01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)

5. mál, útflutningsgjald

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Fjhn. hefir borið fram brtt. á þskj. 270. Hefir atvmrn. vakið athygli á því, að heppilegra væri að gera þá skilgreiningu, sem í brtt. felst, til þess að koma í veg fyrir misskilning í framkvæmd 1. Um brtt. þær, er fjalla um útflutningsgjald af þurrkuðum hausum og beinum, hafa nm. óbundin atkv., en að öðru leyti er afstaða hin sama og við 2. umr. málsins.