23.11.1934
Sameinað þing: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 72 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

1. mál, fjárlög 1935

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Herra forseti! Hv. 10. landsk. hefir nú haldið hér allt að því klukkustundarræðu og mest deilt á mig, eða þau mál, sem ég hefi til meðferðar í ríkisstj., og mun ég því aðallega snúa mér að því að svara honum nokkrum orðum. Viðvíkjandi ræðu hv. þm. G.-K. er það að segja, að hún var nú meira svona hávaði heldur en innihald. Hefir hann þó setið við heima hjá sér á annan dag að semja hana og ekki mætt hér á þingfundum. (ÓTh: Menn eru ekki vanir að hæla sér af því, þó andstæðingar þeirra séu veikir). Og þetta er nú árangurinn.

Það var gaman að heyra hv. 10. landsk. tala um hið mikla fylgi Bændafl., og mun það verka skoplega á alla tilheyrendur. Við útvarpsumræðurnar í vor, rétt fyrir kosningarnar, taldi þessi flokkur, að hann mundi eiga alveg vís eitthvað átta eða níu þingsæti. En nú vita allir, að það er litið á þennan flokk sem steindauðan flokk, og ekki tekið neitt mark á honum, nema hvað menn þurfa öðruhverju að hrekja þau ósannindi, sem koma frá þeim mönnum, sem halda uppi að því er kallað er flokksstarfsemi.

Hv. þm. minntist á samninginn milli Framsfl. og Alþfl. Það, sem hann sagði um þann samning, hefir allt verið margendurtekið af stjórnarandstæðingum, bæði í blöðum og umr. hér á Alþ., m. a. við síðustu útvarpsumræður, og var það þá allt hrakið.

Það vita allir menn, að tilgangurinn með þessu af Bændafl. hálfu, er sá, að reyna að vekja tortryggni gagnvart okkur framsóknarmönnum í sveitum landsins. Bændaflokksmennirnir hafa sama hlutverk og Morgunblaðið, að reyna að læða þeirri trú inn hjá bændum, að framsóknarmenn séu algerlega háðir jafnaðarmönnum. Aftur hefir vísir, eins og bent var á í síðustu útvarpsumr., það hlutverk að benda jafnaðarmönnum á, að þeir séu ánauðugir þrælar hjá Framsóknarfl. Sannleikurinn er vitanlega sá um þennan sáttmála, sem gerður var milli Framsfl. og Alþfl., að þar er tekið tillit til beggja flokkanna, eða þess fólks, sem þessir flokkar vinna fyrir, tekið tillit til alls vinnandi fólks, bæði til sjávar og sveita. Í þessum sáttmála er talað um að skipuleggja kjötsöluna og mjólkursöluna, koma vaxtakjörum bænda í betra horf og lengja lánstímann, koma upp samvinnubyggðum og margt og margt fleira. Annars hafa farið fram svo miklar blaðadeilur um þetta atriði og svo rækilega verið svarað af hálfu stjórnarflokkanna, að ég sé ekki ástæðu til að eyða mínum stutta tíma til þess að hrekja sérstaklega það, sem hv. 10. landsk. sagði um það.

Hv. 10. landsk. reyndi að koma þeirri tortryggni inn hjá bændum úti um land, að við hefðum ekki skipað mann frá Búnaðarfélaginu í kjötsölunefndina af óvináttu við bændur. Sannleikurinn er sá um skipun þessarar nefndar, eins og hv. þm. veit vel sjálfur, að einn maður er skipaður í hana frá S. Í. S., einn frá Kaupfélagi Borgfirðinga og Sláturfélagi Suðurlands, tveir eru skipaðir af hálfu neytenda, annar tilnefndur af Alþýðusambandinu og hinn af Iðnsambandinu, og einn er skipaður af ríkisstj. Það hefir verið reynt að koma því inn hjá mönnum, þó ekki hafi það sérstaklega verið reynt nú, að bændur hafi tapað valdi sínu í nefndinni vegna þess að ekki var skipaður í hana maður frá Búnaðarfélaginu. Ég ætla nú að nota tækifærið til þess að sýna fram á, hvað óheyrileg blekking þetta er. Það er vitað, að bændur hafa fulltrúa að meiri hluta í nefndinni. Þeir hafa Jón Ívarsson, Jón Árnason og Helga Bergs. Þeir hafa það, sem máli skiptir, meiri hlutann, valdið í nefndinni, þrjá menn af fimm. Neytendur voru aðeins látnir hafa tvo menn í nefndinni. Þeir hafa það vald, sem sjálfsagt var og nauðsynlegt að þeir fengju, til þess að sýna þeim sem fyllsta sanngirni og til þess að tækist að leysa málið. Því einmitt um leið og neytendur fá að kynnast því, með því að taka þátt í störfum nefndarinnar, að bændur þurfa í sannleika að fá þetta verð fyrir kjötið, þá taka þeir þessum ráðstöfunum betur. Ósanngirni sú, sem fram kemur af hálfu Bændafl., hefði ekki orðið til annars en eyðileggja málið, sprengja samkomulagið og sigla öllu í strand.

Þá kom fram hjá hv. 10. landsk. ádeila viðvíkjandi því, að ég hefði ekki staðið nægilega í ístaðinu að því er snerti kjötverðlagið. Hann minntist á verðuppbót á þessu ári. Því var ekki þessi hv. þm., sem áður var landbrh., búinn að gefa út auglýsingu um, að verðuppbót skyldi greidd? Hann gat það vel, þó ekki væri komin sérstök beiðni um það. Annars var þetta auðsjáanlega borið fram í blekkingarskyni, eins og svo margt annað hjá þessum hv. þm., því hann veit ósköp vel, að það er búið að afgreiða þetta mál í ráðuneytinu og að uppbótin verður greidd út í næsta mánuði. „Ég vildi spyrjast fyrir um, hvað þessu liði“, sagði hv. þm. Hann hefir e. t. v. hugsað, að ég mundi gleyma að svara fyrirspurninni og hann gæti þannig komið inn hjá einhverjum, að uppbótin yrði ekki greidd.

Þá vildi hv. þm. smeygja því inn hjá mönnum, að kjötið mundi hafa hækkað, þó engar ráðstafanir hefðu verið gerðar af hálfu hins opinbera. Aðrar eins blekkingar minnist ég ekki að hafa heyrt. Þegar hv. þm. í næstu setningu sagði, að verðið á útlenda markaðinum hefði lækkað, a. m. k. á haustmarkaðinum, hvað sem verður þegar kemur fram um áramót. Vitanlega hefði kjötið þess vegna streymt á innlenda markaðinn, framboðið orðið meira heldur en nokkru sinni áður og verðið hrapað niður.

Þá minntist hv. þm. á það, sem einnig kom fram í síðustu útvarpsumræðum, að kjötverðið hefði ekki verið hærra í ár. (ÞBr: Í september í ár). Hefði ekki verið hærra í september í ár heldur en í fyrra, sagði þessi hv. þm., en sá, er síðar talaði, sagði aðeins, að kjötverðið hefði ekki verið hærra í ár. En af hverju stafar þetta? Það stafar af því, að kjötverðlagsnefnd hefir tekizt að minnka smásölu- og heildsölukostnaðinn næstum því sem verðuppbót bændanna nemur. Þess vegna sýna skýrslur um smásöluverð svipað verðlag eins og í fyrra, þó vitað sé, að bændur, a. m. k. hér í grennd, fá 20 til 30 aurum hærra verð fyrir kg. af kjötinu heldur en í fyrra. Þetta er því samskonar tilraun til að smeygja inn hjá mönnum blekkingum.

Þá minntist hv. þm. á, að kjötverðið á erlendum markaði mundi verða lágt, og því hefði hann fyrir fáum dögum flutt till. um það í Ed., að greidd yrði uppbót á útflutt kjöt, og sett væri inn í kjötsölulögin heimild til að greiða hana úr ríkissjóði. Þar er sama aðferðin, sem höfð var í sambandi við þessa till., eins og viðhöfð er yfirleitt af Bændafl. í svo að segja hverju máli hér á þingi. Þremur dögum áður en þessi till. kom fram hafði ég skýrt frá því hér í Nd., að ég væri þegar byrjaður að láta rannsaka, í samráði við þá menn, sem bezt þekkja til markaðsins erlendis, hvernig hægt væri að bæta upp verðið á erlenda markaðinum til viðbótar verðjöfnunargjaldinu. Vitanlega var till. felld; ég kann ekki við að taka við slíkum yfirboðum, sízt þegar svo stendur á sem þarna, að fella átti till. inn í kjötsölulögin, þar sem hún átti ekki heima, og án þess að séð væri fyrir nokkrum tekjum á móti. En það er einmitt einkennið á öllum þessum yfirboðum Bændafl., að ekki er séð fyrir neinni tekjuöflun til að mæta útgjöldunum, sem af þeim mundi leiða, og skal og seinna koma að því, hvers vegna svo er.

Það mun e. t. v. sjást innan skamms, hverjum tökum Framsfl. tekur kjötverðið, og hvernig verður snúizt við því máli. Hann mun ekki þurfa aðstoð Bændafl. til þess að leysa það mál, enda fer vel á því, eins og þessi hv. þm. stóð í ístaðinu meðan hann fór með mál landbúnaðarins, er ég einnig kem að síðar.

Þá minntist hv. þm. á, að mjólkurverðið hefði verið lækkað. Skipulagning mjólkursölunnar kæmi neytendum einum til góða, framleiðendur fengju ekki neitt. Ég þóttist alveg viss um, að þessi skröksaga kæmi hér fram í kvöld, og þess vegna fékk ég mann, sem er nákunnugur þessum málum, Pál Zóphóníasson, til þess að reikna þetta út fyrir mig, og er ég með tölurnar hér fyrir framan mig.

Hann hefir reiknað út, að sú lækkun, sem tekizt hefir að fá á útsölukostnaði síðan lögin komu í gildi, nemur allt að því 4 aurum á lítra. Þá hefir hann reiknað út, að það, sem neytendur græða á þessu gegnum verðlækkunina til nýárs, eru 9311 kr. En það, sem framleiðendurnir græða til nýárs, nemur 14203 kr. Það er vitanlegt, að vegna laganna tókst að lækka sölugjöld búðanna, og það er ekki nema eðlilegt, að það komi báðum aðilum að gagni, sérstaklega með tilliti til þess, að gera þurfti lögin vinsæl, svo sem ráðizt hefir verið á móti þeim af blöðum sjálfstæðismanna og meira að segja af blaði Bændafl. Till., sem borin var fram í Ed. um að bændur ættu að fá a. m. k. svo mikið, að framleiðslan bæri sig, var vitanlega borin fram sem fleygur, til þess að reyna að koma á illu samkomulagi milli framleiðenda og neytenda, og þess vegna var hún felld.

Þá er það viðvíkjandi landbúnaðarlánunum. Það var að heyra á hv. 10. landsk., að þær till., sem landbn. hefir borið fram viðvíkjandi þeim, væru ekki að öllu leyti frá ríkisstj. Þetta er rangt, till. eru að öllu leyti frá ríkisstj. Þær gera ráð fyrir þeirri skipun á landbúnaðarlánum, að vextir af þeim verði 5%, og jafnframt a. m. k. öll aðallánin verði lengd um 10 ár, sem svarar til um 2% lækkun á afborgunum árlega frá því, sem er. Það er rétt, að Bændafl. hefir borið fram í þessu máli svokallað yfirboð. Hann hefir komið fram með till. um, að ríkissjóður greiði vaxtatillag, allt að 2% af veðlánum landbúnaðarins, þannig að vextirnir komist niður í 4½%, en jafnframt því er ekki gerð nein tilraun til að lengja lánin og koma á þau betra skipulagi. Einnig verður að benda á, að ekki er í sambandi við þetta yfirboð, fremur en önnur yfirboð þessa flokks, gert ráð fyrir neinni tekjuöflun til þess að standast þessar greiðslur.

Þá minntist sami hv. þm. á það, að dregið hefði verið úr framlögum til landbúnaðarins í fjárlfrv. nú frá því sem verið hefir undanfarin ár. Af öllum þeim ósannindum, sem borin voru fram í ræðu hv. þm., eru þetta einhver þau allra ósvífnustu. Þetta er æðimikil dirfska, þegar hv. þm. veit, að hægt er að lesa upp úr frv. hækkaðar tölur, og það skal ég gera þegar í stað. Þegar borið er saman við fjárlögin fyrir árið 1934, er hækkunin á framlögum til landbúnaðarins þessi;

Til verkfærakaupasjóðs, algerlega nýr liður, sem hv. þm. hafði aldrei dugnað í sér til þess að taka upp meðan hann var landbrh., 65 þús. krónur. Til Byggingar- og landnámssjóðs 100 þús. kr. hækkun. Til skipulagningar afurðasölunnar 20 þús. kr. Til nýbýla af atvinnubótafé 100 þús. kr. Hækkun á vegafé, sem næstum allt fer í sveitir landsins, 270 þús. kr. Símafé 30 þús. kr. Samtals er hækkun á fé til landbúnaðarins í fjárl. fyrir árið 1935, ef miðað er við fjárl. fyrir 1934, 585 þús. kr.

Er nú hægt að hugsa sér öllu fífldjarfari ósannindi heldur en þetta, sem hv. þm. bar fram? Og svo er þessi hv. þm. að telja það eftir, þó að atvinnubótaféð hafi verið hækkað um 200 þús. kr., þar sem ákveðið hefir verið að setja helming af því í nýbýli.

En það væri nógu gaman, um leið og ég er búinn að jarða allrækilega þessar staðhæfingar, þessar tilraunir, sem hv. þm. hefir gert til að deila á ríkisstj. fyrir þau verk, sem hún hefir sérstaklega með höndum, að verja nokkrum mínútum til þess að sýna mönnum dálitla mynd af störfum þessa hv. þm. á meðan hann var ráðh. Það væri dálítið gaman að líta á, hvernig hann hefir þá hagað sér í skipulagningarmálinu. Hann fékk, samkv. l. nr. 90 frá 1933, heimild til þess að skipuleggja kjötsöluna, og hann notar ekki heimildina, þessi hv. þm., sem þá var landbrh. Hann horfði á samkeppnina um kjötsöluna hér í bænum, horfði á kjötið lækka í verði dag frá degi, horfði á það, að kaupmenn keyptu kjöt austur í sveitum fyrir 5 aurum lægra verð hvert kg. en á opinberum markaði, og samt notar hann ekki þessa heimild. Hann hefir aldrei getað varið þetta með neinu, hvorki hér á hæstv. Alþ. né á neinum öðrum vettvangi, þegar þetta hefir verið borið á hann.

En hvers vegna notaði hv. þm. ekki þessa heimild? Vegna þess, að hann vissi, að slíkt verk mundi verða óvinsælt hjá þeim stjórnmálaflokki, sem hann vann með og sem hafði framar öllum öðrum stjórnmálaflokkum þann milliliðagróða, sem núverandi stj. hefir tekið af þessum mönnum með skipulagningu kjötsölunnar. Hv. fyrrv. ráðh. var svo hræddur um ónáð þess flokks fyrir það verk, að hann þorði ekki að hreyfa sig til að nota heimildina.

Hvernig hagaði þessi fyrrv. ráðh. sér í mjólkurmálinu? Var það mál ekki drepið á milli handanna á honum í Ed. af þeim flokki, sem aðallega vann með þessum hv. þm. sem ráðh.? Hv. fyrrv. ráðh. hefir viðurkennt, að mjólkurl. hafi verið orðin þannig, þegar þau fóru út úr Ed., að það hafi verið ómögulegt að framkvæma þau, vegna þess, að búið var að taka burt úr þeim aðalatriði þeirra. Þetta viðurkenndi hv. þm. tvisvar sinnum undir umr. í Ed.

Þannig stóð þessi hv. þm. sig, þegar hann var landbúnaðarráðh., bæði í kjötsölu- og mjólkursölumálinu.

Viðvíkjandi þeirri n., sem starfað hefir að undirbúningi þessara mála, má segja nákvæmlega hið sama um hv. þm., að það er ekki honum að þakka, þó að hann neyddist til að skipa n. til þess að rannsaka þessi mál. Flokksþing Framsfl. og Samb. ísl. samvinnufél. neyddu hann til þess.

Með hangandi hendi skipaði fyrrv. ráðh. svo þessa n., að vísu snemma á árinu, en hún kom ekki nema einu sinni saman á fundi þangað til eftir kosningar. En þá var keppzt við að koma fram með till., ekki till. frá þessum ráðh., sem þá var. Nei, till. frá Samb. ísl. samvinnufélaga voru að öllu leyti lagðar til grundvallar í þessari n., því að engar till. komu frá þáv. landbrh., hv. 10. landsk. Vitanlega hefði hann getað verið margoft búinn að gefa út fullkomin bráðabirgðalög um kjötsöluna tímans vegna í sinni ráðherratíð, ef hann hefði haft nokkurn áhuga á því, m. ö. o. ef hann hefði ekki unnið með þeim flokki, sem hafði þannig afstöðu gagnvart afurðasölumálinu eins og skýrt hefir komið fram nú eftir að skipulagning afurðasölunnar hefir verið ákveðin. Þessi hv. þm. varð til þess að kljúfa Framsfl. vegna þess, að hv. þm. vildi ekki leysa afurðasölumálið með Alþfl., eins og hann vildi ekki heldur viðurkenna Alþýðusamband Íslands sem samningsaðila í kaupgjaldsmálum. En nú er það greinilegt og allur landslýður veit það, hver afstaða Sjálfstfl. var gagnvart þessu máli. Aldrei nokkurn tíma hefir um nokkurt mál verið skrifað jafnhatramlega og skrifað var á móti þessu máli í blöðum Sjálfstfl., þess flokks, sem hæstv. fyrrv. ráðh. tók höndum saman við og klauf Framsfl., vegna þess að hann vildi ekki leysa þetta mál á þann hátt, sem við vildum. Skrifin um þetta í blöðum Sjálfstfl. verða kannske lesin upp síðar við þessar umr. En hitt er þó ennþá verra, að blað þessa hv. þm. hefir notað sömu aðferð til þess að reyna að tortryggja afurðasölumálið eins og blöð Sjálfstæðisflokksins. Má í því blaði, Bændaflokksblaðinu Framsókn, benda á grein um eignarnám, sem er einhver ljótasta tilraun, sem gerð hefir verið til þess að vekja tortryggni í garð þessa máls.

En það, sem sérstaklega einkennir alla framkomu þessa hv. þm. í þessu máli, og, sérstaklega nú í seinni tíð, eftir að hann komst í minni hl., það er m. a. það, að í sambandi við allar þessar heimildir, sem hann vill láta veita til þess að greiða úr ríkissjóði verðuppbót á kjöti, vaxtatillag, tillag til að koma upp nýbýlum, að upphæð 250 þús. kr., aukið tillag samkv. jarðræktarl. — í sambandi við allar þessar heimildir kemur það fram, sem ég ætla að biðja alla að taka vel eftir, að alstaðar vantar till. um að auka tekjur ríkissjóðs til þess að hægt sé að framkvæma allt þetta. En það eru einmitt tekjuliðirnir, sem allt veltur á um það, hvort framkvæmd útgjaldanna sé möguleg í þessu sambandi.

Ég vil nú varpa fram þessari spurningu: Með hverju eiga bændur að afla tekna til þess að geta fengið þau framlög, sem lagt er til, að þeir fái í frv. hv. þm.?

Hin fátæka bændastétt á að vinna að því með þeirri stétt, sem líka er fátæk, að jafna hag einstaklinganna í þjóðfélaginu. Einmitt þetta er starfsstefna núv. stj. En að allar till. vantar um tekjuliði til þess að standast útgjöld af framlögum þeim öllum, sem hv. 10. landsk. gerir till. um, kemur af því, að hv. þm. og hans bandamönnum er ómögulegt að vilja, að hækkaðir verði beinir skattar til að bæta kjör vinnandi stéttanna í landinu.

Ef athuguð er deilan, sem staðið hefir í Danmörku og risið hefir um það sérstaklega, hvernig eigi að bæta kjör landbúnaðarins, þá verður maður þess brátt var, að deilan er ekki um það, hvernig pappírsheimildir eigi að gefa stj. um framlög til þess, heldur um hitt, hvar eigi að taka peningana til þess að bæta lánakjör bænda. Þessar deilur hafa þar staðið óslitnar í hálft ár. En það er einmitt þetta höfuðatriði, sem hv. þm. gengur svo rækilega framhjá, að hann minnist ekki einu orði á tekjuöflunarmöguleikana, og þessi stóra synd fulltrúa Bændafl. er í mjög nánu sambandi við það, að vitanlega var aldrei hægt að leysa afurðasölumálið með hjálp sjálfstæðismanna.

Mér er sagt, að minn ræðutími sé nú þrotinn að sinni. Verð ég því að segja það síðar, sem ég þarf við þetta að bæta. — Góða nótt!