21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Ásgeir Ásgeirsson:
Ég vil geta þess, að í öll þau ár, sem ég hefi verið á þingi, hafa allir forsetar haft þá reglu, sem hæstv. forseti hefir haft nú. Ég man það greinilega úr forsetatíð Benedikts Sveinssonar, sem lengst af var forseti d., að hann hafði þá reglu, að reyna að fá meiri hl. með till., en ef það tókst ekki, þá tók hann það gilt, ef meiri hl. sagði annaðhvort já eða nei. Þetta hefir og komið fyrir daglega án þess að því hafi verið mótmælt. Vænti ég þess, að hv. sjálfstæðismenn beri með karlmennsku það mótlæti, að þurfa að játa, að þeir séu taldir sterkari en sjö sósíalistar.