16.11.1934
Neðri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Mér þótti það vel til fallið, að sjálfstæðismenn hafa óskað eftir útvarpsumræðum um þetta mál.

Ég álít ekki eins mikla ástæðu til, að almenningur fylgist með í nokkru máli sem þessu. Sérstaklega fagna ég því að geta talað um málið í útvarp, af því að í skrifum andstæðingablaðanna hefir málið mjög verið afflutt og blandað missögnum, sem nú gefst tækifæri til að leiðrétta.

Áður en ég vík að sjálfu frv. langar mig til að gera örlitla grein fyrir ástandinu í landinu eins og það kemur mér og mínum flokksmönnum fyrir sjónir, og jafnframt víkja að þeirri stefnu, sem fyrir okkur vakir. Þegar við birtum okkar stefnuskrá fyrir síðustu kosningar var það eitt atriði hennar, að skipuð yrði slík n. sem þessi og með slíku verkefni. Við Alþýðuflokksmenn teljum það skipulag, sem ríkir í þjóðfélagsmálum yfirleitt, svo meingallað, að ekki sé við það unandi, og að það sé óhjákvæmilegt að breyta því meira eða minna, til þess að fólkið í löndunum, jarðarbúar, geti fengið að lifa við þau lífskjör, sem séu í samræmi við menningu og tækni nútímans. Við teljum, að það eigi og verði að nota möguleikana til hagsbóta fyrir almenning, en ekki einstaka menn. En til þess að hægt verði sem skjótast að greina það, á hvern hátt fljótast verði bætt úr hinu gallaða skipulagi, sé fyrsta sporið að leita sem gleggstra upplýsinga um rekstur bæði opinberra og einstaklingsfyrirtækja. Ég skal þá með fáum orðum gera yfirlit um ástand atvinnuveganna. Fyrir skömmu hefir n. athugað efnahag bænda og við þá athugun hefir komið í ljós, að hvorki meira né minna en þriðjungur bænda á ekki svipað því fyrir skuldum. Það hafa verið gerðar miklar ráðstafanir, sem ég segi ekki, að verið hafi að öllu leyti sem réttastar, þeim til hjálpar. Ríkið hefir tekið ábyrgð á 10 millj. kr. til þess að kaupa fyrir verðbréf til lánastarfsemi fyrir þennan atvinnuveg, og í fjárl. næstu ára er gert ráð fyrir 300000 kr. árlegu framlagi úr ríkissjóði til þess að létta skuldabyrði bænda. Svo er nú ástatt með efnahag annars aðalatvinnuvegar landsmanna, landbúnaðinn. — Nú á þessu þingi hefir verið útbýtt fyrir nokkrum dögum þykkri bók, sem eru skýrslur um efnahagsástæður sjávarútvegsins. Samkv. þessum skýrslum var efnahagur þess atvinnuvegar fyrir 2 árum sá, að eignir atvinnuvegarins eru 32,5 millj. kr. en skuldir 26,5 millj., eða álíka háar og skuldir bænda. Skuldir útgerðarinnar nema þannig fyrir 2 árum 82% af eignunum. Jafnframt lét n. það fylgja með, að síðan 1932 hefði áreiðanlega bætzt við skuldirnar, þar sem nægar upplýsingar liggja fyrir um það, að skuldirnar hafa vaxið meira en eignirnar. Sé þetta rétt, virðist ástandið vera það, að nokkurnveginn muni standast á skuldir og eignir. Nefndarmenn hafa flutt till. um skuldaskil fyrir sjávarútveginn. Þeir leggja til, að ríkissjóður leggi fram 5. millj. kr. í skuldaskilasjóð og 1 millj. kr. í fiskiveiðasjóð, aðeins til þess að kaupa þessum mönnum skuldaskil ekki til þess að bæta rekstrarafkomuna eða auka eignirnar, ekki til þess að leita að nýjum mörkuðum, heldur aðeins til að skera niður skuldirnar og færa niður vexti af þeim. Og n. leggur til, að á næstu 6 árum verði greitt úr ríkissjóði til þessara skuldaskila frá 800 þús. kr. til 1 millj. kr. árlega.

Af því að hv. þm. Snæf. hefir haldið því fram, að frv. þau, er n. hefir samið og eiga að stefna til viðreisnar útveginum, beri vott um mikla djúpskyggni og umhyggju fyrir útveginum, þá vil ég leyfa mér að skjóta því fram, að n. hefir alveg gleymt að gera grein fyrir einu, og það er það, hvernig eigi að fá þessa einu millj. kr. á ári. Verður það að teljast mikill ljóður á frv., og ég get bætt því við, að það hlýtur þó að verða einn aðalþáttur í lausn þessara mála að finna ráð til þess að afla nauðsynlegs fjár til þess að framkvæma hjálpina með. Nú situr á rökstólum milliþingan., sem er að rannsaka hag sjómanna, verkamanna og iðnaðarmanna; þeirri rannsókn er ekki lokið enn, en ég býst við, að henni verði lokið í vetur. En svo mikið veit ég úr skýrslum þessarar n., að hjá þessum borgurum þjóðfélagsins er heldur ekki um auðugan garð að gresja. Þannig er þá efnahagur þjóðarinnar, en hvað er svo um rekstur þjóðarbúsins? Til þess að tekjur og gjöld standist á, verðum við að geta selt til útlanda nægilega mikið af vörum, til þess að geta fyrst og fremst keypt þær nauðsynjar, sem við verðum að fá frá útlöndum. Í öðru lagi verðum við að geta greitt vexti og umsamdar afborganir af skuldum við útlönd. Því miður verður að játa, að heldur ekki hér blæs neitt sérstaklega byrlega. Afurðasalan gengur treglega. Sala saltkjötsins til Noregs er skömmtuð, hún má á næsta ári verða aðeins 6000 tunnur. Sala á frosnu kjöti til Englands er líka takmörkuð, hún má ekki fara yfir ákveðið mark. Og þetta eru svo að segja þau einu lönd, sem kaupa kjöt af okkur. En hvað er svo með fiskinn? Af ísfiski er það ákveðið magn, sem flytja má til Þýzkalands og Englands, en þau lönd eru aðalkaupendur okkar að þeirri vöru. Þessi útflutningsheimild er að þrotum komin á þessu ári, í Englandi alveg og í Þýzkalandi í þessum mánuði. Þetta hefir stjórnin neyðzt til að tilkynna útgerðarmönnum nú nýlegu. Og hvað er að síðustu að segja um saltfiskinn? Einnig á þeirri vöru hafa kaupendurnir beitt skömmtun. Spánverjar hafa skammtað saltfisksölu til sín, og er talið, að við höfum þó sloppið sæmilega miðað við aðrar þjóðir. Þó hefir salan þangað minnkað um þriðjung síðan 1933. Enginn veit eða getur sagt um, hvort eða hvenær Portúgalsmenn og Ítalir gera svipaðar ráðstafanir gagnvart innflutningi frá okkur. Það er sýnt, að a. m. k. Portúgalsmenn geta ekki aukið saltfiskkaup við okkur, heldur er sýnt, eftir samningum þeirra við Norðmenn, að það hlýtur að draga úr sölunni þangað. Þannig er nú ástatt með útflutninginn, en hvernig er það með innfluttu vörurnar? Það er víst eitthvað svipað. Af Englendingum erum við neyddir til að kaupa 77% af þeim kolum, sem við þurfum að nota, hin 23% fáum við frá Pólverjum gegn því, að þeir láta okkur hafa tollívilnun fyrir ákveðið magn af síld, er við seljum þangað. Það þýðir ekki að fara í launkofa með það, að við erum neyddir til að kaupa af Spánverjum og Ítölum svo mikið af vörum fyrir saltfiskinn, sem okkur er unnt að fá, og um Portúgalsmenn er að nokkru leyti hið sama að segja. Við erum skuldbundnir til þess að kaupa vörur frá þessum þjóðum og hafa áhrif á að auka þau vörukaup, eftir því sem við getum, meðan saltfisksalan heldur áfram. Af Þjóðverjum erum við skuldbundnir til að kaupa vörur, sem jafngilda þeim vörum, er við seljum þangað. Hér eru aðeins talin nokkur dæmi um verzlunarástandið, en þau gefa nægilega ljósa hugmynd um það, hverjar skorður eru nú reistar frjálsri verzlun. Þau sýna, að það er ómögulegt að halda atvinnu og verzlunarmálum þjóðarinnar í frjálsum farvegi. Ef okkur á ekki að verða bráður voði búinn, verður hið opinbera að taka þessi mál að miklu leyti í sínar hendur. Og fyrir það verður óhjákvæmilegt að takmarka að meira eða minna leyti athafnafrelsi manna, og það er alveg víst, að það verður ekki gert án þess að svipta nokkuð marga menn einhverjum hagnaðarvonum. Þetta verða menn að gera sér ljóst.

Þegar þetta er athugað, þá skil ég það ekki, að nokkurn mann geti furðað á því, þó að fram komi till. um það og viðleitni sýnd í þá átt, að reyna að skipuleggja svo okkar þjóðarbúskap, að tryggt sé, að starf okkar fólks og hagnýting fjármagns okkar verði í samræmi við það, sem allur almenningur krefst.

Ég skal svo, af því að mönnum hefir orðið nokkuð tíðrætt um það frv., sem hér liggur fyrir, með leyfi hæstv. forseta lesa upp tvær fyrstu gr. frv. Það hefði gjarnan mátt gera það fyrr, því að um efni þeirra er rætt, og fer bezt á, að áheyrendurnir fái að vita, hvernig þær hljóða. 1. gr. hljóðar svo:

„Nefnd sú, sem ríkisstjórnin skipaði 29. ágúst 1934 til þess að rannsaka fjármál ríkis og þjóðar og hverskonar atvinnurekstur í landinu og til þess að gera tillögur um hagskipulag þjóðarbúsins o. fl., skal hafa heimild til þess að heimta skýrslur munnlegar og bréflegar, bæði af embættismönnum og einstökum mönnum, stjórnendum félaga og stofnana, um þau atriði, sem hún telur þarf á í starfi sínu“.

2. gr. hljóðar svo:

„Meðlimum skipulagsnefndarinnar og starfsmönnum hennar er bannað, að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um embættis- og sýslunarmenn, að skýra óviðkomandi mönnum frá þeim atriðum, sem þeir verða áskynja um eftir skýrslum þeim, sem um getur í l. gr., að því leyti sem þær varða einstaka menn eða einstök fyrirtæki“.

Þegar skipulagsn. var skipuð 29. ágúst síðastl., með því verkefni, sem fram er tekið í skipunarbréfinu, er hér hefir verið lesið upp og ég ekki hirði um að endurtaka, var nefndinni jafnframt lofað af ríkisstj. eins og segir í skipunarbréfinu:

„Til þess að framkvæma rannsóknir þessar og gera till. og áætlanir, mun ráðuneytið láta nefndinni í té nauðsynlega aðstoð, svo og hlutast til um, að embættismenn ríkisins og ríkisstofnanir gefi nefndinni allar þær upplýsingar, er hún telur sér þörf á að fá. Einnig mun ráðuneytið leita samþykkis næsta Alþingis á því, að nefndin fái rétt til þess að heimta skýrslur, munnlegar og skriflegar, af einstökum mönnum og félögum“.

Stj. var það í upphafi ljóst, að það var þýðingarlaust að fela n. svo víðtækt rannsóknarstarf, sem gert er ráð fyrir, nema hún hefði heimild til þess að heimta upplýsingar, sem hún teldi þörf á viðvíkjandi starfi sínu. Því að fyrsta skilyrðið til þess að geta komið með viturlegar till. er það, að þær byggist á fullkominni þekkingu, sem ekki er unnt að fá nema frá viðkomandi fyrirtæki eða einstakling, sem hlut eiga að máli.

Nú hefir því verið haldið fram á þessum fundi, og það aðallega af hv. 2. landsk., að með því að veita n. slíka heimild sem gert er ráð fyrir í þessu frv., þá sé, að því er mér skilst, beinlínis um brot á 34. gr. stjskr. að ræða.

Í þá átt hneig ræða hans, og honum þótti það hið mesta harkaverk, því að þetta væri gimsteinn stjskr., sem um væri að ræða. En ég fann ekki betur en að hv. þm. í sinni að mörgu leyti glöggu ræðu afsannaði þetta fullkomlega.

Í þessari gr. stjskr. er sagt, að hver þd. út af fyrir sig geti gefið þingn. það vald, sem þar um ræðir, þ. e. a. s. til þess að heimta skýrslur af einstaklingum, stofnunum o. s. frv. Og á hvern hátt þetta vald er gefið segir svo, að hver þd. geti gert það með einfaldri samþ. án lagasetningar. — Þd. getur veitt n. þetta vald með einfaldri ályktun.

Það, sem aftur á móti er hér um að ræða, er stjórnskipuð n., og hún hefir vitaskuld ekki þetta vald til þess að heimta skýrslur af mönnum. Ríkisstj. getur ekki veitt henni þetta vald, en hæstv. Alþ. getur veitt n. þetta vald, því að þótt þingn. sé heimilt að heimta slíkar skýrslur, án þess að lagasetning sé fyrir hendi, þá er það óðs manns æði að halda því fram, að í þeirri gr. felist bann gegn því, að með lagasetningu sé hægt að veita n. slíkt vald. Einmitt fyrir þessar sakir er ríkisstj. það ljóst, að það þarf að fá samþ. Alþ. til þess að veita n. þetta vald, og af þeim ástæðum er frv. flutt.

Mér hefir líka skilizt á hv. andmælendum þessa frv., að þeir vildu ekki neita því, að fullkomin ástæða hefði verið til slíkrar nefndarskipunar sem hér er um að ræða. Og mér skilst að þeir játi það, að ástandið sé þannig, að sjálfsagt sé í fyrsta lagi að rannsaka til hlítar, hvernig komið er, og í öðru lagi að reyna að benda á ráð til endurbóta.

Það, sem aftur á móti er fundið þessari nefndarskipun til foráttu í sambandi við þetta frv., er það, að mannvalið í hana hafi tekizt á annan veg en skyldi. Sérstaklega þó fyrir þær sakir, að mér skildist, að einn stjórnmálaflokkur, Sjálfstæðisfl., ætti engan fulltrúa í n. Að vísu heyrði ég, að hv. þm. Snæf. mælti á þá leið, að Alþýðufl. hefði rofið sín kosningaloforð við skipun n. með því að skipa ekki í hana sérfræðingum, heldur meta meira að fá í n. menn með ákveðinn pólitískan lit.

Út af þessu vil ég taka það fram, að mér er ekki kunnugt um aðra menn, sem betur séu til þess fallnir að vinna í þessari n., heldur en einmitt þá, sem stj. hefir valið, án tillits til þess, hver pólitískur litur er á þeim. Ég hefi við 1. umr. þessa máls gert grein fyrir þessu, en vegna annara hlustenda verð ég að gera það nú aftur.

Formaður n., Héðinn Valdimarsson, er hagfræðingur að námi og hefir ágætt próf í sinni fræðigrein. Síðan hann lauk námi hefir hann starfað við ýms hin stærstu verzlunarfyrirtæki hér á landi; bæði, sem hafa verið opinberar landsverzlanir á sínum tíma og einkafyrirtæki, eins og t. d. Olíuverzlun Íslands, sem hann veitir nú forstöðu. Það er enginn vafi á, að hann er á sviði verzlunarmálanna og af sinni almennu menntun fullkomlega jafnfætis hverjum öðrum og flestum framar. Auk þess er hann sá maður, sem einna mest hefir mótað starfsemi verkalýðsfélaganna hér á landi, sem um 10 þús. landsmanna eru nú í.

Annar maður í n., Emil Jónsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, er verkfræðingur að námi og einnig með ágætu prófi. Hann er einn af aðalforustumönnum í samtökum iðnaðarmanna hér á landi og viðurkenndur sem einn af þeim, er með mestri víðsýni vinna að þeim málum. Hann er einnig kunnugur sveitarstjórnarmálum sem bæjarstjóri í Hafnarfirði nú um nokkurt skeið. Ég lít svo á, að hann hafi sérstök skilyrði til þess, að geta unnið málefnum iðnaðarins gagn í þessari n., en einmitt á sviði þeirra mála þarf víðtækra aðgerða við.

Ásgeir Stefánsson er iðnaðarmaður að menntun, trésmiður. Hann er forstöðumaður fyrir stærsta útgerðarfyrirtæki í Hafnarfirði — bæjarútgerðinni. Hann er alþekktur dugnaðarmaður og vel að sér á sviði útgerðarmála og iðnaðarmála.

Fjórði maðurinn í n. er Steingrímur Steinþórsson, skólastjóri á Hólum. Hann er kandidat frá landbúnaðarháskóla í Danmörku með ágætu prófi. Hann hefir verið kennari við búnaðarskólann á Hvanneyri og starfað við landbúnað síðan hann varð fulltíða maður. Nú er hann skólastjóri á Hólum og bústjóri þar. Ég hygg, að ekki sé hægt að benda á marga menn, sem betri þekkingu hafa á málefnum bænda eða eru líklegir til þess að benda á umbætur á því sviði, heldur en þennan mann.

Fimmti maðurinn í n. er Jónas Jónsson, skólastjóri samvinnuskólans hér í Rvík. Allir vita, að hann er sá maður, sem mest hefir unnið að skipulagningu á starfsemi samvinnumálanna hér á landi. Hann er þeim málum kunnugri flestum öðrum hér búandi manna.

Ég þykist nú hafa gert grein fyrir því, sem fyrir mér vakti sem atvmrh. með skipun þessara manna. Og ég hefi, þrátt fyrir langar umr. um þetta mál hér í þessari hv. d., aldrei nokkurn tíma fengið minnstu vísbendingu um einn einasta mann, sem væri betur til þess fallinn, hver á sínu sviði, heldur en þeir, sem skipaðir eru, til þess að vinna að þessu starfi í n.

Ég játa það, að vitaskuld eru þessir menn með pólitískum lit. Mér er sama, hvort hann er kallaður rauður eða eitthvað annað. Ég veit, að þeir eru hver um sig áhrifamenn í sínum flokki, en ég tel fjarri því, að það sé til hins verra, heldur þvert á móti til hins betra, einmitt sakir þess, að það er trygging fyrir því, að starf þeirra beri einhvern árangur, að þeir eru áhrifamenn í þeim flokkum, sem standa að ríkisstj., og meiri líkur eru fyrir því, að þeirra till., sem fram verða bornar, hafi óskipt og öruggt fylgi þeirra flokka, sem þeir fylgja, og að þær nái fram að ganga. Það segir sig sjálft, að það er til lítils að semja góðar till. nema hægt sé að gera ráð fyrir, að þær fái nægilegt fylgi til þess að ná fram að ganga.

Ég er nú að verða búinn með tímann, en fæ að tala síðar, en áður en ég lýk máli mínu að þessu sinni, vildi ég með leyfi hæstv. forseta lesa kafla úr ræðu, sem ég flutti við fyrstu umr. þessa máls hér í þessari hv. d., sem snertir það, sem mjög hefir verið talað um í kvöld, þau ummæli, sem ég hafi látið falla um álit mitt á því, í hvaða átt mundu beinast till. n., ef þær ættu að verða til umbóta.

Þykir mér rétt að taka af öll tvímæli í þessu efni og lesa upp þennan kafla úr minni ræðu eins og hann er skrifaður af skrifurunum, en ég vil ekki ábyrgjast, að það sé orðrétt eins og ég sagði það.

Þessi kafli í ræðunni hljóðar svo:

„Í sambandi við þessar almennu hugleiðingar og fyrirspurn hv. þm. (hv. þm. Vestm. hafði nefnilega komið með fyrirspurn viðvíkjandi því, hvort ætti að stefna að ríkisrekstri) um það, hvort n. ætti að vinna á þjóðnýtingargrundvelli, get ég lýst yfir því sem minni skoðun, að n. eigi ekki ýkja mikinn kost þess að gera verulegar breyt. til bóta, án þess að ganga lengra eða skemmra inn á þær leiðir, sem samflokksmenn hv. þm. kalla venjulega þjóðnýtingu. Mér er engin launung á þessu. Hygg ég, að flestir hljóti að játa, að þetta sé óhjákvæmilegt vegna viðskipta vorra við önnur lönd. Hvað, sem hv. þm. vill nú kalla það, þá er víst, að í milliríkjaviðskiptum stefnir allt meira og meira.

„Í sambandi við þessar almennu hugleiðingar víðast háð svo margskonar böndum og fyrirmælum, að tæpast er hægt að nefna þau einstaklingsviðskipti. Eitt ríkið segir við annað: Ég skal kaupa af þér svo og svo mikið af vörum, ef þú kaupir af mér svo og svo mikið. Síðan eru settar á gjaldeyrishömlur og innflutningshöft, sem neyða kaupanda til að taka vörur sínar í einu landi, en ekki í öðru, og verða menn að sætta sig við þetta, jafnvel þótt verðlag og annað kunni að ýmsu leyti að vera óhagkvæmara þar en annarsstaðar. Hygg ég, að fæstir sjálfstæðismenn geti neitað því, að allt hnígur nú meira og meira í þá átt, að ríkið verði að taka í taumana til að tryggja hag almennings, þó að það verði með því að takmarka nokkuð athafnafrelsi einstaklinga.

Ég lít svo á, að eitt af fyrstu verkefnum skipulagsnefndar verði það að flokka allan innflutning til landsins. Verður hún að athuga, hvað af því, sem við flytjum inn, má telja nauðsynjavöru. Þá verður hún að athuga, hvað af slíkum vörum við getum framleitt sjálfir hér heima og eins það, hvort við getum ekki framleitt einhverjar aðrar vörur, sem komið gæti í staðinn fyrir þær.

Ennfremur þarf n. að athuga það, hvernig hægt sé að auka atvinnu í landinu með því að vinna betur úr ýmsu því, sem við framleiðum sjálfir. Ef n. sýnist eitthvað vera hægt að gera í þessu efni, liggur fyrir henni að athuga, hvernig komið verði upp tilsvarandi atvinnurekstri. Mun það í flestum tilfellum ekki hægt nema með stuðningi hins opinbera. Á þessum sviðum eru ýmsir möguleikar órannsakaðir“.

Ég hygg nú, að ef þessi kafli er tekinn í heild, þá verði þeir ekki ýkja margir, sem sýnist, að í voðalegt óefni sé stefnt með því, sem segir í orðum mínum og ummælum í þessari ræðu, og ég held, að það séu gífuryrði ein, þegar minni hl. hv. allshn. kemst svo að orði í nál. sínu og hv. þm. Snæf. gerði líka í lok sinnar ræðu: „Tilgangur nefndarinnar er því að leggja í rústir atvinnurekstur einstaklinga og taka upp svo kallaða þjóðnýtingu“. Um þjóðnýtingu mun ég tala seinna, og ég hygg, að þetta séu gífuryrði ein, sem engin rök hafa verið færð fyrir ennþá.