05.12.1934
Efri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1933 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)
73. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála
Jón Auðunn Jónsson:
Í þessu frv. finnst mér sérstaklega ekki séð fyrir því, þar sem þessi sameining færi fram, að nægilegt tillit sé tekið til þeirrar sérþekkingar, sem þarf að vera einkum um ritsímastjórn. Því er ekki að minni hyggju neinstaðar slegið föstu í frv., að þeir, sem taka að sér póstafgreiðslu á þeirri stöð, þar sem ritsími er, kunni símritun, en það er alveg nauðsynlegt. Það væri alveg ófært, að sá maður, sem væri póstmálastjóri og um leið ritsímastjóri, hafi ekki þekkingu sérstaklega á símritun og öðru, sem snertir hans starfsemi sem símstjóra. Þess vegna hefi ég borið fram þessa brtt. á þskj. 663. Reyndar hefi ég áður borið fram brtt. á þskj. 637, en við nánari athugun sá ég, að það var óþarfi að fyrirskipa það þar, sem ekki er ritsímastöð, að forstöðumaðurinn kunni símritun. Þess vegna tók ég hana til baka, en bar fram brtt. á þskj. 663, að stöðvarstjórinn á þeim stöðvum, þar sem ritsímastöð er, skuli kunna símritun, því að eins og allir vita, þá þarf sérþekkingu til þess að vera fær um að taka að sér símritun.
Það er ekki hægt að komast hjá að taka tillit til þessarar sérþekkingar, þegar þessar stöður eru veittar, og því álít ég sjálfsagt, að það sé tekið fram í l. sjálfum, og býst ekki við, að neinn hv. þdm. hafi neitt út á það að setja; það er aðeins til meira öryggis.