03.11.1934
Neðri deild: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1809 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)
83. mál, útvarpsrekstur ríkisins
Frsm. minni hl. (Thor Thors):
Ég vil byrja á því að þakka hæstv. forseta fyrir þann frest, sem hann veitti í þessu máli í gær. Sá frestur hefir borið tilætlaðan árangur, því að nú liggur fyrir umsögn útvarpsráðs um þetta mál. Eins og hv. þm. er kunnugt, er þetta mál flutt af meiri hl. allshn. samkv. ósk atvmrh., en frv. mun vera samið af n. þeirri, sem kölluð er skipulagsnefnd atvinnuveganna. (EmJ: Misskilningur). Svo er a. m. k. sagt í erindi til allshn., og við annað hefi ég ekki að halda mér í þessu efni. (JakM: Vill enginn kannast við frv.?). Minni hl. n. hefir ekki að órannsökuðu máli viljað eiga þátt í flutningi frv. og óskaði eftir umsögn kunnugustu manna um það. Hér liggur nú fyrir umsögn útvarpsráðsins og ýms tilmæli um brtt. frá Sambandi ísl. útvarpsnotenda.
Þær breyt., sem þetta frv. gerir á núgildandi l. um útvarp, eru í fyrsta lagi þær. er viðkoma kosningu í útvarpsráð. Í 4. gr. er gert ráð fyrir því, að breytt skuli um nafn á útvarpsráðinu og það kallað dagskrárstjórn útvarpsins. Þá er ætlazt til, að í stað þess, að nú skipa 5 menn útvarpsráð, verði 6 í dagskrárstjórn. Samkv. 3. gr. l. nr. 62 frá 1930, um útvarp, eiga 5 menn sæti í útvarpsráði, ráðh. skipar formann þess, en einn er tilnefndur af Háskóla Íslands, annar af barnakennurum landsins. hinn þriðji af prestastefnunni, og sá fjórði er kosinn af útvarpsnotendum. En fyrir þeirri kosningu eru þau skilyrði sett, að útvarpsnotendur séu félagsbundnir. En nú á að kjósa sex menn í útvarpsráðið, með þeim hætti, að þrír skulu kosnir hlutfallskosningu í Sþ., en þrír kosnir hlutfallskosningu af útvarpsnotendum, og það er ekki gert að skilyrði lengur, að þeir séu félagsbundnir. Við teljum, að það sé til bóta að breyta um tilhögun á skipun útvarpsráðsins, og það sé rétt stefna að láta kjósa þá í stað þess, að einstakar stofnanir velji mennina. Því að ef fylgt er þeirri reglu, hlýtur jafnan að rísa ágreiningur um það, hvaða stofnanir í landinu það eru, sem eiga að hafa rétt til þess að velja menn í útvarpsráð. Má t. d. strax geta þess, að það er undarlegt, að úr því að ýmsar stofnanir á annað borð fá þann rétt að velja menn í ráðið, þá skuli atvinnuvegirnir engan fulltrúa eiga þar. Til þess m. a. að forðast þann ágreining, sem út af þessu kynni að rísa, teljum við rétt að fara inn á þá braut að kjósa mennina. En brtt. minni hl. allshn. hnígur í þá átt, að í stað þess, að það var ráðgert í frv., að aðeins sex skyldu kosnir, en form. skipaður af ráðh., þá leggjum við til, að allir sjö meðlimir útvarpsráðsins séu kosnir. Þrír séu kosnir hlutfallskosningu í Sþ., en fjórir kosnir hlutfallskosningu af útvarpsnotendum. Það er beinlínis getið um það í grg. frv. þessa, að það séu útvarpsnotendur, sem beri útvarpið uppi, og það hefir verið svo, að þeir hafa að langmestu leyti risið undir rekstri þessarar stofnunar, og það eru þeir, sem eiga við útvarpið að búa. Við teljum því rétt, að þeim sé heimilað að kjósa meiri hl. útvarpsráðsins. — Hvað viðkemur afskiptum ríkisvaldsins af útvarpinu, ætti það að vera nægilegt að hafa þrjá mennina kosna af Sþ. Og ennfremur er það mikil trygging fyrir ríkisvaldið, að útvarpsstjórinn er skipaður af kirkjumálaráðherra, og ráðh. ræður einnig hina föstu starfsmenn við hina menningarlegu starfsemi útvarpsins.
Um kosningu útvarpsráðsins segir í umsögn útvarpsráðsins, með leyfi hæstv. forseta:
„Um það, hvernig velja skuli stj. útvarpsins, eru útvarpsráðsmenn ekki allir á einu máli. Æskilegast væri án efa, ef hægt væri að velja hana á þann hátt, að ekki fylgi því pólitísk barátta eða flokkadrættir, svo framarlega sem það er talið æskilegt, að útvarpið dragist ekki algerlega inn í stjórnmálabaráttuna. Sé hinsvegar ekki annað fyrir hendi en gera val útvarpsstjórnarinnar algerlega pólitískt, þá má segja, að aðferðin við val hennar eftir frv. er einföld og að því leyti hentug. Útvarpsráðið er þeirrar skoðunar, að sjö manna dagskrárstjórn myndi reynast svo svifaþung, að það yrði fundarstörfum hennar og allri starfsemi til trafala, og að æskilegt sé, að slík stjórn væri ekki skipuð fleiri mönnum en fimm. Byggir útvarpsráðið þessa skoðun á reynslunni um þessi störf.“
Ég get ekki fallizt á, að það þurfi að nokkru leyti að vera til spillis, að ráðið sé allt kosið. Það er hvort sem er víst, að með núv. skipulagi — að einn maður sé kosinn af útvarpsnotendum — kemst pólitík í þessi mál, og ástæða er til að ætla, að val ráðh. á form. útvarpsráðsins verði meira eða minna pólitískt. Að 7 manna dagskrárstjórn sé of svifaþung, get ég ekki séð. Stjórn útvarpsins, og sérstaklega hin menningarlega starfsemi þess, er svo örlagaþrungin í menningu þjóðarinnar, að ástæða er til þess, að margir færir menn fjalli þar um. Samband ísl. útvarpsnotenda segir í bréfi til allshn. um val á mönnum í útvarpsráðið, með leyfi hæstv. forseta: „Það er alkunna, að ársgjöld útvarpsnotenda bera öll gjöld af rekstri útvarpsins, enda er því óbeinlínis játað í 2. málsgr. 2. gr. í frv. til l. um útvarpsrekstur ríkisins, sem nú liggur fyrir Nd. Alþingis á þskj. 129. virðist því fullkomlega sanngjarnt, að útvarpsnotendur hafi önnur og meiri áhrif á rekstur útvarpsins heldur en þeir geta haft með því að eiga einn fulltrúa í fimm manna útvarpsráði eins og nú er. Í sjálfu sér væri það ekki nema sanngjarnt, að útvarpsnotendur réðu þar einir öllu. En þar sem stofnun útvarpsins má í öndverðu þakka atbeina ríkisins, þá virðist jafnframt sem það sé sanngjarnt og rétt, að það eigi fulltrúa í útvarpsráði, sérstaklega þar sem ríkinu er með l. lagður sá baggi á herðar að greiða hallann af rekstrinum, ef nokkur verður, sem reyndar mun nú ekki koma til. En minna geta rekendur stofnunarinnar, útvarpsnotendur, ekki gert sér að góðu en að hafa meiri hl. í útvarpsráði, svo að þeir hafi fullan ákvörðunarrétt um, hvernig fé því, er þeir einir leggja fram, er varið.“
Í sambandi við þessa breyt. á tilhögun um kosningu í útvarpsráðið leggur minni hl. allshn. til, að útvarpsráðið kjósi sér sjálft formann.
Þá er annað atriði í brtt. okkar, það er um skipun útvarpsstjóra. Um það segir í 3. gr. frv., að kirkjumálaráðh. skipi útvarpsstjóra. En hér er fellt niður ákvæði, sem er í 5. gr. núgildandi l., þess efnis, að ráðh. skuli skipa útvarpsstjóra, að fengnum till. útvarpsráðs. Ég tel þetta veigamikið atriði og sjálfsagt að hafa það áfram í l. En í grg. frv. er sagt svo, að 3. gr. sé að efni til shlj. núgildandi l. Hér er rangt skýrt frá, og vil ég vita það. Alþm. eiga að geta treyst því, að ekki sé í grg. — og einkum ekki í grg. stjfrv. — skýrt frá öðru en sannleikanum einum, og að þeir þurfi ekki að rannsaka það sérstaklega, hvort það megi taka trúanlegt, sem þar stendur.
Í 3. gr. frv. stendur, að kennslumálaráðh. skuli skipa útvarpsstjóra og ákveða laun hans. Minni hl. allshn. telur réttara, að laun útvarpsstjóra séu tiltekin í l., og leggur til, að hann skuli hafa 7500 kr. árslaun, auk dýrtíðaruppbótar. En jafnframt er sett inn það skilyrði, að útvarpsstjóri gegni ekki öðrum launuðum störfum. Þessi laun verða að teljast sæmileg, borin saman við laun annara embættismanna, sem fá laun sín samkv. launal.
Þriðja brtt. minni hl. allshn. er um valdsvið útvarpsstjóra og útvarpsráðs. Í 4. gr. núgildandi l. um útvarpsrekstur ríkisins segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Útvarpsráðið hefir yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi útvarpsins og ræður útvarpsefni, í samráði við útvarpsstjóra. Þess skal stranglega gætt, að við útvarpið ríki skoðanafrelsi og að gætt verði fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í almennum málum.“
Í 3. gr. þessa frv. er þetta orðað á annan hátt, og ekki eins greinilega og verið hefir og æskilegt er, að verði áfram. Þar stendur:
„Dagskrárstjórn tekur ákvarðanir um það, hversu dagskrá skuli hagað í höfuðefnum, og leggur fullnaðarsamþykki á dagskrá áður en hún kemur til framkvæmda.“
Við teljum rétt, að það standi áfram í l. skýrum stöfum, að það sé útvarpsráðið, sem ber ábyrgð á og stjórnar menningarlegri starfsemi útvarpsins, og ráði útvarpsefni. Brtt. okkar gengur í þá átt, að hafa ákvæði frv. jafn ótvíræð og þau eru í núgildandi l. Máli okkar til stuðnings ætla ég að lesa upp bréf útvarpsráðsins. Það hljóðar svo:
„Reykjavík, 2. nóv. 1934.
Að gefnu tilefni óskar útvarpsráðið að láta í ljós eftirfarandi álit um frv. á þskj. 129, um útvarpsrekstur ríkisins. Aðalatriði frumvarpsins eru tvö: 1) að fella burtu útvarpsráðið, sem nú hefir yfirstjórn og ábyrgð á allri menningarstarfsemi útvarpsins, en setja í staðinn dagskrárstjórn með takmarkaðra valdi og ábyrgð, en auka um leið valdsvið útvarpsstjórans, að því er virðist. — 2) að breyta til um val dagskrárstjórnarinnar frá því, sem nú er um útvarpsráð. Menningarleg starfsemi er hinn eini tilgangur útvarpsins, að heita má. Í útvarpslögunum, sem nú gilda, er skýrt ákveðið um það, í 4. gr., hvar ábyrgðin er í þessu efni, en það er hjá útvarpsráði, svo og sérstaklega ábyrgðin á því, að þess skuli „stranglega gætt, að við útvarpið ríki skoðanafrelsi og að gætt verði fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í almennum málum“, eins og segir í lögunum.
Öll þessi veigamiklu atriði eru felld burt í frumvarpinu, en í staðinn sett óákveðnari fyrirmæli um það, að dagskrárstjórn setji þær reglur, „er þurfa þykir til gæzlu þess, að við útvarpið ríki skoðanafrelsi og óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum“, o. s. frv., eins og í frumvarpinu segir. Útvarpsráðið verður að líta svo á, að hér sé mikil veila í frumvarpinu, og að hin núgildandi skýlausu fyrirmæli megi ekki fella burt, hverjum sem annars verður falin ábyrgð á að gæta fyrirmælanna. 5. gr. frv. fjallar um valdsvið dagskrárstjórnar og útvarpsstjóra innbyrðis, eða raunverulega um valdið yfir útvarpsstarfseminni. Útvarpsráðið er á einu máli um það, að í greininni komi alls ekki nógu skýrt fram, hvernig valdsviðið skiptist eða hvar ábyrgðin skuli raunverulega vera um starfsemi útvarpsins yfirleitt. Útvarpsráðið getur ekki séð neina ástæðu til að fella niður nafnið „útvarpsráð“, jafnvel þó að valdsviði þess verði breytt. Nafnið er orðið alþjóð tamt, en í staðinn fyrir þetta eina orð, sem er gott í meðförum, er í frv. ætlazt til, að komi „dagskrárstjórn Ríkisútvarpsins“. Þessi tilbreytni mun líka reynast þýðingarlaus, því að hin væntanlega dagskrárstjórn Ríkisútvarpsins mundi verða kölluð útvarpsráð af öllum, eftir sem áður.“
Og svo kemur endirinn, sem ég las upp áðan. Undir þetta ritar allt útvarpsráðið, þeir Helgi Hjörvar, Friðrik Hallgrímsson, Bjarni Benediktsson. Guðjón Guðjónsson og Pálmi Hannesson.
Næst ætla ég að lofa hv. þdm. að heyra, hvað stjórn Sambands íslenzkra útvarpsnotenda segir um þetta atriði. Í umsögn, sem sambandsstjórn hefir sent allshn., segir svo:
„Það þykir og rétt, að útvarpsráðið eitt stjórni hinni menningarlegu starfsemi útvarpsins, án íhlutunar útvarpsstjóra. Bæði er það, að það verk, sem þeim embættismanni er að öðru leyti ætlað, er svo umfangsmikið og þýðingarmikið fyrir stofnunina, að það mun reynast hverjum manni fullnóg starf, sem og hitt, að líkur gæfu verið til, að ólík sjónarmið útvarpsráðs og útvarpsstjóra kynnu að valda reipdrætti og deilum, sem væru óhentugar fyrir starfsemi stofnunarinnar. Þetta er ekki mælt út í hött, eins og mönnum er kunnugt.“
Þannig eru ummæli þeirra manna, sem ættu að vera kunnugastir þessum efnum, útvarpsráðs og sambandsstjórnar útvarpsnotenda, og eru báðir þessir aðilar hlynntir því, að núgildandi ákvæði um valdsvið útvarpsráðs haldist óbreytt. Og í samræmi við það er brtt. minni hl. allshn. fram komin. Eins og sjá má á ummælum útvarpsráðs, er 5. gr. frv. talsvert breytt frá samsvarandi gr. í núgildandi l., og þó stendur í grg. frv. um 5. gr. þetta: „Í þessari grein eru ákvæði um störf dagskrárstjórnar, og eru þau í engu frábrugðin því, sem nú er samkv. ákvæðum núgildandi 1.“ — Hér er því aftur rangt frá skýrt, og er það hart, að þm. skuli ekki mega treysta því, að í grg. stjfrv. sé farið með rétt mál. Slíkt má ekki koma fyrir.
Ég þykist nú hafa leitt nokkur rök að því, að rétt sé að halda við ákvæði núgildandi l. um valdsvið útvarpsráðs og útvarpsstjóra; því verður a. m. k. ekki neitað, að ég hafi leitt fullgild vitni í því máli, og vænti ég þess, að hv. þm. taki umsagnir þær til athugunar, sem ég hefi nú farið með.
Síðasta brtt. minni hl. allshn. er sú, að þessar breyt. á l. komi ekki til framkvæmda fyrr en starfstími núv. útvarpsráðs er útrunninn, en það er 1. júlí 1936. Útvarpsráðið var kosið síðastl. sumar, og mun nú hafa undirbúið vetrarstarfsemina og það hefir að sjálfsögðu kostað meðlimi þess meira og minna erfiði að setja sig inn í starf sitt. Af þessum ástæðum finnst okkur það í fyllsta máta óréttlátt að svipta mennina starfa sínum að nauðsynjalausu, einmitt þegar þeir eru farnir að verða kunnugir verksviðinu. Það er mjög varhugavert, ef Alþ. tekur upp þá reglu, að svipta menn, sem löglega hafa verið kosnir í eitthvert embætti, stöðum sínum að þarflausu. Menn, sem taka að sér opinber störf og verja miklum tíma til þess að gera sig hæfa til að gegna þeim, eiga heimtingu á þó nokkru öryggi í störfum sínum. Og ég fæ ekki betur séð en útvarpsrekstri ríkisins sé sæmilega borgið, þó að frestað verði að taka upp þetta nýja skipulag nokkurn tíma enn. Það þarf að vísu talsverðan tíma til undirbúnings kosningar í útvarpsráð samkv. þessu frv., en þó ætti kosning að geta verið um garð gengin áður en starfsemi næsta vetrar hefst. En ég legg áherzlu á það, að menn í opinberum stöðum fái að njóta öryggis í starfi sínu og þurfi ekki að bera kvíðboga fyrir að missa embætti sín í hvert sinn sem hið háa Alþ. kemur saman.— Ég þarf að svo stöddu ekki að fara fleiri orðum um brtt. okkar, en vona, að hv. þm. viðurkenni, að ég mæli hér máli sanngirninnar, og taki tillit til þess við atkvgr.