13.10.1934
Neðri deild: 9. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (2094)

60. mál, forðagæsla

Bjarni Ásgeirsson:

Ég bjóst við því í fyrstu, að umrædd þáltill. væri flutt af umhyggju fyrir bændum þeim, sem búa á óþurrkasvæðunum. En ég verð að segja það, eftir að hafa heyrt ræðu hv. 6. þm. Reykv., að þá get ég efazt stórlega um, að svo sé. Eftir ræðu hans að dæma sýnist till. miklu fremur vera fram borin fyrir hræðslu um fóðurskort stjórnarandstæðinga á þingi fremur en fóðurskort bænda. Það kom í ljós strax þegar till. kom fram, að þær rannsóknir og ráðstafanir, sem till. fjallaði um, var sumpart búið að framkvæma og sumpart verið að framkvæma. Það var búið að tryggja nægan fóðurbæti í landinu, eftir því sem næst varð komizt, og frekari rannsóknir voru í fullum gangi. Var þessu lýst yfir þegar till. var rædd, og hefði þá verið nægilegt að vísa till. til stj., eins og gert var með till. sama efnis í Ed. Nú var það ekki gert, heldur var till. vísað til landbn. Þegar till. var tekin til umr. í n., komu fram hinar sömu upplýsingar, að málið væri þegar vel á veg komið. Þess vegna var fallizt á það í landbn. að bera fram þetta frv. í stað till. Það var sem sé búið að tryggja nægilegt fóðurmjöl í landinu, og meira en það, eftir því sem þeir menn álitu, sem kunnugastir voru, með því að stj. kyrrsetti með bráðabirgðalögum síldarmjöl, sem búið var að selja til útlanda. Það hefir verið kyrrsett meira síldarmjöl heldur en búið er að panta, og nú er beðið eftir skýrslum forðagæzlumanna, eftir að þeir hafa farið sína fyrstu eftirlitsferð, til þess að sjá, hvar þörf er fyrir þann fóðurbæti, sem fram yfir er. Ég get því ekki betur séð en að búið sé að gera og verið sé að gera allt; sem hægt er á þessu stigi málsins. Ég get því ekki skilið þann ógnar blástur í hv. 6. þm. Reykv., þegar honum er bent á, að það sé þegar gert allt, sem hv. þm. ætlast til, að gert verði. Hv. þm. telur, að sumstaðar vanti meira en fóðurbæti, það vanti hey. Fóðurskorturinn er almennt í því fólginn, að heyin eru slæm, en það verður á engan hátt betur hætt úr því en með fóðurbæti. Ég neita því ekki, að í einstöku sveitum kunni að vanta hey, en forðagæzlumenn munu betur hafa vit á því en hv. 6. þm. Reykv., og munu þeir gera stj. aðvart um það, og þá er ég viss um, að stj. verður jafnfljótvirk á að bæta úr heyþörfinni eins og hún var að tryggja fóðurbætinn.