03.11.1934
Efri deild: 29. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (2266)

67. mál, útflutningsgjald af síld til hlutaruppbótar sjómönnum

Magnús Guðmundsson:

Ég skil það á ræðu hv. atvmrh., að sú eina hjálp, sem bændur eiga að fá, sé þessi hækkun á kjötinu. Ég er nú í miklum efa um, að það sé nægilegt, sérstaklega þegar farið er eins að og gert hefir verið viðvíkjandi mjólkinni, er hin fyrsta lækkun, sem þar er gerð, kemur niður á framleiðendunum, en gróðinn fer til neytendanna. Það var þó að vísu gott að fá þessa yfirlýsingu fram frá stj., að þetta ætti að verða sú eina hjálp, sem bændurnir ættu að fá. Þá er að vísu að ganga.

Hæstv. atvmrh. sagði, að það hefði verið hugsað fyrir hjálp til síldveiðimanna líka í framtíðinni, þar sem þessi tollur ætti að verða lægri framvegis. En mér skilst, að þetta geti farið þannig, að þessi niðurfærsla á útflutningsgjaldinu fari ekki öll til sjómannanna sjálfra. Það gæti hugsazt, að útgerðarmenn gerðu þannig samninga við sjómenn, að það yrði ekki svo, og ég veit ekki. hvaðan hæstv. atvmrh. kemur vitneskja um, að svo fari ekki. Ég get vel ímyndað mér, að ef síldveiðarnar ganga ekki því betur næsta ár, þá muni koma svipuð krafa frá útgerðarmönnum, og ég sé ekki betur en að það væri alveg sama sanngirniskrafan og sú, sem hér ræðir um. Það er talað um, að síldartollurinn hafi verið ósanngjarn. Það getur vel verið, en það er Alþ., sem hefir samþ. hann, og sé ekki meiri ástæðu til þess að láta breytta tollalöggjöf verka aftur fyrir sig í þessu tilfelli heldur en öðrum. Ég hefi aldrei vitað það fyrr , að ráðstafað hafi verið fyrirfram því fé, sem kynni að nást í með væntanlegri lagabreytingu. Og það er þetta, sem ég kallaði pólitíska spillingu, og ég geri það enn. Annars var ég ekki að gera hér að umtalsefni tollalækkun á síld, en það var hæstv. atvmrh., sem fann þar sitt einasta vígi til þess að hlaupa í. Það er auðséð, að stj. telur sig hafa nóga peninga, þegar hún hefir getað gert samninga um það, að flytja frv. á næsta þingi um að endurgreiða væntanlegan tollmismun milli þeirra l., sem gilt hafa, þegar samningurinn var gerður, og svo aftur þeirra l., sem hún ætlaði sér að láta samþ. Það er einnig auðsætt, að ef á að fara inn á þá leið að lofa því fyrirfram, sem inn kann að nást með breyttri tollalöggjöf, þá er hægt að komast langt í pólitískri spillingu, eins og ég orðaði það.