26.11.1934
Sameinað þing: 13. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í B-deild Alþingistíðinda. (260)
1. mál, fjárlög 1935
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Ég hefi heldur beðið álitshnekki við það hér á þingi að eiga orðastað við hv. þm. Ísaf., svo ég ætla að leiða hann hjá mér í þetta sinn.
Hæstv. forsrh. hefir reiðzt mér af því að ég sagði frá því, sem allir þm. vita, að er satt, að hann er aldrei kallaður „höfuð“ stj. Frumræðu minni svaraði hann með því að kalla hana skvaldur, síðari ræðu minni með meinlausri grínræðu. Þrátt fyrir alla kostina, sem hæstv. ráðh. er alltaf að gorta af hér í þinginu, held ég hann skorti fullkominn skilning á skyldu forsrh. við slíkar umr. sem hér hafa farið fram.
Hv. form. sósíalista lézt ætla að gera eldhús að mér, en allt var það svo góðlátlegt, að ég þarf litlu að svara. Þó vil ég ekki láta ómótmælt ummælum hans um dr. Helga Tómasson, þann ágætismann, og um þá árás, er hann taldi mig hafa hafið á mótflokksmann minn, Lárus Jónsson lækni. Ummæli hans um dr. Helga eru óforsvaranleg. Hæstv. atvmrh. er mér sammála um það, að frávikning Lárusar Jónssonar hafi ekki verið ofsókn gegn honum. Nei, það sem ég gerði er ég skipti um lækni á Nýja-Kleppi, var gustukaverk á bágstöddum aumingjum, enda hygg ég að ekkert ráðherraverk hafi mælzt betur fyrir en það.
Af einstökum minniháttar missögnum hæstv. atvmrh. ætla ég að leiðrétta örfáar. Hæstv. ráðh. skopaðist að því, að Íslendingar þættust sitja að beztu mörkuðunum, en væru þó komnir á kné, en Norðmenn, sem hraktir hefðu verið á verri markaði, stæðu sig sæmilega. Þessu gekk hæstv. ráðh. illa að koma saman. Ég skal hjálpa honum. Norðmenn búa við lág vaxtakjör, ódýrari útgerðarvörur, lága skatta, ekkert útflutningsgjald og meira en helmingi lægra kaupgjald. Þetta vænti ég að nægi hæstv. ráðh. Hæstv. ráðh. talaði langt mál um Kveldúlf og Alliance og lézt undrast, að Kveldúlfur hefði ekki sótt um ríkisstyrk til brautryðjandastarfsemi félagsins. Mér er nú sem ég sjái framan í rauðliða með styrkbeiðni Kveldúlfs fyrir framan sig. Það held ég væri spaugileg sjón. Hæstv. ráðh. taldi, að Kveldúlfur hefði ekki sótt um styrk af því hann hefði ætlað að hagnast sjálfur og einn af reynslunni. Þetta er rangt. Auðvitað ætlaði Kveldúlfur að hagnast sjálfur, en ekki einn. Ef tilraunir okkar hefðu heppnazt, var þarna öllum almenningi opnuð leið til mikillar farsældar. Vona ég, að byrjunarspor okkar leiði til þess, að áfram verði haldið, og í því sé ég meiri von en nokkru öðru til farsældar ísl. sjávarútvegi. Hitt, að Kveldúlfur hefir ekki sótt um styrk í þessu skyni, stafar af því, að enda þótt fjárplógsmenn ríkissjóðs róti vel í fjárhirzlur Kveldúlfs, rata Kveldúlfsmenn ekki á ríkisjötuna.
Í sambandi við skuldaskilasjóðinn sagði hæstv. atvmrh. eina setningu, sem snerti mig ákaflega illa. Hann talaði um, að hugsanlegt væri að leysa að einhverju leyti þetta nauðsynjamál, „annaðhvort á þessu þingi eða næsta“, bætti ráðh. við. Ég vek nú athygli hæstv. ráðh. á því, að mikill hópur sáraðþrengdra manna mænir á gerðir Alþingis í þessu máli. Ekki aðgerðir næsta þings, því þá eru þeir fallnir í baráttunni við örðugleikana, heldur aðgerðir þessa þings. Ég skora á hæstv. ráðh. að standa ekki gegn því, að þeim verði liðsinnt nú tafarlaust. Það er of seint að sækja lækni, þegar sjúklingurinn er dauður. Fáist þjóðnýtingarmenn ekki til að sinna nauðstöddum atvinnurekendum, leggjast þeir undir ámæli um það, að óljósar vonir um betra brautargengi þjóðnýtingar á rústum fallandi atvinnulífs hafi áhrif á aðstöðu þeirra til þessara mála.
Ég verð að játa, að mig undrar, hve máttlaus sú vörn var, sem hæstv. atvmrh. veitti rökstuddri árás minni og óyggjandi sönnunum á því, að frv. haus um fiskimálan. hlyti að leiða til þess, að S. Í. F. legðist niður, en upp úr rústum þess sprytti fljótlega einkasala á saltfiski. Ég sannaði, að engar líkur væru til, að S. Í. F. mundi breyta starfsreglum sínum samkv. fyrirmælum 4. gr. frv., blátt áfram af því að nýafstaðinn fulltrúafundur hefir fellt með nær öllum atkv. að lúta þeim reglum. Ég sannaði, að hæstv. ráðh. hefði leitt útflytjendur í nýja stórvægilega freistni, með því að bjóða sérhverjum þeim, er brytist út úr S. Í. F., sérréttindi og vernd. Ég sannaði, að jafnvel þótt margir framleiðendur vildu samt sem áður fela stjórnendum S. Í. F. umboð sitt, væri það hrein blekking, ef fimmmenningarnir tækju við því trausti og þeim umboðum vegna þess, að þá væri það fiskimálanefnd, en ekki þeir, sem ráðin hefðu. Með öllu þessu sannaði ég, að S. Í. F. var dautt — steindautt. — Ég leiddi ákaflega sterkar líkur að því, að þá tæki einkasalan við, og ég leiddi líka ákaflega sterkar líkur að því, að af því stafaði þjóðinni geigvænlegur voði. Hinsvegar talaði hann svo um S. Í. F., að ekki verður hjá því komizt að heyra, að nokkurs kala kennir frá honum til þess, a. m. k. ekki fullrar samúðar. Og flokksbróðir hans, hv. 6. landsk., og nú síðast einn ónefndur þm., réðust beinlínis með svívirðingum á S. Í. F. Og sjálfur hæstv. fjmrh. kallaði S. Í. F. klíku, sem Kveldúlfur réði yfir. Til hvers er þetta gert? Og af hverju er S. Í. S., sem ekki ræður yfir nema 5% af fiskiframleiðslunni, ætlað að eiga fulltrúa í fiskimálanefnd, en S. Í. F., sem selt hefir nær allan fiskinn, á engan fulltrúa að eiga. Er það ekki af því, að búið er að kveða upp dauðadóminn yfir S. Í. F.? Og eru ekki árásirnar, sem stjórnarliðið nú beinir að S. Í. F., einmitt eitrið, sem á að bana því? Um þetta talaði hæstv. ráðh. ekki. En þess vil ég biðja, að hæstv. ráðh. minnist, að minn trúskapur við S. Í. F. skiptir hér engu máli. Ráðh. hefir með fiskimálan. opnað allir gáttir, rekið marga út úr S. Í. F., m. a. og fyrst og fremst sjálfa fimmmenningana, sem því fyrirtæki stjórna.
Ég skora á hæstv. ráðh. að láta birta ræðu sína í blaði sínu. Ég skal þá sjá um, að mín ræða nái að nýju til almennings í Morgunblaðinu. Þá geta menn dæmt. Annað er mér ekki eftir skilið. Ég hefi aðvarað, með öllum þeim sterku rökum, sem fyrir hendi eru. Verði því ekki sinnt, legg ég ábyrgðina á andstæðinga mína. Ég játa, að ég hefði betur unnað einhverjum öðrum úr hópi þeirra að merjast undir þunga þeirrar ábyrgðar en einmitt hæstv. atvmrh. En hann hefir sjálfur valið sér það hlutskipti — því miður.
Þessum útvarpsumr. er nú að verða lokið. Við sjálfstæðismenn fögnum því færi, sem okkur hefir gefizt á að svipta tjöldunum til hliðar og opna alþjóð manna sýn yfir stjórnmálasviðið. Við treystum því, að öllum almenningi sé nú betur ljóst, hvað þar er að gerast. Við treystum því, að kjósendur landsins leggist á sveif með Sjálfstfl., sem tekið hefir forystuna í öllum mestu þrifa- og nauðsynjamálum þjóðarinnar á sviði fjármála og atvinnulífsins. Við biðjum þessum málum, ekki sízt skuldaskilasjóði og fiskveiðasjóði, skjóls og stuðnings í samúð þjóðarinnar. Við leitum einnig liðs þjóðarinnar í baráttu okkar gegn óhófseyðslu, skattpyntingum, einokunarfargi, hlutdrægni, ofsóknum og lýðræðisbrotum stj. og liðssveita hennar. Og sú liðsbón okkar sjálfstæðismanna nær út fyrir vébönd okkar flokks og langt inn í herbúðir andstæðinganna, til allra sanngjarnra og vitiborinna manna, sem skilja, að á slíkum tímum voða og hættu krefst þjóðarþörfin þess, að sérhver ríkisstj. gæti fullkomins velsæmis og freisti þess að efla til samstarfs milli beztu krafta þjóðarinnar til varnar gegn voðanum.
En einkum og sérstaklega heitum við á kjósendur til einbeittrar andstöðu gegn árásinni á S. Í. F. og einkasölu saltfiskjar, sem í kjölfarið siglir.
Ég vil svo að lokum beina máli mínu til hv. sjálfst.manna um land allt. Ég játa, að við höfum orðið að gera einstök afvik frá stefnu okkar. En það er hvorki af því, að við séum að svíkja hana eða missa trúna á henni. Við höfum orðið að gera það af alveg sömu ástæðum og bannmenn samþ. innflutning vína árið 1923, nefnilega vegna óviðráðanlegra utanaðkomandi áhrifa. Andstæðingar okkar fagna þessu og dásama því fjálglegar trú sína á höft og innilokaða kaupgetu, eins og hæstv. fjmrh. mest talar um, og einokanir.
En sé sú stefna góð og blessunarrík hér, þá er hún það líka annarsstaðar, og gildi hennar skilja Íslendingar bezt með því að gera sér ljóst, að nái hún nógu sterkum tökum erlendis, þá leiðir það til þess, að við getum alls ekki selt framleiðsluvörur okkar, kjötið og fiskinn, leiðir til þess, að við erum dæmdir til fátæktar, sultar, eymdar og dauða. Trú andstæðinganna er trúin á þessa stefnu.
Trú okkar sjálfstæðismanna er trúin á þá einu leið, sem liggur til lífs og farsældar fyrir þjóð okkar. Þess vegna berjumst við ótrauðir fyrir stefnu okkar. Og þess vegna sigrum við að lokum, og áður en langt um líður. — Góða nótt.