13.10.1934
Neðri deild: 9. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1674 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)

60. mál, forðagæsla

Sigurður Kristjánsson:

Hv. þm. Mýr., sem er víst form. landbn., hefir víst fundizt, að hann þyrfti að hreinsa eitthvað fyrir sínum dyrum, en mér sýnist nákvæmlega jafnóhreint þar og það áður var. Hann var að tala um, að till. okkar hv. þm. A.-Húnv. væri ekki flutt af umhyggju fyrir bændum. Það er nú bezt fyrir hann að segja sem minnst um það, sem hann veit ekkert um, en hitt er vitanlegt, að ástandið er óvenjulegt, og svo, að annað eins hefir ekki þekkzt í marga áratugi. Og það má því ekki koma fyrir, að hið opinbera vanræki skyldur sínar til þess að hjálpa þeim, sem nauðulega eru staddir.

Það getur vel verið, að hv. þm. Mýr. hafi þá skoðun, að hann sjálfur sitji inni með svo mikla búspeki og reynslu á því sviði, að aðrir eigi helzt ekki að segja neitt. En ég verð bara að segja það, að fyrir okkur hv. meðflm. minn, sem báðir erum aldir upp í sveit, er það alveg nýtt, ef við eigum að fara að læra af hv. þm. Mýr. í þeim efnum.

Það merkilega við þessar umr. er það, að ekkert hefir komið fram, sem sýnir, að á till. hafi ekki verið þörf. Þvert á móti hefir sá maður, sem staðið hefir fyrir máli andstæðinga till., upplýst það, að allt, sem gert hefir verið, sé í molum og að upplýsingar vanti víðsvegar að af landinu. Hann hefir einnig upplýst það, að einmitt síðan till. kom fram hafi verið farið að gera ýmsar ráðstafanir, eftirgrennslanir um heyverð og möguleika á að fá hey frá útlöndum. (BÁ: Það var byrjað á því áður). En það hefir hv. þm. ekki vitað, því ekki gat hann komið með þær upplýsingar, þegar till. var fyrst til umr. Það er gott og blessað, ef þessi till. gæti leitt til þess, að eitthvað væri gert, og þótt hún væri ekki samþ., verð ég samt að telja það til bóta, ef stj. hefir rumskað eitthvað við. En það stendur óhaggað, að óviðeigandi sé að taka mál eins og þetta og kviksetja það í n., mál, sem allir hljóta að viðurkenna, að þurfi skjótra aðgerða við. Það var eðlilegt, að hv. þm. Mýr. þyrfti að ýta frá sér, þar sem hann ber ábyrgð á meðferð þessa máls sem form. landbn. En honum tókst ekki að sýna fram á, að till. hefði verið óþörf, og honum tókst ekki heldur að sýna fram á, að þær ráðstafanir, sem þar er farið fram á, væru áður gerðar.

Ég skal svo ekki misnota tímann, en vil aðeins endurtaka það, að ég er ánægður, ef þessar till. hafa getað leitt til einhverrar úrlausnar á þessum málum.