11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1948 í B-deild Alþingistíðinda. (2523)

114. mál, lögreglustjóri í Ólafsfirði

Frsm. meiri hl., (Garðar Þorsteinsson) [óyfirl.]:

Það er auðvitað hægt að slá því fram, að hreppsfélögin geti sjálf annazt um þau störf, sem hér koma til greina. En það er nú víða svo, að þau eru ekki svo efnum búin, að þau geti kostað mann til þess, enda geta verið vandkvæði á að fá mann í hreppnum, sem fær sé um að leysa þessi störf af hendi. Það er líka óeðlilegt að fá ólöglærðum manni það vald í hendur, sem hér er gert ráð fyrir. Ég hefði haldið, að sýslumenn eins og hv. frsm. minni hl. er, mættu verða fegnir að fá góðan mann til að annast þessi störf. Það sparar þeim ferðalög og margskonar fyrirhöfn. Þessi maður ætti að hafa fógetavald, svo að ekki þyrfti að ómaka sýslumann að ástæðulitlu.