20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

44. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða

Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:

Ég hélt, að þetta mál myndi ekki koma svo úr n., að allir hefðu ekki orðið sammála um, að nauðsynlegt var að gera breyt. á því, því að ekki verður því neitað af greinagóðum mönnum, að frv. þessu, þó að stutt sé, er einkennilega vel raðað saman úr hugsunarvillum.

Uppruni þessa máls er ekki almenn þörf, sem Alþ. beri skylda að taka tillit til, heldur einstakt atvik í einum af kaupstöðum landsins. Þar hittist svo á vegna flokkaskiptingarinnar í bæjarstj., að bæjarstjórann varð að velja með hlutkesti á milli tveggja flokkanna, og sá flokkurinn, sem undir varð við hlutkestið, undi illa sínum hlut, sem ekkert er þó við að gera. Við næstu alþingiskosningar verða önnur hlutföll á milli kjörfylgis flokkanna en við bæjarstjórnarkosningarnar, þannig að fylgi kommúnista reyndist minna. Af þessu dregur nú hv. flm. þessa frv. þá vafasömu og að mínu viti röngu ályktun, að hægt sé að útrýma kommúnistanum úr bæjarstj. með nýjum kosningum, svo að bæjarstj. verði aðeins skipuð tveimur flokkum upp úr því, meirihlutaflokki og minnihlutaflokki. Skal ég fúslega játa, að þetta er einmitt æskilegt, svo að bæjarstjórinn geti haft meiri hl. bæjarstj. á bak við sig. Í flestum kaupstöðum landsins er því hinsvegar svo háttað, að þar eru jafnvel 4 —3 flokkar, svo að litlar líkur eru til þess, að nokkur einn flokkur verði svo sterkur, að hann hafi meirihlutaaðstöðu. Ef allir nema flokksmenn bæjarstjóra teljast í andstöðu við hann, má því búast við, að hann verði jafnan í minni hl. frá þessu sjónarmiði. En það er ekki hægt að finna neina leið út úr þessu aðra en þá, að samkomulag verði milli þeirra flokka, sem helzt geta unnið saman, um val bæjarstjórans.

Það kann að vera undarlegt frá sjónarmiði þeirra manna, sem standa deilunum á Ísafirði fjarri, hve mikil óánægja hefir orðið út af hlutkestinu um bæjarstjórann þar. En svo er mál með vexti, að bæjarstjórinn, sem fyrir valinu varð, hefir orðið var við grófar misfellur í stjórn bæjarins, sem hann hefir skýrt frá opinberlega og ég geri ráð fyrir, að hann krefjist leiðréttingar á. Þetta er orsökin til óánægjunnar, og þetta veldur því, að frv. er fram borið, sem hér liggur fyrir.

Alþingi á að sjálfsögðu að setja ný lög, ef það getur útrýmt almennum misfellum, en það á ekki að hlaupa til og fara að setja ný lög, þótt atvik komi fyrir eins og þetta á Ísafirði, allra sízt, þegar ekki er víst, að hægt sé að kippa þessu í lag. Það er eins líklegt, að sama ástand endurtaki sig eftir nýjar kosningar, styrkleikahlutföllin milli flokkanna haldist óbreytt, svo að allt lendi í sömu vandræðunum.

Frv. mælir svo fyrir, að hinar nýju kosningar skuli fara fram fyrir þann tíma, sem eftir er af hinu gamla kjörtímabili. Mér er nú spurn: Hvenær á það að koma í ljós, að bæjarstjórinn sé í andstöðu við meiri hl. bæjarstj., nema strax eftir kosningarnar? Og sé ég þá ekki betur en að allt kjörtímabilið verði eftir. Ef hv. flm. á hinsvegar við það, að þetta geti orðið hvenær sem er á kjörtímabilinu, getur svo farið, eins og hv. 8. landsk. þm. benti á, að kosningar endurtaki sig jafnvel mánaðarlega, og er þá komið út í það öngþveiti, sem sízt sýnist þó ákjósanlegt.

Frv. leggur það í vald ríkisstj, að fyrirskipa endurkosningu. Mætti þó ekki minna vera en að bæjarstj. væri áskilið frumkvæðið að slíkri ráðstöfun og að ráðh. væri því aðeins heimilt að fyrirskipa nýjar kosningar, að meiri hl. bæjarstj. legði það til. Ef þetta því væri látið eftir hv. þm. Ísaf., að gera tilraun um, hvort hægt er að breyta ástandinu á Ísafirði, held ég, að hann hljóti sóma síns vegna að gera þá breyt. á frv., að þetta verði háð vilja meiri hl. bæjarstj., og væri ríkisstj. þó ekki skyldug til að fyrirskipa endurkosningu, heldur væri þetta aðeins heimild fyrir stj. Þá væri þetta orðið mildara og nær lagi. En allt um það sýnist mér varhugavert af Alþingi að fara út á þá braut að setja lög eftir einstöku atviki í einu sveitarfélagi, sem ekkert almennt gildi hefir, enda mega menn ekki búast við því, að hægt sé að fá fram það ásigkomulag í bæjum landsins yfirleitt, að bæjarstjórarnir styðjist við meiri hl. bæjarstjórnanna í flokkspólitískum skilningi, heldur mun jafnan verða að vera samkomulag milli þeirra flokka, sem helzt geta unnið saman, um val bæjarstjórans.