24.10.1934
Efri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

67. mál, útflutningsgjald af síld til hlutaruppbótar sjómönnum

Pétur Magnússon [óyfirl.]:

Mér finnst þessar upplýsingar, sem hæstv. ráðh. gefur, vera ófullnægjandi. Hann upplýsir að vísu nokkurnveginn, hversu mikil fjárhæð muni fara til endurgreiðslunnar, en hann upplýsir ekkert sérstakt um, hvernig kjör þessara manna hafi verið, sem ætlazt er til, að fái þessa óvenjulegu greiðslu úr ríkissjóði. Hann upplýsir ekki heldur, hvort komið hafi fram ósk frá þessari stétt manna um framlag úr ríkissjóði, en það er þó afgerandi atriði í málinu, hvort hér er um knýjandi nauðsyn að ræða til að styrkja þessa menn fremur en aðra verkamenn í landinu, sem auðvitað búa margir við erfið kjör vegna atvinnuleysisins. Síldartollurinn er hár að vísu, og hærri en aðrir framleiðslutollar hér á landi. En þótt sú leið hefði verið farin, að endurgreiða nokkurn hluta þessa tolls, þá stendur þetta í litlu sambandi við það. Ef svo væri, þá hefði sú greiðsla átt að renna til þeirra manna, sem tollinn hafa greitt. — Það er naumast rétt að kalla þetta endurgreiðslu, því að það er beint framlag úr ríkissjóði. Ég get því ekki séð, að það sé í raun og veru verjandi að gera slíkar ráðstafanir sem þessa, nema fullar upplýsingar liggi fyrir um, að þessi stétt manna sé þannig sett, að yfir henni vofi stórkostlegir erfiðleikar, ef hún fær ekki framlagið. Það er ekki heldur farin sú leið í þessu frv. að greiða þeim mest, sem minnst hafa borið úr býtum. Að því er mér skilst eiga þeir að fá hæst framlagið, sem mest hafa borið úr býtum við síldveiðarnar á síðasta veiðitímabili. Ég held því, að hér hljóti að liggja eitthvað annað á bak við en upp er gefið. Ég get ekki séð nokkra skynsamlega ástæðu til þess, ef þessir menn eru ekki verr settir en aðrir, að fara að ausa út til þeirra 120 þús. kr. án þess að ósk hafi komið frá þeim um það. Ef haldið væri svona áfram að taka einstaka tekjustofna og skipta þeim upp milli ýmsra stétta, þá er komið út á mjög hála braut fyrir afkomu ríkissjóðs. Þessi upphæð er að vísu ekki há, en einhvern veginn verður að afla þeirra tekna samt, og manni virðist, að það sé búið að sverfa nokkuð fast að tekjustofnunum flestöllum. Ég vil því beina því til þeirrar n., sem fær þetta mál til athugunar, að hún rannsaki til hlítar, hverjar ástæður eru fyrir því, að lagt er til, að farið sé inn á þessa braut nú.