03.11.1934
Neðri deild: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1814 í B-deild Alþingistíðinda. (2564)

83. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Frsm. meiri hl. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Eins og tekið er fram í grg. þeirri, er fylgir frv., var það flutt af meiri hl. allshn., eftir beiðni hæstv. atvmrh. Þá var jafnframt því lýst yfir, að einstakir flm. áskildu sér rétt til þess að bera fram brtt. við það. Því er það, að við tveir af flm. frv. berum fram brtt. við það á þskj. 303. Ég vil leiðrétta þann misskilning hjá hv. þm. Snæf., að frv. þetta sé samið af skipulagsn. atvinnuveganna. Svo er ekki, en hv. þm. hefir haft nokkra ástæðu til að halda það vegna orðalags bréfs þess, sem fylgdi þessu frv. og öðru, en aðeins annað þeirra var samið af skipulagsn. Þetta frv. er samið að tilhlutun stj., en ekki af skipulagsn. Það leiðréttist hér með.

Við 1. umr. frv. gat ég um þær breyt., sem hér eru gerðar á núgildandi l., og hv. þm. Snæf. hefir nú líka rakið þau atriði. Ég mun því ekki vera margorður um það nú, en víkja heldur að einstökum atriðum í brtt. hv. minni hl. allshn. Í nál. hans er það talið heppilegra, að menntmn. hefði flutt þetta frv. Meiri hl. allshn. athugaði þetta atriði áður en hann flutti frv., og komst að þeirri niðurstöðu, að þar sem allt viðvíkjandi útvarpsrekstri ríkisins hefði hingað til heyrt undir annaðhvort allshn. eða samgmn., væri réttast, að allshn., eða hluti hennar, flytti þetta frv. En það skiptir að sjálfsögðu engu máli. hvaða n. flytur frv. Hv. minni hl. allshn. vill breyta 3. gr. frv. í það horf, að kennslumálaráðh. skipi útvarpsstjóra, að fengnum till. útvarpsráðs, en það skilyrði er ekki í frv., og meiri hl. allshn. sér ekki ástæðu til þess að breyta hvað þetta snertir. — Þá er nafnið á dagskrárnefndinni. Meiri hl. allshn. vildi ekki kalla hana útvarpsráð eða dagskrárráð, vegna þess að væntanlega verður frv. til l. um eftirlit með opinberum rekstri samþ. á þinginu, og kemur þar til greina nokkurskonar útvarpsráð, eða þriggja manna n. kosin af Alþ., sem ætti að hafa eftirlit með rekstri útvarpsins og annara skyldra stofnana. Og rétt þótti að kenna nefndina við það verk, sem henni er aðallega ætlað að hafa með höndum, en það er undirbúningur dagskrár og eftirlit með útvarpsefni. Þar er því um dagskrárn. að ræða, sem tæplega gæti nefnzt útvarpsráð. Og þótt verksvið þessarar dagskrárn. yrði að flestu leyti það sama og núv. útvarpsráða, er þó ekki ástæða til þess að leita sérstaklega álits hennar um val útvarpsstjóra, enda eðlilegast, að hann sé skipaður af ráðh. þeim, sem útvarpið heyrir undir, svo sem venja er til um embættismenn ríkisins. Í brtt. okkar hv. þm. Barð. á þskj. 305 leggjum við til, að laun útvarpsstjóra séu ákveðin í l. 7500 kr., auk dýrtíðaruppbótar. En okkur fannst engin ástæða til þess að banna útvarpsstjóra að taka að sér launuð aukastörf. Ákjósanlegast væri, að ríkið gæti launað alla embættismenn sína svo, að þeir gætu vel lifað af því án þess að hafa önnur störf með höndum jafnhliða. En ekkert réttlæti er í því að taka útvarpsstjórann einan út úr og banna honum að hafa á hendi launuð aukastörf, meðan svo er ekki um aðra. Hv. minni hl. allshn. er frv. sammála um það, að breyta skuli til um val útvarpsráðsins og fjölga í því. En hann vill, að útvarpsnotendur kjósi 4 menn af 9, og kennslumálarh. skipi engan. Meiri hl. n. finnst eðlilegt, að oddamaðurinn í þessari n. eins og svo mörgum öðrum sé skipaður af viðkomandi ráðh., og sér ekki ástæðu til, að útvarpshlustendur hafi endilega meiri hl. ráðsins. Það er ekki rétt, sem segir í áliti Sambandsstjórnar útvarpsnotenda, er hv. þm. Snæf. las upp, að útvarpsnotendur beri einir allan kostnað af útvarpsstarfseminni. Útvarpið hefir tekjur annarsstaðar að, t. d. frá auglýsendum. Ég veit ekki, hvað miklu það nemur, en það er þó alltaf nokkuð. Þetta eru því engin rök fyrir því, að útvarpsnotendur kjósi beint meiri hl. dagskrárstj. Í frv. er útvarpsnotendum gefinn meiri réttur til íhlutunar en þeir hafa áður haft; hingað til hafa þeir aðeins fengið að kjósa einn mann í útvarpsráð, en samkv. frv. fá þeir að kjósa 3 menn af 7 í dagskrárstjórn.

Hv. þm. Snæf. gerði mikið úr því, að valdsvið dagskrárn. yrði stórum minna en útvarpsráðsins, en vald útvarpsstjóra aukið. Þetta felst þó ekki í frv. Ennfremur talaði hann langt mál um það, að í frv. væri ekki eins vel séð fyrir hlutleysi útvarpsins eins og í núgildandi l. Þetta er misskilningur, sem bezt skýrist með því að lesa upp samsvarandi gr. úr núgildandi l. og þessu frv. Byrjun 4. gr. 1. nr. 62 frá 1930 hljóðar svo:

„Útvarpsráðið hefir yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi útvarpsins og ræður útvarpsefni í samráði við útvarpsstjóra. Þess skal stranglega gætt, að við útvarpið ríki skoðanafrelsi og að gætt verði fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í almennum málum“.

En í frv., sem hér liggur fyrir, er svo mælt í 5. gr.:

„Dagskrárstjórnin tekur ákvarðanir um það, hversu dagskrá skuli hagað í höfuðefnum, og leggur fullnaðarsamþ. á dagskrá áður en hún kemur til framkvæmda. Hún setur reglur um fréttaflutning útvarpsins og aðrar þær reglur, er þurfa þykir til gæzlu þess, að við útvarpið ríki skoðanafrelsi og óhlutdrægni gagnvart öllum flokkum og stefnum í almennum málum, atvinnustofnunum, félögum og einstökum mönnum“.

Ákvæði 5. gr. frv. um hlutleysisskyldu útvarpsins eru því mun fyllri en í 4. gr. núgildandi l. Það er því engin ástæða til þess að fetta fingur út í þessa gr.

Hv. minni hl. n. leggur mikla áherzlu á það, að óréttlátt sé að láta umboð núv. útvarpsráðs falla niður strax þegar frv. þetta er orðið að l., en fyrir því er ráð gert í bráðabirgðaákvæði í frv. Ef reglur eru settar um breyt skipulag, finnst mér sjálfsagt, að þær komi strax til framkvæmda. Tel ég óeðlilegt, að lengi sitji útvarpsstjórn, sem er í andstöðu við meiri hl. Alþ. Ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar, að skipun dagskrárstjórnar sé byggð á réttlátari grundvelli en skipun útvarpsráðsins var. Mér finnst næsta einkennilegt að hafa útvarpsstjórn, sem skipuð er af einstökum stofnunum og stéttum, svo sem háskóla, prestum, kennurum o. s. frv. Ef einstakar stéttir eru látnar skipa stjórnina, finnst mér illa séð fyrir hagsmunum fjölmennustu stéttanna, verkamanna og bænda, þar sem þeir eiga þar enga fulltrúa samkv. núgildandi lögum. Úr þessu er bætt með frv., þar sem allir útvarpsnotendur hafa sama íhlutunarrétt um kosningu í dagskrárstjórn. Tel ég því eðlilegt og sjálfsagt, að það komi til framkvæmda svo fljótt sem verða má eftir að lög þessi öðlast gildi. Ég sé ekkert óréttlæti í því, þó kjörtímabil útvarpsráðs sé stytt, ef löggjafinn hefir fundið ástæðu til að setja nýja skipan á um val í útvarpsráð. F. h. meiri hl. allshn. legg ég á móti, að till. minni hl. verði samþ.

Loks skal ég geta þess, að n. hefir leyft sér að bera fram brtt. á þskj. 248 um að undanþiggja blinda menn afnotagjaldi. Nákvæmlega samskonar till. hefir hv. 9. landsk. borið fram á þskj. 244, og er vitanlega sama, hvor till. er samþ. En þá grein vil ég gera fyrir þessari brtt., að útvarpsstjórn skrifaði n. og fór fram á og færði rök að, að einfaldara og heppilegra væri, að upphæð sú, sem Blindravinafél. hefir verið veitt úr ríkissjóði til að greiða fyrir útvarpsnotum blindra manna, gangi beint til útvarpsins. Þótti n. sjálfsagt að undanþiggja blinda menn greiðslu, og virðist þetta því skilyrðislaust til bóta. — Sé ég svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, en vil aðeins lýsa yfir því, að allshn. leyfir sér að leggja til, að frv. verði samþ.