20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)
44. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. minni hl. (Garðar Þorsteinsson):
[óyfirl.]: Út af því, sem hv. frsm. meiri hl. sagði, vil ég benda á það, að þótt bæjarstjóri fáist kosinn með meiri hl. atkv. bæjarstj., er það ekki sönnun fyrir því, að hann þurfi alltaf að vera í meiri hl. í bæjarstj. Samkv. frv. er atvmrh. heimilt, þegar bæjarstjóri er í andstöðu við meiri hl. bæjarstj., að fyrirskipa nýjar kosningar, án þess að nokkuð sé nánar tiltekið um það í frv., hverskonar andstöðu átt er við, hvort átt sé við það, að bæjarstjóri sé í andstöðu við meiri hl. bæjarstj. í öllum málum yfirleitt, eða ef til vill aðeins í einu einstöku máli. Ef atvmrh. sýnist svo, getur hann þannig rofið bæjarstj., þótt bæjarstjóri sé aðeins í andstöðu við hana í einstöku máli, og gæti slíkt leitt til þess, að kosningar væru látnar fara fram mánaðarlega. (BJ: Það er auðvitað átt við flokkslega andstöðu). Því lagar þá hv. frsm. meiri hl. ekki orðalag frvgr., svo að þetta komi fram í gr.? Hv. þm. má vita það, að það er ekki nóg, að hann hafi þennan skilning á gr., þó góður júristi sé. Ef ágreiningur er um skilning gr. hér á Alþ., munu og dómstólarnir verða í vafa, og atvmrh. getur skotið sér undir hvorn skilninginn sem er. Það ætti og að vera hægurinn á fyrir þá hv. þm., sem vilja láta skilja gr. öðruvísi en hún hljóðar, að laga gr., og manni finnst, að það hefði legið nær en að vera að koma með lögskýringar á henni.