26.11.1934
Sameinað þing: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (243)
1. mál, fjárlög 1935
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég mun að þessu sinni víkja nokkuð að þeim ræðum, sem haldnar hafa verið frá því, að ég talaði síðast, og vi1 ég þá fyrst fara nokkrum orðum um ræðu hv. 1. þm. Skagf. Hann virðist nú hafa tekið að sér hlutverk frsm. Sjálfstfl. í fjármálunum. Þessi hv. þm. ber þær sakir á mig, að ég hefði í fyrrakvöld talað í mjög óviðurkvæmilegum tón, í æsingu og með illu orðalagi. Ég verð að segja það, að meðan þessi hv. þm. lætur sér sæma að vera undir stjórn hv. þm. G.-K., ætti hann sem minnst að tala um óþinglegt orðbragð. Því að verra orðbragð en þessi hv. þm. viðhefir daglega hér í d. hefi ég ekki heyrt á pólitískum fundum, þar sem þó sitt af hverju er látið fjúka. En það verður að virða manni til vorkunnar, þegar talað er fyrir munn þessara manna, þó að nokkuð stór orð séu notuð.
Hv. 1. þm. Skagf. taldi það fjarstæðu eina, að sjálfstæðismenn vildu minnka kaupgetuna. En það er ekki að undra, þó að sjálfstæðismenn hafi séð eftir því, hversu opinskáir þeir hafa verið undanfarið um þetta efni. Undanfarna daga hefir einmitt komið mjög skýrt fram stefna flokksins í þessu máli, einmitt í ræðum hv. 1. þm. Reykv., sem verið hefir frsm. flokksins í fjármálum. Nú er annar maður gerður að frsm., og tel ég ekki ólíklegt, að það sé í sambandi við hreinskilni hv. 1. þm. Reykv. um stefnu flokksins í þessu máli. En til þess að færa sönnur á mál mitt, vil ég, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp örfá ummæli úr grein eftir þennan hv. fyrrv. frsm. Sjálfstfl. í fjármálum. Hv. þm. lét orð þessi falla í Ed. í umr. um frv. til gjaldeyrisl., sem ég hefi lagt fyrir þingið, og þau voru síðan prentuð í grein í Morgunblaðinu 21. nóv. síðastl. undir nafninu „Greiðslujöfnuður og gjaldeyrir“. Þar stendur m. a.:
„Kaupgetuna verður að takmarka. með gætilegri fjármálastjórn þess opinbera og íhaldi bankanna um lánveitingar“.
Og nokkru síðar í greininni stendur: „Fjármálaráðherrann hefir að vísu sagt, að stefna stjórnarinnar sé sú, að auka kaupgetuna jafnhliða því að bæta greiðslujöfnuðinn. En þetta er eitthvert mesta óvit, sem heyrzt hefir“.
Þetta er ekki í fyrsta sinnið sem það hefir verið kallað óvit af stj. að halda fram þeirri stefnu, að auka kaupgetuna og koma jafnframt í veg fyrir það, að sú aukning kaupgetunnar verði til vaxandi eftirspurnar eftir erlendum vörum. Þetta er vitað, að er stefna flokksins, og það kom enda skýrt fram í þessum hreinskilnislegu yfirlýsingum hv. 1. þm. Reykv., fyrrv. frsm. flokksins í fjármálum; allar till. flokksins á þingi benda líka í þessa átt, að flokkurinn ætli sér að „slá á kaupgetuna“, eins og hv. 1. þm. Reykv. hefir orðað það. En það þýðir, að framkvæmdir verði sem minnstar, að atvinna verði sem minnst. En það er von, að þeim sviði að fá svona yfirlýsingar á sig, jafnframt því að hv. þm. G.-K. er að tala hjartnæm orð og mörg um það, hve landbúnaðinum væri það mikils virði, ef kaupgetan væri aukin. Samt kallar hv. l. þm. Reykv. það óvit af mér að stefna að aukinni kaupgetu. — Hv. 1. þm. Skagf. talaði um, að þetta væri útgjaldahæsta fjárlagafrv., sem hér hefði sézt. Þetta er rétt, þetta frv. er útgjaldahærra en fjárlagafrv. hafa verið áður. En ég gerði grein fyrir því, þegar ég lagði frv. fram, að 2/3 hlutar þess mismunar, sem er á útgjöldum þessa fjárlagafrv. fyrir 1935 og fjárl. fyrir 1934, er fram komið sem leiðrétting á áætlunarupphæðum. Ég hefi viljað áætla upphæðirnar svo, að lítil líkindi væru til þess, að eyðslan færi fram úr því. — Ef sú regla er höfð um áætlanir, knýr það menn til að sjá fyrir tekjum, sem nægja til útgjaldanna. En sé alltaf áætlað of lágt, er frekar látið undir höfuð leggjast að afla nægilegra tekna. Það er rétt, að stj. hefir lagt til, að 600—700 þús. kr. verði veittar í viðbót við það, sem ákveðið er í fjárlagafrv., til þess að auka atvinnu í landinu og jafna kjör manna. — Hv. þm. spurði, hvort ég væri það barn að halda, að raunverulegar greiðslur ársins 1935 færu ekki fram úr áætlunum frv. Ég segi ekkert um nema svo kunni að fara. Og ég held, að þessi hv. þm. þurfi ekki að setja sig á háan hest yfir mér í þessu máli, hann hefir verið forystumaður flokks hér á þingi, sem afgr. fjárl. svo, að gjöldin hafa verið áætluð vísvitandi of lágt á mörgum liðum, og þegar svo er, getur Alþ. ekki horft fram á rétta mynd af fjármálunum. — Í sambandi við öflun nýrra tekna sagði þessi hv. þm., að ekki gætu bændurnir, útgerðarmenn eða iðnaðarmenn borgað aukna skatta, ekki væri hægt að taka meira af embættismönnum, hvar ég ætlaði mér að leggja á hækkaða skatta. Því hefi ég svarað með frv. um tekjuskatt og eignarskatt, sem stj. hefir lagt fyrir þingið. Tekjuskatturinn snertir ekki nema að litlu leyti bændur og útvegsmenn, en hann kemur fyrst og fremst niður á þeim, sem hafa hreinan ágóða af rekstri sínum, og er það í fyllsta samræmi við stefnu stjórnarflokkanna, að leggja tekjuskatt á þá menn, sem hafa hreinan ágóða af fyrirtækjum sínum, en létta á þeim, sem engum hreinum gróða ná. Það eru mennirnir, sem hv. þm. segir, að geti ekki borið aukna skatta. En samt hefir Sjálfstfl. staðið á móti þessu skattafrv. Hvaða samræmi er nú í þessu? Þessum mönnum, sem hv. þm. taldi upp, yrði heldur ekki mikið fyrir því, þótt hækkaður væri tollur á óþarfavarningi, þeir munu ekki að jafnaði kaupa mikið af slíkum vörum. — Skattamálastefna stj. miðar að því, að þurfa ekki að taka tekjur sínar af þeim mönnum, sem sama og ekkert bera úr býtum af sínum atvinnurekstri, heldur öðrum. En skattamálastefna Sjálfstfl. er sú, að vanti ríkissjóð tekjur, er þeim náð með því að leggja hlutfallslega jafnt á alla, með sköttum og tollum. Ef horfið væri að þeirri stefnu, að hækka um einhvern ákveðinn hundraðshluta vörutolla, verðtoll, útflutningsgjald o. s. frv., gæti það komið illa niður á þessum mönnum, sem hv. þm. taldi upp og sagði, að engin aukin útgjöld þyldu. En þetta er stefna Sjálfstfl., samkv. áliti því, er síðasti landsfundur flokksins samþykkti og er æðsta starfsskrá flokksins.
Ég ætla ekki að fara mikið út í það að svara hv. þm. V.-Húnv. Þó vil ég benda á það, að öll þátttaka þessa hv. þm. í eldhúsumr. hefir gengið út á það, að reyna að gera tortryggileg fyrir bændum þau framlög, sem veitt hafa verið til verkafólks og sjómanna. Hann heldur því fram, að hægt hefði verið að fá stóreflis framlög til hjálpar bændum, án þess að sinna að nokkru hliðstæðum kröfum annara stétta. Ég vil spyrja þennan hv. þm., hvernig hann haldi, að tekizt hefði að ráða fram úr afurðasölumálum bænda án þess að tillit hefði verið tekið til þarfa annara stétta um leið? — Þá talaði hv. þm. um það, að ekki sæi á, að peninga vantaði, þegar um bitlinga væri að ræða, og staðhæfði, að í frv., sem stuðningsflokkur stj. bera fram, væri stofnað til 200 nýrra embætta. Ég vildi mælast til þess, að hv. þm. flytti einhver rök fyrir þessu. Ennfremur minntist ræðumaður á, að ein af n. þeim, er stj. hefði skipað, hefði ráðið sér skrifstofustjóra með 600 kr. launum á mánuði. En það er ábyggilegt, að þessi maður hefir meira starf með höndum en það, sem hv. þm. V.-Húnv. fær 450 kr. fyrir á mánuði, en það er í því fólgið að starfa 2 klst. á dag í gjaldeyrisn. Samt þykist þessi hv. þm. vera að hneykslast á því hér í útvarpið, að maður fái 600 kr. á mánuði fyrir fullt starf, og þegir um þessar 450 kr., sem hann hirðir á mánuði hverjum fyrir stund úr degi hverjum, — já, og mætir ekki margan daginn. Hann talaði um allt hið feita og girnilega hangikjöt í eldhúsi stj., og um það talar hann af þekkingu, því að hann hefir sannarlega ekki farið varhluta af bitunum úr því eldhúsi undanfarið.
Ég skal viðurkenna, að ekki er gustuk að bæta mikið á áhyggjur hv. 10. landsk., en verð þó að minnast á eitt atriði í ræðu hans. Hann talaði um þær framkvæmdir stj. að endurgreiða sjómönnum síldarútflutningsgjaldið sem hlutaruppbót. Og ekki hefði stj. verið að borga þeim mest, sem minnstan höfðu hlutinn, sagði hv. þm. Nei, þeir, sem stærstan höfðu hlutinn, fengu mesta uppbót, og hv. þm. var stórhneykslaður á þessu. Nú vil ég spyrja hv. 10. landsk., sem flytur till. í hv. Ed. um að borga bændum kjöt, — ætlar hann að leggja til, að bændum verði borgað þetta í öfugu hlutfalli við það kjöt, sem þeir hafa lagt inn í kaupstaðnum? Nei, þessi hv. þm. ætti ekki að vera að býsnast yfir því, að sjómönnum sé greidd hlutaruppbót í réttu hlutfalli við afla þeirra, þegar hann leggur til, að samskonar aðferð verði höfð þegar bændur eiga í hlut. En þetta dæmi sýnir ljóslega málaflutning Bændaflokksmanna; fyrir þeim vakir það eitt, að gera ráðstafanir stj. tortryggilegar fyrir bændum.
Eitt var merkilegt í ræðum þeirra hv. 1. þm. Skagf. og hv. þm. V.-Húnv., og það var, að þeim gleymdist alveg að skýra hlustendum frá því, hvernig þeir hugsuðu sér framkvæmd allra þeirra stóru og miklu mála, sem flokkar þeirra flytja nú á þinginu til hjálpar útvegsmönnum og bændum, án þess að nokkursstaðar mætti hækka skatta. Ég beið satt að segja eftirvæntingarfullur eftir því að heyra leiðir þeirra til fjáröflunar handa skuldaskilasjóðnum, fiskveiðasjóðnum, svo að nefnd séu dæmi. En hvorugur þessara hv. þm. minntist á þetta einu orði. En viðvíkjandi þessum frv. sínum á Sjálfstfl. nú aðeins um tvær leiðir að velja. Önnur er sú, að taka aftur allt það, sem þeir hafa sagt um það, að ekki mætti hækka skattana, til öflunar fjár á móti útgjöldum þeim, sem frv. hafa í för með sér, ef samþ. verða. Hin er sú, að viðurkenna, að engin leið sé til þess, að till. þeirra verði samþ. Ég heyrði það á ræðu hv. 1. þm. Skagf., þótt ekki segði hann það beint, að nú hefir flokkurinn valið um þessar leiðir; hv. þm. hélt sér nefnilega fast við það, að undir engum kringumstæðum mætti hækka skattana. Þar með verður að líta svo á, að gjaldatill. sjálfstæðismanna séu sjálfdæmdar, fyrst flokkurinn sér enga leið til að auka tekjur ríkissjóðs svo, að jöfnuður fáist, ef þær verða samþ. Ég geri mig ánægðan með þessa yfirlýsingu.
Því hefir oft verið haldið fram af stjórnarandstæðingum, að það væru sósíalistar, sem öllu réðu um gerðir stj., og hagsmunum kjósenda okkar framsóknarmanna væri alveg stungið undir stól. Þetta væri þung ásökun, ef hún hefði við eitthvað að styðjast. En ég vil benda t. d. á afurðasölumálin. Ekki hefir stj. tekið upp ríkisrekstrarstefnu sósíalista í þeim. Í fisksölumálunum er með frv. um fiskimálanefnd stuðlað að samtökum þeirra, sem að fiskframleiðslunni standa. Þar er að vísu einkasöluheimild, en til er ætlazt, að einkasala verði síðasta úrræðið, ef allt annað bregzt. Bendir þetta til þess, að Framsfl. hafi svikið stefnu sína? Nei, það er sama, hvernig á það er litið, það verður ekki sýnt fram á með rökum, að Framsfl. hafi hvikað frá stefnu sinni. Þetta eru slagorð, sem andstæðingar okkar búa til, og við ekkert hafa að styðjast. Þessari sósíalistagrýlu hefir verið haldið á lofti stöðugt síðan 1927, og enn á það að vera mikið atriði í baráttu Sjálfstfl. og Bændafl. að reyna að fá bændur til að trúa því, að Framsfl. sé runninn inn í flokk sósíalista. En þetta er gersamlega hætt að hafa áhrif. Fólk er hæft að trúa á Grýlu, nema örfáar lítilsigldar sálir, sem þá vafalaust eru í Sjálfstfl. áður.
Ég benti á það um daginn í útvarpsumr. um skipulagsn. atvinnumálanna, hvílíkur tvískinnungur er í þessari agitation. Bændum er sagt, að framsóknarmenn séu gengnir sósíalistum á hönd, en verkamönnum er talin trú um það, að sósialistar séu gengnir undir stj. Framsfl., og ráði nú engu. Það kveður svo rammt að, að stundum þegar einhver sjálfstæðisþm. er að tala um það hér í Nd., að við séum í vasa sósíalista, þá er annar sjálfstæðisþm. að þruma um það í Ed., að sósíalistar séu nú einskis orðnir ráðandi fyrir okkur framsóknarmönnum. Og þarna er þó ekki nema ein hurð á milli. Ég ætla að lesa upp svolitlar klausur úr ræðum þessara manna til að sanna mál mitt. Í umr. um bifreiðaskattinn í Ed. segir Magnús Jónsson, hv. 1. þm. Reykv.:
„En ég fer nú að efast um andstöðuna, úr því að hv. þm. Alþfl. hér í d. hafa greitt atkv. með innflutningshöftunum, sem þeir áður hafa verið mjög á móti. Ég sé nú, að þeir hafa orðið að kaupa dýru verði að fá að sitja í sólskininu stjórnarmegin, og ef til vill eiga þeir nú að greiða hluta af því gjaldi“.
Sami hv. þm. lýsti því yfir í umr. um mjólkurmálið, að við framsóknarmenn hefðum sett handjárn á sósíalista í því máli. En rétt um sama leyti segir hv. þm. Snæf. hér í Nd. eftirfarandi:
„Langmestur hluti þeirra, sem kusu Framsfl., hefir ekki ætlazt til, að sá flokkur gengi óskiptur sósíalistum á hönd og léti þá eina öllu ráða“.
Svona er samræmið. Þessir hv. þm. tala bara eftir því, sem þeim finnst við eiga í það og það skiptið, eftir því, hvort tilætlunin er sú, að blekkja bændur eða verkamenn. — Ég skil ekki í öðru en allir heilvita menn séu hættir að taka mark á þessum heimskulega rógi.
Því er haldið fram, að síðan samvinna hófst milli framsóknarmanna og jafnaðarmanna um stjórnarmyndun, þá hafi eingöngu verið teknar till. frá sósíalistum og reynt að framkvæma þær. Ég vil nefna eitt atriði í sambandi við ræðu hv. þm. G.-K., sem hann var að reyna að gera að stóru atriði. Hann sagði, að það væri bert, að við framsóknarmenn hefðum gengið inn á þá stefnu jafnaðarmanna, að gera allar jarðir að ríkiseign. Maður skyldi nú ætla, að þeir hefðu ekki verið margir, sem hefðu trúað okkur framsóknarmönnum til þess að fara með umboð sitt, ef þeir hefðu vitað þetta. En sannleikurinn er sá, að þetta hefir verið eitt af kosningamálum framsóknarmanna og var nefnt í kosningaávarpi flokksins við síðustu kosningar. Sá, sem ekki fylgist betur með, getur ekki ætlazt til þess, þegar hann er að gagnrýna aðra flokka, að hann sé tekinn alvarlega. Eða var það mál jafnaðarmanna að fá leyst kjötmálið og mjólkurmálið? Þessi stærstu mál landbúnaðarins voru ekki leyst á meðan sjálfstæðismenn höfðu aðstöðu til þess að leysa þau. En í samvinnu við jafnaðarmenn tókst framsóknarmönnum að leysa þessi mál, sem ekki var hægt að leysa í samvinnu við sjálfstæðismenn. Jafnaðarmenn fá í staðinn lausn þeirra mála, sem er þeim fyrir miklu. Samvinnunni milli þessara flokka er þann veg háttað, að þar eru tekin höfuðatriðin úr dagskrárstefnumálum okkar framsóknarmanna og jafnaðarmanna og stjórn mynduð á þeim grundvelli að leysa þessi mál. Framsfl. fær leyst kjöt- og mjólkurmálið, en jafnaðarmenn fá þar á móti, að framsóknarmenn ætla að leysa tryggingarmálin með þeim; sömuleiðis á að lækka útflutningsgjald af síldarafurðum og endurgreiða síldartoll til sjómanna, en þá um leið fella niður útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum. Samvinnan er þannig, að jafnað er saman áhugamálum framsóknarmanna og jafnaðarmanna. Sjálfstfl. hefir ekki fengizt til þess að leysa áhugamál bændanna, og sýnir það, hverra hagsmuni flokkurinn lætur ganga fyrir, ef hann fær að ráða. Þetta sýnir líka mætavel, að grundvallarstefna Bændafl. er röng, en hún er sú, að bændum beri að vinna til hægri. Það er kannske það merkasta í sambandi við þessi mál, að það hefir sýnt sig, að ef bændur eiga að fá sín stærstu mál leyst, þá verða þeir að vinna til vinstri.