11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)
51. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Flm. (Jón Pálmason):
Þetta mál er lítið og einfalt, og þar sem það hefir ekki í för með sér nein útgjöld frá ríkisins hálfu eða á annan hátt, þá vænti ég þess, að það gangi greiðlega fram.
Svo er háttað, að í l. um hafnargerð á Skagaströnd, nr. 21 frá 14. júní 1929, er svo tilskilið, að til þess að ábyrgðir sýslunefndar Austur-Húnavatnssýslu séu gildar, þurfi þær að samþ. með 2/3 atkv. á tveimur aðalfundum í röð. Hliðstæð ákvæði eru ekki í neinum öðrum l. um hafnargerð. Miða þau beinlínis til að hamla sýslun. frá að ganga frá sýsluábyrgð viðkomandi hafnargerð þessari eins fljótt og vera þarf. Nú hefir sýslun. þegar gengið í ábyrgð fyrir 75 þús. kr., láni til þessa verks, og náði þetta ákvæði ekki til þeirrar ábyrgðar. En með því að kunnugt er, að það þarf að halda áfram þessu verki, og sýslan þarf á láni að halda framvegis, mundi það þá valda ákaflega miklum óþægindum, ef þyrfti að fara eftir þessu ákvæði; það kostar sýslunefndina tvö ár að koma fram gildri ábyrgð. Þess vegna fer ég fram á, að þingið breyti þessu ákvæði og gild verði ábyrgð þessarar sýslunefndar, ef samþ. er á löglegum fundi með meiri hl. atkv. Ég skal þó taka fram, að ég hefi ekkert út á það að setja, ef hv. þm. þætti tryggilegra að setja einhverjar takmarkanir, t. d. um einhvern vissan meiri hluta atkv. Aðalatriðið er hitt, að málið þurfi ekki að tefjast í tvö ár.
Ég skal svo ekki um þetta litla mál hafa fleiri orð, en óska, að því verði vísað til sjútvn.