06.12.1934
Efri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1939 í B-deild Alþingistíðinda. (2391)
110. mál, mat á fiskúrgangi
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Frv. er komið frá Nd. og er flutt að tilhlutun Félags íslenzkra fiskimjölsframleiðenda. Fjallar það um nauðsyn þess að fyrirskipa mat á þessari vöru, fiskúrganginum. Sjútvn. fellst á efni frv., en ber þó fram brtt. við það á þskj. 646. Fyrri liður brtt. er aðeins leiðrétting við 1. gr. frv., sem virðist vera nokkuð staglsöm. Þar stendur: „Allan hertan fiskúrgang (hryggi og hausa) og úrgang, sem o. s. frv.“ Orðin „og úrgang“ virðast óþörf, og leggur n. til, að þau falli niður. Frv. ber með sér, að aðeins er um hertan úrgang að ræða. Þá bætti n. við orðin „hryggi og hausa“, sem standa innan sviga, orðunum „o. fl.“, til þess að undir þetta gæti komið fleira hert en hryggir og hausar, því að það er fleira, sem hert er og selt.
Þá getur n. ekki fellt sig við orðið „skreið“ í 1. gr., því að það þýðir annað í málinu en þarna er átt við. Vildum við láta kalla þetta þurrbein, sbr. t. d. orðið harðfiskur. N. sér ekki betur en þurrbein í einu orði sé fullgott mál. Þótti okkur það betra en t. d. þurrkuð bein. — Að öðru leyti skýrir till. sig sjálf.