07.12.1934
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)
73. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála
Jón Auðunn Jónsson:
Ég hygg, að það hafi verið að nokkru leyti fyrir mistök, að brtt. mín um að fela ritsímamönnum forstöðu ritsíma- og póstafgreiðslustöðva, var felld við 2. umr. Ég hefi heyrt það á sumum dm., að þeir tóku það svo, að verið væri að greiða atkv. um fyrri brtt. mína, en ekki þá síðari. Og a. m. k. hafði frsm. meiri hl. lýst því yfir, að það væri að sjálfsögðu skylt að fela þeim mönnum, sem hefðu næga þekkingu á símritun og símstörfum, forstöðu hinna sameinuðu síma- og póstafgreiðslustarfa þar, sem ritsímastöðvar væru. Ég vildi láta þetta koma skýrt fram, því það væri óhæft, ef forstaða slíkra stöðva væri falin mönnum, þó þekkingu hefðu á póstafgreiðslu, sem ekki kynnu til símritunar og starfrækslu síma, því til þess starfs þarf nokkra sérþekkingu.
Mér þætti vænt um að heyra álit hæstv. atvmrh. um þetta; ég vænti, að hann sé mér sammála um, að svona hljóti þetta að verða í framkvæmdinni.