11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (2555)
108. mál, iðnlánasjóður
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Eins og hv. fyrirspyrjanda er kunnugt, þá fer þetta frv. fram á, að stofnaður verði iðnlánasjóður, og því er allt öðruvísi háttað heldur en þegar fé er varið til venjulegra útgjalda eða styrktar, og með tilliti til þess er það fram tekið í 1. gr. frv., að ef fé er ekki fyrir hendi í fjárl., þá sé ríkisstj. heimilt að fá það að láni í þessu skyni, og mundi stj. gera það að þessu sinni. En ástæðan til þess, að fært þykir að hafa þessa lánsheimild í frv. sjálfu, er sú, að gert er ráð fyrir, að fé verði lánað úr sjóðnum, en ekki veittir styrkir. Þess vegna er þessu öðruvísi háttað en þegar um fé til venjulegra styrkja er að ræða.
Í sambandi við það, sem hv. 1. þm. Reykv. spurði um, hvort það væri aðeins sjávarútvegurinn, sem ekki fengi fé úr ríkissjóði, nema jafnframt væri bent á tekjuöflunarleiðir, skal ég bara benda honum á, að í frv., sem hér er á dagskrá í dag, er till. um að heimila stj. að taka allt að 1 millj. kr. lán, ef þörf krefur, til styrktar sjávarútveginum í alveg sérstöku augnamiði. Og ástæðan til þess, að fært þótti að leysa úr þessu með lánsheimild, er sú, að hér er líka gert ráð fyrir, að þetta fé verði að einhverju leyti lánað til stofnkostnaðar, t. d. við nýjar verkunaraðferðir á fiskinum. Þess vegna hefir stj. fundizt, að hægt væri að færa rök fyrir því, að úr þessari fjárþörf mætti bæta með lánsheimild, en ekki beinlínis séð ástæðu til að krefjast sérstakrar tekjuöflunar á móti þeim útgjöldum, sem þar er gert ráð fyrir.