20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1755 í B-deild Alþingistíðinda. (2298)
44. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Því er haldið fram, að þetta frv. sé borið fram vegna hins sérstaka ástands, sem er á Ísafirði í þessum málum. Sé ég þó ekki, að það skipti neinu máli, því að vitanlega getur sama ástand endurtekið sig í öðrum kaupstöðum landsins. Hér ber því aðeins að líta á það, hvort rétt sé að gefa atvmrh. jafnmikið íhlutunarvald í málefnum kaupstaðanna og farið er fram á með frv. Á það er og að líta, að ef rétt þykir að gefa atvmrh. slíkt vald í málefnum kaupstaðanna, er ekki nema eðlilegt, að það nái einnig til sveitanna og honum verði einnig heimilað að rjúfa hreppsnefndirnar, ef þannig stendur á, að oddviti verður í minni hl. með sína afstöðu í einhverju máli. Getur því hér orðið um mjög víðtækt íhlutunarvald að ræða.
Ég er hinsvegar hissa á því, að hv. flm. skuli ekki hafa dottið í hug að breyta löggjöfinni í það horf, að bæjarstjóri yrði ekki löglega kosinn, nema hann fengi meiri hl. atkv. bæjarstj. Það væri þó öruggt ráð til að fyrirbyggja ástand eins og það, sem skapazt hefir á Ísafirði. Eins og bæjarstj. þar er skipuð, var útilokað annað en að bæjarstjórinn lenti í andstöðu við meiri hl. bæjarstj., með því að svo er nú, að kommúnistar telja sósíalista eins mikla andstæðinga sína og sjálfstæðismenn, og sósíalistar telja sig hinsvegar ekki geta unnið með sjálfstæðismönnum. Sósíalistar og sjálfstæðismenn hafa jöfn atkv. í bæjarstj., en kommúnistarnir eiga oddamanninn, svo að bæjarstjórinn hlýtur alltaf að verða í minni hl., þar sem enginn þessara þriggja flokka vill hafa samneyti við hinn. Þarna er um að ræða þrjú skaut í ríkinu, sem ekki geta sameinazt. Þótt fyrirskipaðar væru nýjar kosningar, gætu þær farið á sömu leið aftur. Það er því engin leið út úr ógöngunum. — Ég sé því ekki, hvernig hægt er að fyrirbyggja það, að bæjarstjóri lendi í andstöðu við meiri hl. bæjarstj., nema með því að fyrirskipa með lögum, að bæjarstjóri skuli ávallt vera kosinn með meiri hl. atkv.