27.10.1934
Neðri deild: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1787 í B-deild Alþingistíðinda. (2358)
47. mál, síldarverksmiðjan á Raufarhöfn
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Óþarft var af hv. þm. Vestm. að rangfæra orð mín eins og hann gerði þegar hann taldi, að þröngt myndi verða fyrir dyrum hjá síldarverksmiðjunni á Siglufirði ef bæta ætti við 20 togurum til afgreiðslu þar. Ég hefi aldrei gert ráð fyrir, að þessi aukni togarafloti á síldveiðum losaði allur á Siglufirði. Ég hafði tekið fram, að hinar verksmiðjurnar, sem væru að koma, gætu tekið við miklu, og að Siglufjarðarverksmiðjan gæti bætt við sig fram yfir það, sem hún hefir haft hingað til. Ég nefndi Sólbakkaverksmiðjuna. Hún getur bætt við sig 40—50 þús. málum frá því, sem var síðastl. sumar; og það nemur a. m. k. afla þriggja togara. Enn hefi ég ekki nefnt, að síldarbræðslustöðin á Hesteyri mun geta bætt við sig a. m. k. 40 þús. málum frá því, sem var síðastl. ár. Það eru alltaf þrír togarar í viðbót. Ég nefndi og síldarverksmiðjuna, sem verið er að reisa á Reykjarfirði. Ekki er neinn vafi, að hún getur tekið afla úr a. m. k. 8 togurum. Þarna eru komnir 14 togarar handa þessum verksmiðjum, sem eru utan Siglufjarðar. Og þá eru ekki nema 6 togarar, sem ætti að bæta við hina nýju verksmiðju á Siglufirði. En það er ekki nokkur vafi á, að til þess að þær síldarverksmiðjur, sem eru á Siglufirði, skili hæfilegum arði, verða þær að bæta við sig meiru en afla úr 6 togurum. Þeir mega ekki vera færri en 8—10. Og ef einhverjir örðugleikar eru á að losa úr þessum skipum þarna, verður að greiða úr og gera þeim það mögulegt. Því að vitanlega er það hringlandi vitlaust fyrirkomulag að reisa verksmiðju í viðbót þar, sem er hægt að afgr. nógu mikið fyrir verksmiðjuna að vinna úr.
Það eru tvennskonar sjónarmið, sem verður að taka, þegar um er að ræða kaup eða byggingu síldarverksmiðja. Fyrst og fremst hagsmunir fyrirtækisins sjálfs, að ekki sé óhæfilega mikið lagt í kostnað og byggðar of margar síldarverksmiðjur. Hitt eru aftur á móti hagsmunir síldveiðenda sjálfra, að ekki verði of lítið um verksmiðjur, svo að þeir geti afsett allan sinn afla. Þarna verður að komast sem næst meðalhófinu, til þess að fullnægt sé þörfum þessara tveggja aðilja, en á hagsmuni hvorugs hallað.
Ég skal taka það fram út af ummælum hv. 6. þm., Reykv., að ég tel enga hættu á, þótt heimild sé gefin, að ríkið yrði knúð til að kaupa verksmiðjuna, því að það eru ekki líkur fyrir þeirri aukning á útgerð í náinni framtíð, að hinar verksmiðjurnar fái nægilegt verkefni.
Ég skal svo ekki fjölyrða meir. En ég hefi talið mér skylt að segja frá því, sem ég hefi hugmynd um, að það mun ekki vera þörf á því að fjölga ríkisverksmiðjum frá því, sem nú er ákveðið, og jafnvel þótt hætta sé á, að verksmiðja þessi hætti störfum. Síldarútvegurinn bjargast fullkomlega á annan hátt. Hitt skal játað, að ég hefi litið hér fyrst og fremst á hagsmuni ríkisfyrirtækja þessara, en þó tekið fullt tillit til þarfa síldveiðenda, þegar ég áætla, að hægt sé að bæta við allt að 20 togurum á síldveiðar og fullnægja þeim þó í þessu efni. En það eina, sem gæti mælt með því að kaupa verksmiðjuna, ef hún hætti að starfa, er vitanlega það, að til hagsbóta sé fyrir síldveiðendur að geta sett upp síld á þessum stað, en þurfa ekki að fara til Siglufjarðar. Það þýðir ekki að vefja þetta mál flóknum rökum. Þetta er að sjálfsögðu eina frambærilega ástæðan. En væri þá ekki hyggilegra að byggja þarna hreinlega verksmiðju, sem fullnægt gæti í framtíðinni, sem væri þá það stór, að hún gæti borið sig betur í framtíðinni heldur en líkur væru til, að þessi geti gert með þeirri umsetningu, sem hún hefir?
Þegar verið er að tala um, að þessi verksmiðja sé ekki dýrari en dr. Pauls'-verksmiðjan, þá er það aðeins fjarstæða. Hún kostaði 310 þús. kr. og vinnur úr 1440 málum á sólarhring. Hv. þm. Ísaf. þarf ekki að hrista höfuðið, því að þetta er rétt. Og þegar það er borið saman við kaup á þessari verksmiðju á 200 þús. kr., sem bræðir aðeins 600 mál, þá er sjáanlegur munur þar á. Ég get fært full rök fyrir því, ef það verður vefengt, að verksmiðjan á Siglufirði bræðir það, sem ég tiltók. Ég get líka fært fullar sönnur á, að ríkisverksmiðjan á Siglufirði, sem á að geta unnið úr 2300 málum á sólarhring, hefir aldrei fengið fullnægjandi verkefni. Og nýja verksmiðjan á að bræða 2400 mál á sólarhring. Og með því að reikna henni aðeins sama verkefni eins og hin hefir haft undanfarið, þá hefi ég samt sem áður komizt svo hátt í að áætla aukning skipaflotans. En það er sjáanlega rúm fyrir afla enn fleiri skipa.