21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Garðar Þorsteinsson [óyfirl.]:
Það er út af þessum ummælum hv. þm. V.-Sk., sem að mínu áliti eru mjög óþægileg fyrir forseta, að ég tek til máls. Það er eins og hv. þm. V.-Sk. tók fram, og eins og ég og hv. 3. þm. Reykv. höfum gert, höfuðatriðið, hvort þeir, sem eigi greiddu atkv., séu atkvæðisbærir. Það er ekki rétt, að það skipti engu máli, það er hér punktum saliens. Ef hér voru 32 þm. áðan, voru þeir þá allir atkvæðisbærir, og ef þeir voru það, vill þá hæstv. forseti segja, að meira en helmingur þm. hafi greitt atkv. með till.? Aðeins 15 þm. af 32 greiddu atkv. með till., og ef þessir 32 eru allir atkvæðisbærir, þá er það ekki meira en helmingur atkv. En ef hæstv. forseti vill segja, að hv. framsóknarmenn í d. séu óatkvæðisbærir, þá er úrskurðurinn réttur, annars ekki.