13.10.1934
Neðri deild: 9. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)
60. mál, forðagæsla
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Það er aðeins leiðrétting, sem ég vildi gera. — Ég er viss um það, að hv. þm. er kunnugt um , að seinni partinn í sumar var ekki hægt að fá fullnaðarskýrslur, af því að ekki var alveg fyrirsjáanlegt, hvernig afkoman myndi verða. Haustið reyndist illa, en menn voru að gera sér vonir um fram á síðustu stundu, að heyið mundi þorna. Annars eru menn sammála um það, að ekki eigi að flytja inn hey nema í ýtrustu nauðsyn, og menn eru sammála um það, að stj. hafi séð um, að nægur fóðurbætir sé til í landinu, og meira en það. Hvað er þá hægt að gera frekar? Aðeins það er eftir, að dreifa þessum fóðurbæti um landið, eftir því sem nánari skýrslur sýna, þegar þær koma fram.