07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1378 í B-deild Alþingistíðinda. (1974)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Emil Jónsson:

Hv. þm. Snæf. sagði, að ég hefði verið hér með ósæmileg orð, en minntist þó ekki á, hvar þau hefðu komið fram. Mér kemur þetta líka kynlega fyrir sjónir, því að ég man ekki eftir að hafa viðhaft slík orð. Hann kvað einnig svo að orði, að ég hefði verið að þenja mig út, viljinn væri góður, en ég væri ungur og óreyndur. Ég held, að hv. þm. Snæf. sé ekki eldri maður en ég, og e. t. v. yngri, svo að honum lætur illa að vera með umvandanir út af slíku. Hvor okkar er reyndari skal ég ekkert um segja. Það má vel vera, að hann sé reyndari maður en ég, en mér finnst þó að ég megi hafa skoðun, þótt ég sé ekki eins lífsreyndur og hann.

Ég skal ekki hafa hér mörg orð. Það hefir fátt verið hrakið af því, sem ég sagði. Helzt hefir orðið tíðrætt um skýrslurnar, sem skipulagsnefndin hefir beðið um, bæði af hv. 8. landsk. í gær og hv. þm. Snæf. nú. Áður var áherzlan lögð á það, að skipulagsnefnd hefði gerzt svo djörf að heimta að vita um, hvaða hráefni iðnaðarmenn notuðu. Þegar ég hafði upplýst það, að iðnaðarmenn hefðu sjálfir beðið um þetta, er nú áherzlan lögð á það, að n. heimti að vita, hve mikið af hverri tegund hráefna iðnaðarmenn noti. Þetta kallar hv. þm. Snæf. að narra út úr þeim dýrkeypta reynslu þeirra, og telur, að það gangi nærri 66. gr. stjórnarskrárinnar.

Í rauninni er engin frekari heimild veitt með þessum l. til skýrslusöfnunar en sú, sem veitt er með 1. um að safna megi hagfræðiskýrslum. Það er því alveg rangt að gera hér einhvern meginmun á. Hinsvegar koma skýrslur hagstofunnar ekki fram fyrr en í fyrsta lagi eftir ár frá því þeim er safnað, svo að n. þurfti að taka þetta í sínar hendur, svo að hún gæti hafið starf sitt strax. Þetta er það, sem hefir verið gert að aðalatriði í þessu máli; hvað aukaatriðin snertir fer ég fljótt yfir sögu.

Um frv. skipulagsn. er það að segja, að þau eru samin á skömmum tíma og því eðlilegt, að þeim þurfi að breyta eitthvað. N. hafði ekki starfað nema einn mánuð er þing kom saman. Hv. þm. Snæf. gekk í raun og veru inn á það, að ekki væri pólitík að ráði í frv. n. Hann sagði eitthvað á þá leið, að hann héldi að hann gæti talið, að pólitík væri í þessu frv. Hvaða frv. er það eiginlega, sem slíkt verður ekki sagt um?

Hv. þm. Snæf. talaði um muninn á skipulagsnefndinni og n. þeirri, er Englendingar skipuðu 1925 til þess að rannsaka kolaiðnaðinn. Báðar hafa þessar n. það sameiginlegt, að þeim er veitt ótakmörkuð rannsóknarheimild. Skipulagsnefnd fer fram á að rannsaka sitt efni, alveg eins og enska n. Munurinn er aðeins sá, að verksvið skipulagsnefndar er stærra.

Að afstaða mín til þessa máls velti á því, hvernig Sjálfstfl. hagar sér í því, er ekki rétt nema að nokkru leyti. Ég sagði, að fylgi mitt við frv. mundi fara nokkuð eftir því, hvernig afskipti Sjálfstfl. yrðu til málsins.

Nú er það vitað, að Sjálfstfl. hefir sýnt málinu fullan fjandskap, og mér er sagt, að hv. þm. Snæf. hafi reynt að spilla fyrir skýrslusöfnuninni. Það var mín skoðun, að sjálfstæðismenn hefðu ekkert annað að gera í n. en að spilla fyrir störfum, og þeirri skoðun hefi ég ekki breytt. Ég álít því, að sjálfstæðismenn eigi ekki að fara í n., nema því aðeins, að þeir fyrst gefi yfirlýsingu um, að þeir vilji starfa þar af heilum hug og gera ekkert til þess að spilla störfum hennar, eins og mér virðist þeir hafa ætlað sér. Þessi rannsóknarheimild, sem með frv. er farið fram á, að n. verði gefin, er ekki að mínu viti það mikils virði, að ég vilji kaupa hana því verði, að Sjálfstfl., ef hann er ráðinn í því að eyðileggja störf n., verði hleypt í n. Öðru máli væri að gegna, ef þeir vildu starfa í n. af heilum hug, en það hefir ekki komið neitt fram ennþá, sem benti til þess. Ef þess vegna sjálfstæðismenn ekki breyta til um sína stefnu í þessu efni, þá mun ég vinna að því, að þessi heimild, sem frv. fer nú fram á að veita n., verði ekki notuð, þó frv. verði að 1., nema því aðeins að sjálfstæðismenn gefi þessa yfirlýsingu, því eins og frv. er nú er það alls ekki skylda að nota hana, og ég býst við, að flestar þær upplýsingar, sem n. þyrfti að fá, gæti hún fengið án þessarar rannsóknarheimildar og gerir það að sjálfsögðu, ef ekki fást þessar yfirlýsingar sjálfstæðismanna.