07.11.1934
Efri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)

47. mál, síldarverksmiðjan á Raufarhöfn

Sigurjón Á. Ólafsson:

Út af þeim umr., sem hér hafa fallið, vil ég í fáum orðum lýsa minni skoðun á málinu, þó afstöðu mína megi sjá af nál.

Ég get í þessu máli ekki gengið framhjá þeirri staðreynd, að hér er um verulegar atvinnubætur að ræða fyrir lítið þorp. Hitt er þó e. t. v. þyngra á metunum, að eftir því, sem kunnugir menn hafa tjáð mér, er lega staðarins mjög hagkvæm, því síldin liggur oft síðla sumars við Langanes og þar í grennd. Er því mjög þægilegt fyrir minni skip að geta losað þar síldina, en þurfa ekki að fara með hana til Siglufjarðar. Er líka hentugt fyrir ríkisverksmiðjuna á Siglufirði að eiga þarna útibú fyrir smærri skipin að leggja upp á, enda kemur það fram í áliti verksmiðjustjórnarinnar. Hvort heppilegra sé, að verksmiðjan sé á Seyðisfirði, skal ég ekki þrátta um. Þó má benda á, að á Norðfirði er nú síldarverksmiðja, og fyrir þann skipastól, sem nú er á Austfjörðum, ætti hún að vera nægileg fyrst um sinn. Ef um það er að ræða, að síld veiðist austanvert við Langanes, er ekki langt með hana til Raufarhafnar. Að vísu er alllangt sunnan af Austfjörðum, en um það skal ég ekki deila við hæstv. ráðh. Af þeim tveim ástæðum, sem ég hefi hér nefnt, er ég því fylgjandi, að heimildin sé veitt, og greiði atkv. með frv. Hitt er annað mál, hvort heimildin verður notuð, ef vissa er fyrir því, að verksmiðjan verði rekin. Vil ég ekki ræða um það á þessu stigi málsins.