01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1837)
5. mál, útflutningsgjald
Bjarni Ásgeirsson:
Þegar þetta mál lá fyrir þingi 1933, bar ég fram í því till. til rökst. dagskrár, sem var samþ. Og þar sem hún hefir verið dregin inn í þetta mál og bent á hana í nál. hv. minni hl., vil ég fara um þetta nokkrum orðum.
Þó ég væri á móti frv. því, sem borið var fram um þetta á þinginu 1933, viðurkenndi ég, að útflutningsgjald þetta væri ranglátt, einkum vegna þess, að það kemur aðeins niður á nokkrum hlutu framleiðslunnar, og þeim hlutanum, sem fer á lakastan markað - erlenda markaðinn. En hinir, sem selja vörurnar innanlands, losna alveg við gjaldið. Og til að hnekkja þeim rangfærslum, sem fram hafa komið í sambandi við þá rökst. dagskrá, sem ég bar fram, og samþ. var á þinginu l933, skal ég lesa hana upp hér, með leyfi hæstv. forseta. Hún hljóðar svona: „Jafnframt því, að ríkisstj. er falið að undirbúa undir næsta þing frv. til laga, er tryggi það, að gjald frá landbúnaðinum, sem svari til útflutningsgjalds þess, sem nú er af landbúnaðarafurðum, komi réttlátar niður á framleiðslu búnaðarins, en nú er, og í trausti þess, að Alþ. geri sitt til að tryggja raunverulega afkomu bænda á þessum örðugleikatímum, tekur d. fyrir næsta mál á dagskrá“.
Eins og dagskrártill. ber með sér, var tilætlun mín og vafalaust þeirra, sem samþ. hana, sú, að útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum yrði afnumið á næsta þingi. En hæstv. fyrrv. ríkisstj. lét undir höfðuð leggjast að bera fram frv. um það. Ég get því ekki annað en verið með því nú, að útflutningsgjald þetta verði fellt niður, og þá einkum vegna þess, að það eykur enn meir mismuninn á innlenda og erlenda markaðinum. Eins og ég hefi áður bent á, kemur fram ósamræmi gagnvart þeim, sem flytja út sjávarafurðir, ef gjald þetta er afnumið, og mátti búast við, að frá þeim heyrðust raddir til mótmæla, eins og nú er fram komið. Og ég verð að segja, að mér finnst það ekki nema eðlilegt, þó að ég geti ekki samþ. þær till., sem þeir hafa borið fram, því ég sé ekki, að ríkissjóður geti misst þær tekjur, sem útflutningsgjald af sjávarafurðum gefur. En til þess að tryggja samræmi milli atvinnuveganna, teldi ég réttlátt að færa útflutningsgjaldið af landbúnaðarafurðum yfir á aðra gjaldstofna, t. d. fasteignir. Þetta vona ég, að hv. ríkisstj. taki til athugunar.