27.10.1934
Neðri deild: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1783 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

47. mál, síldarverksmiðjan á Raufarhöfn

Jón Pálmason [óyfirl.]:

Mér er það ljóst, að full þörf er á að stuðla að því á allan hátt, að atvinnumöguleikar fólksins verði sem tryggastir. En mér finnst ekki enn hafa komið fram neinar þær upplýsingar, sem réttlæti þá heimild, sem frv. fer fram á.

Það, sem fyrst verður að spyrja um í þessu máli, er þetta: Eru líkur til þess, að fyrirtækið verði lagt niður, þótt það verði áfram í eigu sömu manna og nú? Engin rök hafa verið færð fyrir því. Engin rök hafa verið færð fyrir því, að ríkið myndi græða á þessum verksmiðjukaupum. Hv. frsm. meiri hl. talaði í þessu sambandi um Flateyrarverksmiðjuna. Það er með öllu vafasamt, hvort sú heimild hefir orðið til nokkurs happs, enda myndi hún eflaust hafa verið rekin, þótt ríkið hefði ekki blandað sér í það mál. Í því máli, sem hér liggur fyrir, virðist það fyrst og fremst vera hagsmunaatriði fyrir eigandann að losna við verksmiðjuna, fremur en fyrir ríkissjóð að kaupa hana.

Út af því, sem hv. frsm. meiri hl. sagði um traust og vantraust á stj., vil ég taka það fram, að auðvitað er það ekki bundið við þetta mál. En þó vil ég benda á það, að ef óþarft skyldi reynast við nánari rannsókn að kaupa þessa verksmiðju, þá treysta þeir, sem ljá þessu máli fylgi sitt, stjórninni til að gera það ekki, ef upplýsingar ganga því í gegn. Ég fyrir mitt leyti get ekki sýnt stj. það traust og mun því greiða atkv. á móti heimildinni.