22.10.1934
Neðri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (2236)
67. mál, útflutningsgjald af síld til hlutaruppbótar sjómönnum
Sigurður Kristjánsson:
Það var með réttu fundið að því við síðustu umr., að sífellt væru að koma fram frv. um fjárhagslega hluti, án þess að nokkur grg. fylgdi fyrir því, hvað þau mundu gefa miklar tekjur eða valda miklum útgjöldum. Þetta er satt að því er stjfrv. áhrærir. Er það óforsvaranlegt, að reyna ekki að gera þm. nokkurn veginn grein fyrir því, hvað þurfi að sækja marga tugi þúsunda kr. í vasa gjaldþegnanna. En að því er þetta mál snertir, sem upphaflega er komið frá stj., verð ég þó að bera hönd fyrir höfuð henni, og mér þá líka um leið, af því að sjútvn. hefir flutt frv. fyrir stj. Það var ekki svo þægilegt að gera sér grein fyrir kostnaði af þessum lögum, þar sem engar skýrslur lágu fyrir, er sýndu nákvæmlega, hvað þetta yrðu mikil útgjöld. Ég get vel skilið það, að menn eins og hv. þm. A.-Húnv. séu mjög óánægðir með að kasta svona úr ríkissjóði yfir 100 þús. kr. En það er svo, eins og tekið hefir verið fram hér í umr., að þessi skattur hefir alltaf þótt ósanngjarn, og hefir líka verið það. Útflutningsskattur af sjávarafurðum er ósanngjarn, þegar rekstrarhalli er á útgerðinni, en þessi skattur er sérstaklega ósanngjarn vegna þess, að hann er ekki verðskattur, heldur miðaður við magn.
Ég vil þá víkja dálítið að því leiða máli, sem hv. þm. Ísaf. vék að mér. Hv. þm. er sýnilega móti betri vitund fullur ásakana á aðra, því sjálfur er hann stórsekur í þessum efnum. Ég hefi oft borið fram þá till. og skrifað í blöð kröfur um að færa þennan skatt niður í verðskatt. En ég hefi aldrei heyrt rödd um það frá sósíalistum fyrr en þeir fóru sjálfir að gera út. Hv. þm. Ísaf. fer fyrst að vera réttlátur, þegar hann hefir hagsmuni af því, og hygg ég, að svo muni vera um hann í flestum málum. Það er alger óþarfi fyrir hann að vera að gera sig breiðan hér; hann hefir ekki þá fortíð, að hann geti sannfært hv. þm. um það, að það sé réttlætistilfinning hans, sem ræður orðum hans og gerðum. Það þarf ekki að vera með neinar ágizkanir um slíka hluti, því það er vitanlegt, að sósíalistar, rauða samfylkingin, hefir alltaf ofsótt útgerð landsmanna af fjandskap við þann atvinnurekstur, og eitt m. a., sem notað hefir verið til þess að koma honum á kné, er skattaálagning þessi, og ég held, að þessi hv. þm. hafi ekki viljað standa öðrum aftar í því. En hitt kann að vera, að honum hafi verið veitt minni athygli, af því að hann hefir nú ekki þótt neinn bergrisi á sviði þjóðmálanna.
Ég hefi leitað mér upplýsinga um það, hvað þetta mundi vera mikið fé, sem ríkissjóður yrði að greiða út. Eftir þeim skýrslum, sem ég hefi fengið, þá var búið að verka til útflutnings 22. sept. 216760 tunnur. Nú hefir síldin verið seld misjöfnu verði; hefir tunnan komizt upp í 45 kr. og allt niður í 20 kr., og eftir því, sem mér hefir verið sagt, mun ekki vera fjarri lagi, að til jafnaðar hafi tunnan verið seld á 30 kr. verðskattur í samræmi við það, sem er á öðrum útfluttum sjávarafurðum, 1½%, mundi svara til 45 aur. á hverja tunnu, en útflutningsgjaldið er 1 kr. Mismunurinn er því 55 aur. á hverja tunnu, og mundi nema í allt 120 þús. kr. Ég hefi ekki getað fengið glöggar skýrslur og alls ekki getað fengið skýrslur um það, hver hlutur háseta hafi verið, en mér hefir verið sagt af kunnugum mönnum, að þeir alhæstu hafi komizt upp í 800 kr., en þess munu þó fá dæmi, og þeir lægstu munu jafnvel hafa komizt niður í 100 kr. Um mannfjöldann á skipum þessum er mér ekki alveg kunnugt, en gufuskip auk togara munu hafa verið um 30 og mótorskip um 60 að tölu. Á þessum skipum hafa verið upp á hlut 1200 manns. Sumt af þessum skipum, línuveiðararnir, hafa fiskað mikið til í hræðslu, svo gera má ráð fyrir, að eitthvað af þeim dragist frá, en til jafnaðar mun koma á annað hundrað kr. á mann.
Ég skal lýsa því yfir, að eftir að till. mín og hv. þm. Vestm. er fallin með 1 atkv. mun, þótt hún hefði meirihl.fylgi í d., þá mun ég vera með till. hv. 8. landsk., því hún er talsvert í þá átt að vera rétt. Hún fer fram á það, að uppbótin skiptist jafnt milli allra án tillits til hlutaruppbótar hvers eins, en þó þannig, að tekið sé tillit til þess, hvern tíma skipverjinn vann við veiðina.
En það ætla ég að segja hv. þm. Ísaf., að þrátt fyrir að það sé hagsmunamál hans, að þeir, sem hæstan hlutinn hafa fengið, fái hæsta uppbótina, þrátt fyrir þá aðstöðu hans, sem gerir hann óhæfan til þess að taka þátt í meðferð þessa máls, þá er óhætt að fullyrða, að út um land yrði þingið blátt áfram hlægilegt, ef það færi að útdeila styrk til sjómanna eftir þeim hlutföllum, sem farið er fram á í frv. Það er greinilegt, að þessar greiðslur úr ríkissjóði geta ekki byggzt á öðru en þörf mannanna, sem við fénu eiga að taka, og þessi þörf hlýtur að vera þeim mun meiri, sem þeir hafa borið minna úr býtum fyrir vinnu sína. Mér fyndist það skoplegt, þar sem í frv. stendur, að þetta eigi að vera til uppbótar vegna hörmulegrar afkomu sjómanna eða rýrs hlutar, sem þeir hafa borið frá borði, ef uppbótin ætti að vera því minni, sem sjómenn hafa farið verr út úr því. — Ég vona því, að hv. þm. geti gengið inn á miðlunartill. hv. 8. landsk., því það forðar okkur frá því að verða til athlægis um land allt.