03.11.1934
Efri deild: 29. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1730 í B-deild Alþingistíðinda. (2262)
67. mál, útflutningsgjald af síld til hlutaruppbótar sjómönnum
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
N. hefir ekki orðið allskostar sammála um þetta mál. Í öllum aðalatriðum er n. þó sammála, eins og sjá má á nál. Ágreiningurinn er aðallega um það, hvernig eigi að úthluta þessari uppbót. Meiri hl. vill ekki gera neinar breyt. á því, sem frv. fer fram á, og álítur, að þar sé farið eftir þeirri reglu, sem fyrirfram var bundin, eins og lýst var yfir við 1. umr. málsins.
— Ég ætla ekki að fara að endurtaka neitt af því, sem ég sagði þá. Ég gerði þá grein fyrir því, að lögskráningin bindi þetta, og að allt annað myndu sjómenn telja vonbrigði í sinn garð.
Minni hl. hefir þó gert nokkrar brtt., sem sjá má á þskj. 297, en ég verð að lýsa því yfir f. h. okkar í meiri hl., að við getum ekki orðið þeim samþykkir. Í sjálfu sér eru þessar brtt. ekki svo veigamiklar, en hver sú breyt., sem gerð verður á frv., mun að sjálfsögðu þýða það að tefja fyrir framgangi þess. En nú er svo ástatt, að nauðsynlegt er að hraða þessu máli sem mest, því að undirbúning þarf að hefja þegar í stað til þess að safna gögnum og skýrslum, sem frv. gerir ráð fyrir. Það er því varla vert fyrir jafnveigalitlar brtt. eins og hér er um að ræða að tefja málið. Við í meiri hl. viljum því leggja á móti þessum till., meðfram af þessari ástæðu og hinsvegar af því, að við sjáum ekki, að það rétti neitt hluta eins eða neins, sem nokkru skiptir, þó þetta sé samþ. Mér skilst, að minni hl. óttist aðallega, að einhverjir kunni að komast upp fyrir 7 kr. verðið. Um það liggja engin gögn fyrir ennþá, en ég hygg þó, að það sé ekki svo mjög mikil hætta á því. Það hefir verið vitnað í það hærra verð, sem einstök skip fengu í lok síldarvertíðarinnar, en eftir því, sem ég veit bezt, þá kom það fiskimönnum yfirleitt að litlu haldi, því verðhækkunin kom svo seint, að allur fjöldi skipa var um það bil að hætta veiðum. En það liggja engin gögn fyrir um það, hvað miklu þetta nemur, og það er erfitt að fá það nákvæmt. En ég býst ekki við, eftir þeim upplýsingum, sem fyrir hafa legið, að það geti orðið meira en 7 kr. verð, sem hásetar fá, þegar uppbótin er lögð ofan á það verð, sem þeir seldu fyrir. Ég þori náttúrlega ekkert að fullyrða um það, en eftir því, sem skilríkir menn hafa skýrt mér frá, þá mun það sennilega ekki fara fram yfir það. Og það má þykja gott, ef þessi munur á verðtollinum og þungatollinum gerir það að fylla í kr. verðið. En um þetta liggja ekki fyrir neinar fullnægjandi skýrslur, svo við teljum þess vegna varhugavert að víkja út frá þeirri grundvallarreglu, sem í frv. felst og ég leyfi mér að segja, að sjómenn séu ánægðir með.