29.10.1934
Neðri deild: 22. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1238 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

5. mál, útflutningsgjald

Frsm. minni hl. (Ólafur Thors) [óyfirl.]:

Ég vil byrja þar, sem hv. frsm. meiri hl. endaði, og svara þá um leið hæstv. fjmrh.

Ég er ekki lögfræðingur fremur en þeir, en ég hefi verið kallaður grunnhygginn fyrir að hafa annan skilning á þessu en hann. En þrátt fyrir þetta, þá ber hv. frsm. meiri hl. fram brtt., sem sýnir, að hann hefir sama skilning á þessu og ég. En hvers vegna ber hv. meiri hl. brtt. fram, ef hún er óþörf? Hvaða fíflalæti eru komin í þennan virðulega hv. þm.? Er hann að leika sér að því að klína út skjöl þingsins með óþörfum till.? Honum væri sæmra að leggja meiri vinnu í önnur ákvæði l. heldur en að semja hér óþarfar till.

Í 1. gr. l. frá 1921 um útflutningsgjald eru þau almennu ákvæði, að greiða skuli 1½% í útflutningsgjald af ísl. afurðum. Svo segir í 4. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Til afurða þeirra, er í 1. gr. getur, telst fiskur, sem verkaður er eða fluttur milli skipa í landhelgi eða á höfnum inni, þótt veiddur sé utan landhelgi“.

Þessi ákvæði hafa af 1ögfræðingum og dómurum, sem dæmt hafa í þessum málum, verið skilin svo, að þessi almennu ákvæði l. gr. um 1½% gjald næðu til þess fiskjar, sem veiddur er á innlend fiskiskip, sem stunda veiði utan landhelgi og koma ekki til hafna á siglingu sinni til útlanda. Aftur er í 3. gr. frv. gerð önnur skilgreining fyrir því, hvaða fiskur, veiddur undir svipuðum kringumstæðum, falli undir útflutningsgjaldið. Þar segir: „Til afurða þeirra, er 1. gr. getur, telst afli af skipum, sem hafa rétt til þess að fiska í landhelgi og gera það að einhverju leyti, eða verka hann í landhelgi, þótt eigi sé fluttur í land“. Þá segir og ennfremur, og nú vil ég biðja hv. frsm. meiri hl. að hlusta á: „Ennfremur nær gjaldið til afla, sem veiddur er utan landhelgi, ef hann er saltaður, verkaður eða fluttur á milli skipa á höfnum inni eða í landhelgi“. Hér er fullkomin skilgreining, sem ætlazt er til, að sé tæmandi. Það er skýrt tekið fram, undir hvaða kringumstæðum gjaldið nái til aflans: Að gjald beri að greiða af afla, sem aflaður er utan landhelgi, ef hann er saltaður, verkaður eða fluttur á milli skipa inni á höfnum eða í landhelgi. Þá leiðir það af sjálfu sér, að undanþeginn útflutningsgjaldinu hlýtur sá afli að vera, sem veiddur er utan landhelgi, ef hann er ekki saltaður eða fluttur á milli skipa fyrir innan landhelgi eða á höfnum inni. Ég hefi borið þennan skilning minn í þessu ákvæði frv. undir lögfræðing, og telur hann tvímælalaust, að hann sé réttur. Ef þeir hv. frsm. meiri hl. og hæstv. fjmrh. trúa á sinn eiginn málstað, þá eiga þeir að falla frá brtt. sinni. Ég vil nú leyfa mér að bjóða upp á það að fá máli þessu og atkvgr. um brtt. frestað, og leita til hæstaréttar um álit hans á þessu deiluatriði. Þarf það ekki að taka nema tiltölulega lítinn tíma, sem ekki ætti að verða til baga fyrir framgang málsins í þinginu. Undir þennan Salómonsdóm vil ég bjóða ykkur að leggja málið.

Að öðru leyti þarf ég ekki að víkja að því, sem fram hefir komið undir umræðum til andmæla minni hlutanum.