18.10.1934
Neðri deild: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1704 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)
67. mál, útflutningsgjald af síld til hlutaruppbótar sjómönnum
Sigurður Kristjánsson:
Út af því, sem hv. þm. Ísaf. sagði, að Alþfl. hefði sífellt verið að bera fram till. um lækkun útflutningsgjalds af síld, vil ég taka það fram, að ég hefi alls ekki orðið var við það. Hitt er mér kunnugt, að það eru einmitt sósíalistar, sem barizt hafa mest fyrir því, að útflutningsgjöld af sjávarafurðum væru óvægileg, og hefir það verið vegna fjandskapar gegn einkarekstri. Þennan áhuga fyrir lækkun útflutningsgjalds af síld hefi ég, því miður, ekki orðið var við hjá þessum hv. þm. fyrr en hann fór sjálfur að gera út til síldveiða.
Það er bersýnilegt, að þeir menn hafa mesta þörf á þessari uppbót, sem minnst hafa haft upp úr sumarvertíðinni, og þeir eiga því helzt að fá uppbótina. Þetta gjald, sem auðvitað er tollur, á því í framtíðinni að falla til þeirra manna allra, sem síld eiga, þ. e. útgerðarmanna, þó að það sé ekki meiningin með þessu frv. Ég veit aðeins eina ástæðu, sem getur gert þessa framkomu hv. þm. Ísaf. skiljanlega, þótt hún réttlæti hana auðvitað ekki. Og ástæðan er sú, að hásetar þeirrar útgerðar, sem þessi hv. þm. veitir sjálfur forstöðu, hafa fengið háan hlut á síldveiðunum í sumar og myndu því græða á þessu á kostnað annara sjómanna í landinu, sem minna hafa borið úr býtum í sumar. En slík pólitísk eigingirni er með öllu ósæmileg í þessu máli. Þetta er ópólitískt mál í eðli sínu, og framkvæmd þess á að fara eftir þörfum og réttlætiskröfum fátækra sjómanna, en ekki eftir pólitískum hagsmunum hv. þm. Ísaf.