið eftir. Okkur í minni hl. fjhn. virðist, að engin rök geti verið fyrir því, hvorki smá né stór, að rétt sé að leggja 6-7% útflutningsgjald á síldarmjölið, þegar útflutningsgjald á öðrum vörum er 1½%. Minni hl. n. álítur þess vegna, að ef það á annað borð þykir tiltækilegt að svipta ríkissjóð tekjum af þessu gjaldi yfirleitt, þá sé það rétt, að samræma fyrst útflutningsgjaldið af síldarmjöli öðru útflutningsgjaldi, og þegar búið sé að samræma þetta, þá komi til athugunar, hvort hæstv. Alþ. vill afnema öll útflutningsgjöld. Skoðun minni hl. n. er sú, að æskilegt sé að gera það. Ef það er vilji hæstv. Alþ. að gera það smátt og smátt eða í einu stökki, þá er minni hl. n. alveg ásáttur um það, að byrjað sé með því að afnema útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum. En ef tilgangurinn er ekki sá, að afnema útflutningsgjaldið með öllu, þá telur minni hl. n. mjög varhugavert að afnema útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum með öllu, m. a. og sérstaklega af því, að það er alveg víst, að aðrir atvinnuvegir muni þá reisa kröfur um afnám útflutningsgjalds á sínum vörum, og slíkum kröfum verður ekki hægt að standa á móti, ef þetta afnám gjaldsins verður samþ. um landbúnaðarafurðir.
Minni hl. n. hefir gert grein fyrir því í nál. sínu, að bændum er þetta ekki kappsmál. Á Alþ. 1933 kom þetta mál til meðferðar í frv. En bændur risu þá upp og töldu þetta lítilsvirðingu fyrir bændur. Sveinn í Firði sagðist þá ekki vera svo lítilþægur sjálfs sín vegna og annara í bændastétt, að hann vildi þiggja þetta. Og ég hygg, að ekki hafi skapazt nein ný aðstaða í þessu máli síðan á Alþingi 1933. Á Alþingi 1933 var það fært fram sem rök fyrir því að afnema útflutningsgjald þetta, að bændur fengju svo misjafnt verð fyrir sína vöru, og að þeir fengju minna fyrir vöruna, sem seldu hana á erlendum markaði, og því væri rangt að leggja útflutningsgjald á þeirra vöru. En nú hefir verið stofnaður verðjöfnunarsjóður til að jafna það verð, sem bændur fá fyrir afurðir sínar á innlendum og erlendum markaði. Og stofnun þessa sjóðs dregur því úr þeirri þörf, sem var á því árið 1933, að fella niður þetta útflutningsgjald.
Ef þetta gjald verður fellt niður, þá leiðir það af sjálfu sér, að gjaldskylda ríkissjóðs til ræktunarsjóðs er burt fallin, og mun minni hl. n. því bera fram brtt. um það við 3. umr., ef útflutningsgjaldið verður afnumið. Þetta gjald, sem nemur 10-15 aur af hverjum lambskroppi munar ríkissjóðinn 60-70 þús. kr., en verði það afnumið, munar það ríkissjóðinn ósambærilega miklu meiru, óbeinlínis þó, því að af niðurfellingu þess hlýtur að leiða niðurfelling á öðrum útflutningsgjöldum að mestu eða öllu leyti.
Þá hefir minni hl. n. viljað vekja athygli á því, að með 5. gr. þessa frv. eru úr gildi felld 1. nr. 11 29. maí 1925, en með þeim l. var útflutningsgjaldið hækkað úr 1% og upp í ½%, eða um ½%, og þá jafnframt tilskilið, að til ársloka 1926 rynni hækkunin til Ræktunarsjóðs Íslands, en frá 1. jan. 1927 skyldi 3/4 hl. tekjuaukans, eða ¼ hl. alls útflutningsgjaldsins „varið til rekstrarkostnaðar við strandgæzluskip“, en ¼ hl. renna til ræktunarsjóðsins, „unz framlag til sjóðsins samkvæmt l. þessum hefir numið 1 millj. króna“, eins og stendur í 3. gr. nefndra l. Nú verða, ef frv. verður samþ., þessi l. þar með úr gildi numin. Hinsvegar eru fyrirmæli um framlag til ræktunarsjóðs tekin upp í 4. gr. frv.
Eins og minni hl. n. benti á í nál., skiptir þetta engu fyrir ræktunarsjóð, hvort hann fær þetta framlag áfram hjá ríkissjóði. Starfsemi ræktunarsjóðs byggist á því að vera milliliður á milli lánveitanda og lántakanda. Eigið fé hans er 2 millj. 929 þús. kr., auk varasjóðs, 215 þús. kr., og hefir sjóðurinn heimild til að gefa út jarðræktarbréf fyrir sexfaldri upphæð sjóðsins. Til þessa hefir hann þó ekki gefið út slík bréf fyrir meira en 2 millj. 866 þús. kr., en hann hefir heimild til að gefa út þessi bréf fyrir um 18 millj kr. Af þessu sjá allir, að það hnekkir ekkert starfsemi ræktunarsjóðs, þó að hann fái ekki meira tillag úr ríkissjóði. Enda fer brátt að líða að því, að gjaldskylda til hans úr ríkissjóði tæmist samkv. 1. frá 1925, því að þar stendur, að henni sé lokið, þegar framlög ríkissjóðs til hans samkv. þeim l. hafi numið 1 millj. kr. En nú mun sjóðurinn vera búinn að fá um 900 þús. kr. af þessum gjaldstofni. Ef þess vegna útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum verður fellt niður, þá hefir það ekki við nein rök að styðjast, að haldið sé áfram að greiða úr ríkissjóði til ræktunarsjóðs. Ríkissjóð skiptir þetta nokkru, en ræktunarsjóð skiptir það engu aðalmáli um áframhaldandi starfsemi.
Í frv. er gert ráð fyrir að fella niður skyldu ríkissjóðs til þess að verja ¼ hl. útflutningsgjaldsins í þágu strandgæzlunnar. Hv. þm. Ísf. sagði, að það skipti engu máli, þó að svo væri gert, vegna þess að ríkissjóði bæri hvort sem er skylda til að bera allan kostnað af strandgæzlunni. Þetta er rétt. En það má segja um margt, að ríkið eigi að standast kostnað af þessu og þessu, þó að í l. sé ákveðið, að sérstakir gjaldstofnar skuli renna til þess. Þann möguleika má hugsa sér, að stj. vilji ekki verja neinu fé til þess að halda uppi rekstri strandgæzluskipanna, ef þetta verður fellt niður. En ef þetta ákvæði er ekki fellt niður, heldur látið haldast í l., þá er það lögbundið, að þessu fé skuli verða varið til strandgæzlunnar. Það er rétt hjá hv. þm., að það eru líkindi til, að miklu meira fé verði en þessu varið til strandgæzlunnar árlega, en fyrir því er ekkert öryggi.
Það þykir mér undarlegt og óviðkunnanlegt, vegna þess hluta, sem sjávarútvegurinn hefir greitt af útflutningsgjaldinu í heild, að gerð séu 1. um að fella niður þau fríðindi, sem hann hefir haft um útflutningsgjaldið, jafnframt því að ákveða, að landbúnaðurinn skuli njóta slíkra fríðinda áfram, sérstaklega þegar þess er gætt, að farið er einnig fram á, að landbúnaðurinn hætti að greiða útflutningsgjaldið. En sjávarútvegurinn á auðvitað að halda áfram að greiða það sumkv. frv.
Minni hl. n. hefir séð ástæðu til að vekja athygli á því, hve frv. þetta, eins og raunar ýms önnur frv., er fjmrh. leggur fyrir Alþ., er illa undirbúið. Frv. hans eru ekki sæmileg í því tilliti. Sum þeirra vísa í vitlaus ártöl. Á öðrum stöðum er í þeim talað um breyt., þar sem um framlengingar er að ræða. Í þessu frv. hafði fallið niður að ákveða útflutningsgjald af afla, sem veiddur er fyrir utan landhelgi eða umskipað þar, sem féll niður fyrir handvömm. Þetta hefir verið í 1., og n. hefir nú leiðrétt það. Útflutningsgjaldið af fiskmjöli, sem hækkað var á Alþ. 1933, var með frv. tvöfaldað og meira en það, einnig fyrir handvömm og án þess að ráðh. hefði gert sér það ljóst. Þetta eru leiðinleg mistök, og það væri betra, að hæstv. ráðh. skilaði færri málum, en betur undirbúnum, því að svona undirbúningur þingmála tefur þingstörf mjög mikið.
Um brtt. hv. 6. landsk. á þskj. 89, um hækkun útflutningsgjalds af fiskúrgangi, hausum og beinum, þurrkuðum og óunnum, upp í 4 kr. af hverjum 100 kr., get ég ekki við þessa umr. látið í ljós mitt álit. Við munum ekki greiða atkv. um þetta við þessa umr. Ég hygg, að rétt væri að athuga þetta atriði vel. Það á áreiðanlega við ýms rök að styðjast. Þó að þess þurfi að gæta, að innlendar verksmiðjur fá ekki aðstöðu til að ákveða einar, hvaða verðlag útgerðarmenn fá fyrir hausana og beinin, þá er líka sjálfsagt, að útlendingar fái ekki að rýra möguleika innlenda iðnaðarins í þessu efni.
Áður en Íslendingar hófust handa um þennan atvinnurekstur, að vinna úr hausum og beinum, þá fengu Norðmenn þessi efni fyrir lágt verð og gátu féflett Íslendinga í því efni eftir eigin geðþótta. Þegar Íslendingar svo stofna verksmiðjur til að vinna úr þessum efnum, herða þeir róðurinn til þess að kyrkja þær, svo að þeir gætu náð aðstöðu til að hafa beinin eins og áður. Og nái þeir því takmarki sínu, þá munu þeir hafa það sér til framdráttar á kostnað ísl. framleiðenda. Hér ber því að athuga, hvað þarf að gefa verksmiðjunum mikil fríðindi, til þess að þær geti keppt við hinar norsku og staðizt í þeirri samkeppni.
Loks vil ég segja það fyrir mitt leyti og hv. 3. þm. Reykv., að við erum ekki búnir að athuga þetta atriði nóg til þess, að við treystum okkur til að gefa álit um það. En nauðsynlegt er að athuga þetta gaumgæfilega.