27.10.1934
Neðri deild: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1780 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)
47. mál, síldarverksmiðjan á Raufarhöfn
Sigurður Kristjánsson [óyfirl.]:
Ég hefi ekki miklu að bæta við það, sem ég sagði við 2. umr. þessa máls. Ég vil þó minnast á það, út frá því, sem hv. þm. Ísaf. sagði, að álit verksmiðjustj. er í sjálfu sér engin rök fyrir því, að rétt væri að kaupa þessa verksmiðju. Þeir segjast álíta það rétt. En þau rök, sem þeir bera fram, eru flest á móti því, að verksmiðjan sé keypt. Þeir benda á, að það muni a. m. k. þurfa ferfalt eða fimmfalt fé til þess að setja hana í stand við það, sem hún kostar. Þetta eru andmæli gegn þessu. Þeir upplýsa það líka, að mjög misjafnlega gangi að fá efni til þess að bræða úr. Þeir telja, að þetta geti verið hagkvæmt, þegar síld er á þessum slóðum, en óhaganlegt, þegar síld er stopul. Ríkið ætti því ekki að setja fé í stofnsetningu þessarar verksmiðju. Það er heldur varhugavert að setja mikið fé í þetta án þess að athuga, hvort ríkið myndi ekki græða meira á því að setja fé í verksmiðju á öðrum stað.
Ég vil vekja athygli á því, sem ég hefi áður minnzt á, að það er alveg órannsakað, hvað þær verksmiðjur, sem nú eru til, og þær, sem til verða fyrir næstu síldarvertíð, geta leyst mikið af hendi, hvort líkur eru til þess, að þær hafi nóg verkefni til þess að vinna úr, og hvort hyggilegt sé fyrir ríkið að spilla fyrir sínum eigin rekstri með því að auka verksmiðjurnar fram yfir það, sem verkefnið, sem vinna á úr, leyfir.
Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því, hversu kynlegt það er, að á sama þingi skuli koma fram krafa um að kaupa og auka að miklum mun verksmiðju á afskekktum stað, þar sem engin rannsókn liggur fyrir um það, að hún muni nokkurn tíma borga sig, og jafnframt kemur fram till. um að banna öllum að byggja síldarverksmiðjur eða auka við þær, sem til eru. Slíkar kröfur hljóta að benda í þá átt, að þeir menn, sem bera þær fram, álíti hættu á, að verksmiðjurnar verði of margar og of stórar. Vitanlega er hægt að ganga of langt í því að veita fé í þá hluti, ef það er langt fram yfir það, sem atvinnureksturinn hefir þörf fyrir. Verksmiðjufjöldinn á að takmarkast af þörf. Þær eiga að vaxa upp fyrir þörfina.
Það er engin ástæða til þess að rengja, að það, sem boðizt hefir af síld til bræðslu undanfarið, er ekki meira en 60% af því, sem þessar verksmiðjur gætu unnið úr.
Það hefir verið bent á, að mikið sé til af síldveiðiskipum, sem gætu farið að stunda síldveiði, en rekstur síldveiðiskipa hefir alls ekki borgað sig, ef þau hafa einungis veitt í verksmiðju. Þau hafa líka þurft að veiða síld til söltunar.
Nú er þegar byrjað að byggja höfn við beztu síldarmið landsins, við Húnaflóa austanverðan. Ég er viss um, að í sambandi við þá hafnargerð kemur síldarsöltun. Það er enginn sjómaður því mótfallinn, að þar muni vera hægt að framleiða beztu vöru til söltunar, til þess að krydda og yfirleitt til þess að verka á þann hátt, sem venja er um útflutta síld í tunnum.
Ég álít hyggilegt að bíða og sjá, hvort ekki verður skynsamlegra að auka við þær verksmiðjur, sem fyrir eru. Ég sé ekki heldur, fyrst þessi verksmiðja hefir verið starfrækt hingað til, eftir því sem síld hefir fengizt, neina sérstaka ástæðu til þess, að ríkið kaupi hana. Hún verður sennilega rekin næsta sumar, ef síld fæst til þess, og jafnvel þótt ríkið kaupi ekki. Þess vegna vænti ég þess fastlega, að hv. þdm. hlaupi ekki að því að afgr. þetta mál, sem er enn sem komið er svo lítið rannsakað.