17.12.1934
Efri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Magnús Guðmundsson [óyfirl.]:
Ég sé ekki til mikils að ræða þetta mál, þegar enginn er til andsvara. Hæstv. stj. sést hér ekki, hún flýr þegar á að ræðu aðalágreiningsmálin. Af stjórnarliðinu síst hér heldur enginn maður nema þeir, sem embættum eiga að gegna í d., og geta því ekki almennilega stungið af. Þetta er sú aumlegasta þrotayfirlýsing sem ég get hugsað mér. Það er að vonum að fara í geitarhús að leita sér ullar, að spyrja hv. 4. þm. Reykv. um starf nefndarinnar, hann veit ekkert um það, og hefir kannazt við, það sjálfur. Hann hélt því fram, að n. spyrði ekki um annað en það, sem henni væri nauðsynlegt vegna starfa síns. Ég leyfi mér að efast um það, enda bera spurningar þær, sem n. hefir sent út, það greinilega með sér, hver tilgangurinn er. Iðnaðarmenn eru spurðir út í æsar um efnasamsetninguna á vörum sínum, auðvitað til þess að tilvonandi ríkisrekin framleiðsla geti síðar notfært sér þessar formúlur og aðferðir. Ég tek undir það með hv. 2. þm. Rang., að oft getur leikið vafi á því, hvort mönnum er skylt að svara spurningum nefndarinnar. Ég held því fram, að spurningar eins og þær, sem ég nú hefi lýst, séu hreinasta óhæfa, og það, að vaða svo inn í einstaklingsrekstur manna, getur tæplega samrýmzt ákvæðum stjórnarskrárinnar um eignarréttinn. En eins og frv. er nú orðið, þá finnst mér það auðskilið, að ekki sé hægt að krefjast þessara skýrslna án þess að Sjálfstfl. verði gefinn kostur á því að tilnefna menn í n. Og það er ólöglegt, þegar n. er nú að krefjast hverskonar upplýsinga áður en frv. þetta verður að l. Og innheimtu á dagsektum verður ekki hægt að framkvæma nema með fjárnámi að undangengnum dómi. Dæmi n. hlutaðeigendur í sektir, verður það að ganga til dómsstólanna, eins og hv. 2. þm. Rang. tók réttilega fram.
Hv. frsm. vildi réttlæta það, að n. væri skipuð einlitum flokksmönnum, með því, að Sjálfst.flokkurinn hefði verið á móti nefndarskipuninni. Ég man ekki til þess, að flokkurinn hafi lýst sig andstæðan skipun n., sem ætti að rannsaka fjármál ríkis og þjóðar og atvinnurekstur landsmanna, og gera tillögur til bóta á þessum sviðum. En auðvitað erum við sjálfstæðismenn á móti skipun n., sem ætti að undirbúa þjóðnýtingu atvinnurekstrarins í landinu. En um það atriði er greinilegur tvískinnungur í stjórnarherbúðunum; jafnaðarmenn halda því fram, að n. eigi að vinna í þjóðnýtingarátt, en hæstv. forsrh. segir, að það sé ekki meiningin hjá Framsóknarflokknum. Þannig hafa óheilindin fylgt þessari n. frá upphafi. Viðvíkjandi því, hvort einstakir nefndarmenn megi krefjast upplýsinga, þá finnst mér auðsætt, að aðeins meiri hl. nefndarinnar eða nefndin öll geti farið fram á slíkt. Eftir ákvæðum stjórnarskrárinnar má hver nefndarmanna í nefnd, sem skipuð er af Alþ., krefjast allra upplýsinga, er hann telur sig þurfa í starfi sínu, og bendir það til þess, að einstakir menn í nefndum, sem öðruvísi eru skipaðir, hafi ekki þennan rétt án þess að það sé sérstaklega fram tekið, en svo er ekki í frv. þessu. — Hv. frsm. taldi andúð sjálfstæðismanna við frv. þetta ástæðulausa. Það fer eflir því, hvað á að gera. Annars heyrðist mér hv. frsm. vera að draga í land með þjóðnýtinguna, þar sem hann sýndi fram á, að árangurinn af samskonar n.skipun í Noregi og Svíþjóð hefði ekkert leitt af sér annað en ýtarleg nefndarálit. En ef satt skal segja, þá þekki ég ekki til, að slíkar nefndir hafi verið skipaðar í þessum löndum. En sé þetta rétt með farið hjá hv. frsm., þá undrar mig ekki, að árangurinn skyldi ekki verða annar og meiri. Það er svo alstaðar í heiminum, þar sem jafnaðarmenn fá aðstöðu til þess að framkvæma kenningar sínar, að þeir gera það ekki. Þeir verða hræddir við þær, þegar ábyrgðin kemur til sögunnar. Þetta hefir líka komið fram hér. Hæstv. atvmrh. talaði þannig um fiskeinkasöluna, að bersýnilegt var, að hann væri hræddur við einkasölu á þessu sviði, og vildi heldur hafa frjáls samtök einstakra framleiðenda. Á mörgum undanförnum þingum hafa jafnaðarmenn flutt frv. um einkasölu á saltfiski, en nú er hæstv. atvmrh. jafnaðarmaður, og þá er einkasalan ekki orðið áhugamál, þvert á móti. Sama hefir orðið uppi á teningnum í skattamálunum. Jafnaðarmenn hafa barizt á móti hækkuðum tollum. En í dag kemur hér fyrir frv., sem fer fram á mjög miklar tollahækkanir, og jafnaðarmenn ljá því fylgi sitt. Það er því e. t. v. ekki svo mikil ástæða til þess að óttast þjóðnýtingarskraf jafnaðarmanna, þeir verða hræddastir við þjóðnýtinguna sjálfir, þegar á á að herða. Þó er ekki því að neita, að á þessu þingi hefir margt bent til þess, að íslenzkir jafnaðarmenn ætli sér að verða kjarkmeiri á þeirri braut en erlendir flokksbræður þeirra. Eins og hefir verið upplýst í þessum umræðum, hefir jafnaðarmönnum erlendis ekki dottið í hug að fitja upp á einkasölum svipuðum þeim og hér hefir verið gert, eftir að þeir fengu aðstöðu til þess að koma slíkum málum fram. — Jæja, nú mun hv. stjórnarstuðningsmönnum óhætt að fara að koma inn, — ég hefi lokið máli mínu.