20.10.1934
Efri deild: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (2144)

43. mál, prestssetur í Grundarþingaprestakalli

Bernharð Stefánsson:

Hv. frsm. n. hefir nú um stund þrumað yfir mér um galla þjóðjarðasölunnar. En ég hélt því aldrei fram, að þjóðjarðasölulögin væru gallalaus, heldur sagði ég einmitt hið gagnstæða, að þau væru gölluð, en fór hinsvegar lítið inn á það efni, af því að mér fannst það ekki koma þessu máli við.

Hv. frsm. sagði, að okkur hv. 2. þm. Rang. hefði þótt of mikið af rökum hjá sér. Ég heyrði engin rök í ræðu hans, sem koma því máli við, er hér liggur fyrir, og hefi því ekki yfir slíku að kvarta. Hann sagði að vísu ýmislegt um þjóðjarðasöluna frá almennu sjónarmiði, sem vafalaust var rétt að mörgu leyti, en hann færði engin rök gegn því að selja Saurbæ, ef Laugaland verður keypt.

Hv. 4. þm. Reykv. sagði, að hér væri um stefnumál að ræða. Hann fylgdi því sem jafnaðarmaður, að Laugaland væri keypt, en var hinsvegar mótfallinn því að selja Saurbæ. En hér er alls ekki neitt stefnumál á ferðinni. Hér er um það eitt að ræða, að heppilegt er talið að flytja prestssetrið að Laugalandi, og í frv. bendum við á leið fyrir hið opinbera til að gera það án þess að binda sér bagga með því. Þetta er því aðeins stefnumál frá hans hálfu, en ekki okkar.

Hv. 4. þm. Reykv. var að tala um Saurbæ sem einhverja kostajörð með mikla ræktunarmöguleika. Ég er nú kunnugur á þessum slóðum og skal því upplýsa það, að þó ræktunarmöguleikar séu þar að vísu allmiklir, eru þeir þó ekki meiri en víða annarsstaðar, og Saurbær er engin hlunnindajörð.

Hinsvegar vil ég enn taka það fram, að okkur er það ekkert kappsmál, að þessi brtt. verði felld, heldur er það aðalatriði fyrir okkur, að sá liður frv. nái samþykki, að Laugaland verði keypt. Það var ætlun okkar flm. að fá þessu framgengt án þess að baka ríkissjóði þess vegna 32000 kr. útgjöld, en ef þingið vill greiða það fé, þiggjum við það auðvitað með þökkum, ef við fáum því fullnægt, sem við leggjum aðaláherzluna á.

Hæstv. forsrh. var að tala um, að sér þætti verðið of hátt. Það má rétt vera frá því sjónarmiði, að búrekstur á jörðinni beri ekki svo hátt verð með núverandi afurðaverði. En eins og ég tók fram við 1. umr., er þarna jarðhiti o. fl. hlunnindi og mikil húsakynni, sem koma að fullum notum með því að gera jörðina að prestssetri. Þegar þess er gætt, má telja líklegt, að þessi kaup margborgi sig fyrir ríkið. Þetta ættu því að geta orðið góð kaup fyrir ríkið, þótt erfitt væri fyrir bónda að láta jörðina vaxta sig með venjulegum búrekstri.