27.10.1934
Neðri deild: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (2159)

43. mál, prestssetur í Grundarþingaprestakalli

Frsm. minni hl. (Garðar Þorsteinsson):

Minni hl. n. getur ekki fallizt á þessa brtt. hv. meiri hl., því að hann sér enga skynsamlega ástæðu til að heimila ekki stj. að selja Saurbæ í Eyjafirði fyrir það verð, sem hægt er að fá fyrir jörðina, þar sem samkomulag mun vera um, að Syðra-Laugaland í Öngulsstaðahreppi verði keypt og prestssetur sett þar. Sé ég enga ástæðu til, að ríkið sé að halda í þessa jörð, sem það getur selt á 29 þús. kr., þar sem árlegt afgjald af henni er ekki nema 720 kr., en það nemur 2½% af þeirri upphæð. Ríkið getur ekki haft nema fjárhagslegt tjón af eign þessarar jarðar. Teljum við því rétt að veita ábúandanum færi á að eignast jörðina, úr því að hann telur sér það fært. Væntum við þess, að till. meiri hl. n. verði felld.