29.10.1934
Neðri deild: 22. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)

5. mál, útflutningsgjald

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:

Ég skal þá fyrst snúa mér að ágreiningi, sem orðið hefir milli mín og hv. þm. G.-K. um skilning á vissum ákvæðum frv. og jafnvel gildandi l. um þetta efni. Hann segist hafa borið sitt álit undir lögfræðing, sem telji tvímælalaust frvgr. og tilsvarandi grein í gildandi l. sama efnis. Deilan er um það, hvort ákvæði 4. gr. l. nr. 70 frá 1921 eru samhljóða 3. gr. frv., síðari málsgr. Í l. segir svo í 4. gr.: „Til afurða þeirra, er í 1. gr. getur, telst fiskur, sem verkaður er eða fluttur milli skipa í landhelgi eða á höfnum inni, þótt veiddur sé utan landhelgi“. Það er rétt, að af þessari gr. einni út af fyrir sig er svo að sjá sem sá fiskur, sem ekki er fluttur milli skipa í landhelgi og veiddur utan landhelgi, sé eigi gjaldskyldur, en um þetta atriði hefir gengið dómur á þá leið, að slíkur fiskur sé gjaldskyldur samkv. 1. gr. l., og er það áreiðanlega réttur skilningur, og ég er þess vegna alveg óhræddur um toll af þessum fiski, þó ekki sé nánar að orði kveðið en gert er í frv. Hitt get ég mjög vel skilið, að hv. þm. G.-K. vilji ekki viðurkenna, að hann hafi hlaupið á sig í aðfinnslum sínum. Þessi hv. þm. lítur dálítið stórt á sig og finnst það virðingu sinni ósamboðið að viðurkenna sinn misskilning. Við gætum sjálfsagt þess vegna pexað um þetta í allan dag, en ég sé, að það þýðir ekkert, því hv. þm. ætlar sér ekki að láta undan, enda veit ég, að aðrir hv. þdm. hafa tekið eftir því, að orðalagið er hið sama í l. frá 1921 og í frv. Hinsvegar hefi ég ekkert á móti þeirri viðbót, sem hv. meiri hl. fjhn. leggur til að samþ. verði, ekki af því, að ég álíti hana í sjálfu sér nauðsynlega, en ég get viðurkennt, að brtt. gerir meiningu frv. ennþá skýrari. Og ég þykist sjá, að fyrir meiri hl. n. vaki aðallega það, að réttast sé að samþ. brtt. við frv., því í annars muni hv. þm. G.-K. setja metnað sinn í að borga ekki útflutningsgjaldið af fiski, sem veiddur er utan landhelgi, nema með dómi. Hann er eins og kunnugt er fornmaður fél. ísl. botnvörpuskipaeigenda, og má því telja víst, að hann af þráa komi því til leiðar, að útgerðarmenn borgi ekki þetta gjald öðruvísi en með dómi. Væri þannig hægt með brtt. að koma í veg fyrir óþarfa töf á innheimtu þessa gjalds, og þess vegna er rétt að samþ. hana, svo þessi hv. þm. geti ekki með þrjózku sinni tafið innheimtu ríkissjóðs á þessu gjaldi eins og ég er viss um, að hann mundi gera.