14.12.1934
Efri deild: 61. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)

5. mál, útflutningsgjald

Magnús Jónsson:

Tilgangur minn með brtt. á þskj. 711 var ekki annar en sá, að mismunur sá, sem eftir frv. er milli Norðmanna og Íslendinga um kaup á þessari vöru, skuli jafnan haldast sá sami. En ef hafnarsjóður eða bæjarsjóður skattleggur þessa vöru handa sjálfum sér, þá getur þessi mismunur orðið meiri en þessar 30 kr., og það er svo nú í Vestmannaeyjum. Sé hér aftur um hafnargjöld að ræða, er snerta allar vörur, þá er þetta ekki praktiskt í Vestmannaeyjum. Þaðan er ekki flutt neitt nema til útlanda, og nær brtt. tilgangi sínum þar.

Þetta getur orðið öðruvísi annarsstaðar á landinu. Er það þá rétt, sem hv. 2. þm. S.-M. sagði, að ef gjaldið er lagt á allar vörur, sem fara gegnum höfnina, þá leggst jafnt á allar vörur, innlendar og erlendar, og kemur þetta þá ekki til frádráttar. En ég get bætt við í brtt., að á eftir „skattlagðar“ komi „með útflutningsgjaldi“, og getur þá ekki verið um neinn vafa að ræða.