17.12.1934
Efri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég hélt e. t. v., að þar sem n. var ekki sammála um afgreiðslu frv., en 2. umr. fór fram að áliðnum degi og lítill tími til umr., þá myndu nefndarhlutarnir leiða saman hesta sína og ræðast við um frv. nú, en það er ekki útlit fyrir, að svo ætli að verða.

Það er aðeins lítið atriði, sem ég vildi spyrjast fyrir um. Það er viðvíkjandi þeirri breyt., sem gerð var á frv. í Nd., að Sjálfstfl. var gefinn kostur á að tilnefna tvo menn í n. Mér skilst, að meðan því skilyrði er ekki fullnægt, þá hafi n. ekki það vald, sem henni er annars fengið í hendur með lögum þessum. Mér finnst dálítið ónákvæmt orðalag á því, hvaða skilyrðum þurfi að fullnægja til þess að n. fái í hendur það vald, sem l. ætla henni. — En eftir 2. gr. frv., þar sem talað er um þagnarskyldu n.manna og starfsliðs, virðist sem n. muni verða ærið nákvæm í eftirgrennslunum, og er búizt við, að hún fái vitneskju um leyndarmál fyrirtækja. Eðlilegast væri, að n. hnýstist ekki í annað en það, sem almenningi mætti birta, t. d. eins og hagskýrslur eru birtar, og væri þetta n.starf þá meira til þess að safna upplýsingum almenns eðlis, sem ella fengjust ekki fyrr en miklu síðar. En hitt er öllu óheppilegra, ef n. fer að gera nákvæmar eftirgrennslanir, eins og heyrzt hefir, að hún sé þegar byrjuð á. N. hefir t. d. spurt iðnaðarmenn um það, á hvern hátt ýmsar vörur þeirra séu framleiddar. Þetta finnst mér einkennilegt, og sé ég ekki, hvað það getur komið því máli við, sem hér á að vera um að ræða, sem er að efla atvinnureksturinn í landinu. Ég fæ ekki séð, að því máli sé á nokkurn hátt viðkomandi, hvaða efni eru notuð og á hvern hátt, við tilbúning ýmiskonar áburðar t. d. eða feiti o. s. frv. Hér er um eftirgrennslanir að ræða, sem valda munu almennri óánægju. Það er næsta hart, að n. skuli á þennan hátt ætla að leika sér með sitt miklu vald og leggja við dagsektir svo og svo háar, ef ekki er möglunarlaust hlýtt. — Ég sé ekki, að nú sé hér viðstaddur neinn fyrirsvarsmaður n., þar sem það mun vera hæstv. atvmrh., sem helzt getur gefið upplýsingar um störf n. fram að þessu, en ég verð að endurtaka það, að mér finnst hart að fá n. þetta vald í hendur, ef það á að nota til slíkra hluta. Hitt er annað mál, þótt spurt sé um verð á vörum og annað þess háttar. En um samsetning varanna varðar n. ekki nokkurn skapaðan hlut. og er á þennan hátt verið að reyna að svíkja út úr mönnum iðnaðarleyndarmál, sem eru mjög mikils virði, í því skyni, að hið opinbera geti sett upp keppinauta til höfuðs þeim fyrirtækjum, sem leyndarmálin voru svikin út úr. Það er hart, ef löggjafarvaldið ætlar þannig að svíkjast að mönnum með undirbúning ríkisrekstrar og þjóðnýtingar. Fyrst á með l. að viðlögðum stórsektum að pína út úr mönnum mikilsverð leyndarmál, og síðar setur svo ríkið keppinaut til höfuðs þessum sömu mönnum. — Ég skal annars ekki fjölyrða um þetta frekar nú, en vildi, að menn fengju tækifæri til þess að hugsa sig um, því að málið er vissulega ekki útrætt. Ég hygg, að enginn hafi hér um það talað, nema ég ofurlítið við 1. umr. Þótt við höfum frétt af umr. í hv. Nd., þá hafa menn ekki tíma til að sitja þar og fylgjast með (JBald: Eitthvað verður Nd. að gera). Nd. hefir gert mikið í þessu máli, en ekki skapað okkur neinar skorður eða unnið okkar verk. (JBald: Hv. þm. verður þá bara að lesa þingtíðindin).