07.11.1934
Efri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1789 í B-deild Alþingistíðinda. (2364)

47. mál, síldarverksmiðjan á Raufarhöfn

Magnús Guðmundsson:

Þetta mál er gamall gestur hér á Alþ., en hefir dagað uppi hingað til. Í tilefni af því, sem hér hefir komið fram, vil ég láta í ljós ánægju mína yfir þeirri yfirlýsingu hæstv. atvmrh., að hann muni athuga þetta mál vandlega, áður en kaup yrðu gerð á verksmiðjunni. Verksmiðjan er lítil og ekki mikils virði, enda á hún ekki að kosta nema 40 þús. kr., en viðgerðin 160 þús. kr. Það er því ekki um að ræða, að hér sé verið að kaupa verksmiðju, heldur lítinn part af verksmiðju.

Þess verður að gæta, að það eru takmörk fyrir því, hvað ríkið getur sett mikið fé fast. Afköst jafndýrrar verksmiðju og þessi verður orðin, að viðbættum viðgerðar- og aukningarkostnaði, sýnast líka mjög lítil, ef ekki er búizt við, að hún bræði nema 600 mál á sólarhring. Mér er kunnugt um, að einstakir menn hafa komið upp verksmiðju við Eyjafjörð, sem kostaði um 200 þús. kr. og sagt er, að bræði um 1100 mál á sólarhring. Það er því ekki efnilegt fyrir ríkið að keppa við verksmiðjur einstakra manna, sem afkasta helmingi meira, en eru þó ódýrari.

Um verksmiðju á Seyðisfirði skal ég ekki ræða, en er hræddur um, að það sé rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að meðmæli hans með síldarverksmiðju þar verði talin kjördæmareipdráttur.