24.10.1934
Efri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1724 í B-deild Alþingistíðinda. (2251)

67. mál, útflutningsgjald af síld til hlutaruppbótar sjómönnum

Sigurjón Á. Ólafsson:

Þetta frv. hefir gengið gegnum hv. Nd., og sé ég ekki ástæðu til að fara um það mörgum orðum eins og málið liggur fyrir við 1. umr., nema sérstakt tilefni gefist. Ég legg til, að því verði að lokinni umr. vísað til hv. sjútvn., því fyrir þeirri n. var það í hv. Nd.