22.12.1934
Sameinað þing: 29. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2850 í B-deild Alþingistíðinda. (210)

Þinglausnir

forseti (JBald):

Skrifstofa Alþingis hefir samið eftirfarandi skýrslu yfir störf þingsins frá því fyrsta:

Þingið hefir staðið frá 1. okt. til 22. des., samtals 83 daga.

Þ i n g f u n d i r hafa verið haldnir:

í neðri deild .............. 67

i efri deild ................ 69

í sameinuðu þingi ........ 29

Alls 165 þingfundir.

Þ i n g m á l og úrslit þeirra:

I. Lagafrumvörp:

1. Stjórnarfrumvörp:

a. lögð fyrir neðri deild ......... 21

b. — — efri deild .......... 13

c. — — sameinað þing ..... 3

— 37 2.

Þingmannafrumvörp :

a. borin fram í neðri deild . . . . 7 7

b. — — — efri deild ..... 31

— 108

— 145

Þar af

a. afgreidd sem lög

stjórnarfrumvörp .... 33

þingmannafrumvörp .. 46

—alls 79 lög

b. felld

þingmannafrumvörp .. 2

c. afgr. með rökst. dagskrá

þingmannafrumvörp .. 6

d. ekki útrædd

stjórnarfrumvörp .... 4

þingmannafrumvörp .. 54

145

II. Þingsályktunartillögur:

a. Bornar fram í neðri deild .. 4

b. — — — efri deild .. 10

c. — — samein. þingi 24

— 38

Þar af

a. Þingsályktanir, afgr. til stjórnarinnar

l. ályktanir Alþingis .... 14

2. ályktanir neðri deildar... 2

3. ályktanir efri deildar ... 6

— alls 22 þál.

b. vísað til stjórnarinnar ... 2

c. ekki útræddar ........... 14

38

III Fyrirspurnir:

Borin fram í neðri deild og svarað ........ 1

Ennfremur kom fram í Sþ. till. frá meiri hl. kjörbréfanefndar um kæru út af kosningunni í Skagafjarðarsýslu, en varð ekki útrædd ................................. 1

Mál til meðferðar í þinginu alls .......... 185

Störfum þessa Alþingis er nú lokið, og hefir það staðið í 83 daga.

Þetta er hið fyrsta þing, sem háð er samkv. stjórnarskrárbreytingu þeirri, sem samþykkt var til fullnustu á aukaþinginu haustið 1933. En í þeirri stjórnarskrárbreytingu fólst m. a. heimild til allmikillar fjölgunar á alþingismönnum. og hafa á þessu þingi setið fleiri þingmenn en nokkru sinni áður, eða 49, eins og stjórnarskráin frekast leyfir.

Þingið hefir að þessu sinni afgreitt mörg stórvægileg mál, og vil ég þar til nefna löggjöf viðvíkjandi skipulagi á sölu landbúnaðarafurða innanlands og um sölu sjávarafurða erlendis, sem hvorttveggja eru hin þýðingarmestu mál, er ráða þarf fram úr. Og þótt skiptar séu skoðanir um einstök málsatriði, þá geta sjálfsagt allir sameinazt um þá ósk, að þessi löggjöf, svo og önnur störf Alþingis, megi verða til gagns og nytsemdar þjóð vorri, og eins um þá ósk, að oss takist að sigrast á þeim ískyggilegu örðugleikum, sem nú ógna atvinnuvegum landsmanna.

Ég óska alþingismönnum þeim, sem heima eiga utan Reykjavíkur, góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.