08.10.1934
Sameinað þing: 3. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (234)
1. mál, fjárlög 1935
Forseti (JBald):
Í 19. gr. þingskapa segir aðeins, að frv. skuli útbýta meðal þm. á fundum.
Nánara er ekki til tekið. En ef hv. þm. vill hafa þetta eitthvað hátíðlegra, þá væri rétt að fylla út þessa grein og gera að skyldu, að frv. skuli útbýtt í Sþ.