12.11.1934
Efri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1794 í B-deild Alþingistíðinda. (2428)

105. mál, síldar- og ufsaveiði

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Frv. þetta gerir ráð fyrir að breyta tilskipun um síldar- og ufsaveiði með nót frá 12. febr. 1872. Það er komið hingað frá hv. Nd. og flutt þar að tilhlutun Fiskifélagsins. Í grg. þess er gerð ýtarleg grein fyrir tildrögum þess, og þarf þar ekki miklu við að bæta. Þó vil ég geta þess, að sennilegt er, að framkoma þess eigi rót sína að rekja til Austfjarða. Eftir núgildandi lögum á að greiða landshlut, þegar veitt er með herpinót í landhelgi. Veiðiaðferð þessari er þannig háttað, að það eru tekin mörg köst á ýmsum stöðum, og því ógerningur að halda veiðinni aðskildri, sem veiðist fyrir hverri landareign. Það eru erfiðleikarnir á þessu, sem munu vera aðalástæðan fyrir því, að frv. þetta er komið fram, frekar en hitt, að sjómenn telji það stóra kvöð að greiða 4% af veiðinni í landshlut. Hér er ekki heldur um það að ræða, að gengið sé á hlut landeigenda, því að veiðiaðferð þessi var ekki kunn, þegar tilskipunin var sett 1872. Með því að greiða þessa kvöð var sjómönnum heimilt að draga báta sína á land, veiðarfæri o. þ. h. og þurrka þau. En hér er um alveg nýtt veiðarfæri að ræða, sem getur verið hentugt að nota innan netlagna. Ég held því, að rétt sé að gera þessa breyt., og spurning er, hvort ekki sé réttast að taka upp alla tilskipunina frá 1872 og færa hana í lagaform. — Vil ég svo f. h. sjútvn. leggja til, að frv. verði samþ.