30.10.1934
Efri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1943 í B-deild Alþingistíðinda. (2505)

114. mál, lögreglustjóri í Ólafsfirði

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Reynslan hefir sýnt, að þegar íbúatala kauptúna vex og þær opinberar framkvæmdir, sem vinna þarf, aukast, fullnægja ákvæði sveitarstjórnarlaganna um stjórn hreppa ekki lengur þessum kauptúnum. Oddvitastarfið á slíkum stöðum, þar sem stór kauptún eru innan hreppsins, verður umfangsmikið og mjög erfitt að fá menn til þess að gegna því, samhliða því, sem þeir þurfa að reka sína atvinnu. Og þótt svo fari, að menn fáist til starfans, þá geta þeir ekki varið til þess nægilega miklum tíma. Afleiðingin verður sú, að ýmsar þær framkvæmdir, sem kauptúnin hafa með höndum og nauðsynlegar eru, verða vanræktar. Þess vegna er það, að á hinum síðustu árum hafa hin stærri kauptún komið fram með kröfur um það, að fá kaupstaðarréttindi; og ekki er langt síðan Vestmannaeyjum og Hafnarfirði voru veitt þau, og enn skemmra síðan Neskaupstaður í Norðfirði fékk kaupstaðarréttindi. En það, að veita hverju kauptúninu á fætur öðru kaupstaðarréttindi, getur orðið dýrt bæði fyrir ríkissjóð og ekki síður fyrir hlutaðeigandi bæjarsjóð. Það var því fundinn upp sá millivegur í þessu efni, sem allir kannast við og byrjað var á með Akranes, nfl. sá, að sameina hreppstjóra- og oddvitastörfin og skipa sérstakan lögfróðan mann til að gegna þeim ásamt nokkrum fleiri störfum, svo sem innheimtu fyrir ríkissjóð og lögreglustjórastörfum. Þessir menn hafa verið nefndir lögreglustjórar. Í Ólafsfirði er nú svo komið, að farið er að bera á þeim annmörkum, sem orðið hafa til þess, að áðurgreindar ráðstafanir hafa verið gerðar fyrir nokkur kauptún. Það hafa reynzt vandkvæði á því að fá menn til þess að gegna hreppsnefndaroddvitastörfum, og auk þess kvartað um það, a. m. k. af núv. oddvita, að hann geti ekki sinnt starfinu nema í hjáverkum, en við það líður framkvæmdalíf kauptúnsins. Auk þess er svo í hinum stærri kauptúnum, að þörfin fyrir sterkara lögregluvald vex stöðugt. Sérstaklega gætir þess í Ólafsfirði á sumrin, að þörf er fyrir meira lögregluvald en hreppstjóri hefir. Um þessi atriði læt ég að öðru leyti nægja að vísa til bréfs hreppsnefndarinnar sem fylgir grg. frv. þessa.

Ég tel víst, að hv. d. sýni þessu máli þann velvilja að leyfa því að ganga til 2. umr. og n. Og þá vildi ég, að n. tæki sérstaklega til athugunar atriði, sem ekki er að vísu tekið fram í frv., og það er, hvort endilega sé nauðsynlegt, að þessi starfsmaður sé lögfræðingur. Þessi staður er allafskekktur, og gæti því orðið erfitt að fá þangað fullgildan lögfræðing. Mér finnst því geta komið til álita, hvort ekki mætti, í því tilfelli, að lögfræðingur fengist ekki, setja ákvæði um það í frv., að sameina skyldi hreppstjóra- og oddvitastörfin og sérstakur maður skipaður til að annast þau, þó hann væri ekki lögfræðingur. Mætti sennilega fela honum flest þau störf, sem lögreglustjóra yrðu falin, nema ekki myndi þykja viðeigandi, að hann færi með fógeta- eða dómsvald. Öll önnur störf, sem undir lögreglustjóra myndu falla, sé ég ekki betur en að hann gæti annazt, þó leikmaður væri.

Ég leyfi mér svo að leggja til, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og allshn.