21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Eins og hv. þdm. er kunnugt, hefir Sjálfstæðisflokkurinn í d. ásamt flm. brtt. og Bændaflokksmönnunum það á valdi sínu, að ráða því, hvort till. verður samþ. eða ekki, og þar sem Framsóknarflokkurinn er því ekki mótfallinn, að sjálfstæðismenn taki þátt í nefndarstörfum, ef þeir sjálfir vilja, þá munu Framsóknarmenn sitja hjá við atkvgr.