21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1951)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Út af síðustu ummælum hæstv. forseta vil ég minna hann á, að hann hefir ekki gert skyldu sína í sambandi við þessa atkvgr. 4. málsgr. 44. gr. segir: „Nú er haft nafnakall við atkvæðagreiðslu og þingmaður greiðir eigi atkvæði, og skal hann þá leiða rök að því. Forseti sker úr, hvort þau rök skulu gild talin“ o. s. frv. Forseta bar því að ganga eftir því, að þm. færðu gild rök fyrir því, hvers vegna þeir greiddu ekki atkvæði. Forseti sker úr því, með hliðsjón af 2. málsgr. 44. gr., hvort þm. sé atkvæðisbær og hvort aðstaða hans til málsins sé þannig, samkv. öðrum ákvæðum þingskapa, að hann hafi heimild til þess að greiða atkvæði um málið. 2. málsgr. út af fyrir sig ræðir ekki um fjölda greiddra atkvæða, eins og hæstv. forseti og hv. þm. V.-Ísf. virðist hafa skilið hana. Hún setur skilyrðislaust það ákvæði, að til þess að samþykkt geti talizt lögmæt, þurfi meira en helmingur þm., er við eru og atkvæðisbærir , að greiða atkvæði með henni, ella sé hún eigi lögmæt.
Hæstv. forseta líkaði ekki dæmið, sem ég tók, að 20 menn væru mættir á fundi. 9 greiddu atkv. með máli, 8 á móti, en 3 sætu hjá.
Ég skal taka annað dæmi. Segjum, að 33 þm. séu á fundi, eða öll d., 2 greiða atkv. með máli, 1 á móti, en 30 sitja hjá. Er þetta lögmæt samþykkt? Nei, slíkt nær vitanlega ekki nokkurri átt. Markið verður að setja við absolut meiri hl. atkvæðisbærra þm.
Annars er dæmi til um þetta atriði frá Ed. Þar greiddu 8 atkv. með máli, 7 á móti en sá 16. neitaði að greiða atkvæði. Forseti úrskurðaði hann þá óatkvæðisbæran og þar með fékkst lögleg samþykkt málsins.
Eini möguleikinn til þess, að þessi samþykkt hér sé því lögleg, er að forseti úrskurði þá þm., er eigi greiddu atkv., óatkvæðisbæra.