11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)
124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi
Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég hefi skrifað undir nál. með fyrirvara. Sá fyrirvari er fólginn í þeirri brtt., sem ég flyt. Ég skal geta þess, að þegar þetta mál var rætt í samgmn., var það víst einróma álit fundarmanna, að þessi fyrirtæki greiddu ekki arð meðan ríkið stæði í ábyrgð fyrir hlutafé þeirra. Því er brtt. mín fram komin. — Ég sé ekki annað en nauðsynlegt sé að hjálpa h/f Skallagrími til að koma skipsbyggingu sinni af stað. Enda mun fél. vera búið að semja um byggingu skips og hafa gengið frá því sem gefnu, að það fengi ábyrgð ríkisins fyrir andvirði skipsins, og jafnvel von um það, að ríkið yrði hluthafi í fyrirtækinu. Ég teldi því verr farið, ef mál þetta strandaði.
Ég vil taka það fram, að ég tel litla hættu á því, að ríkið verði fyrir skakkaföllum vegna þessara ábyrgða. Reynslan hefir sýnt, að Borgarnesferðir bera sig vel, og er ekki ástæða til að ætla, að svo verði ekki einnig framvegis, ekki sízt ef nýtt skip kemur í staðinn fyrir Suðurland. Enda mun þetta nýja skip eiga að vera miklu sparneytnara í rekstri, svo að allt bendir á, að þetta verði arðsamt fyrirtæki. Það er öllum ljóst, að þessar ferðir, sem tengja saman Norður- og Suðurland, mega ekki leggjast niður. Og það er stórt atriði í þessu máli, að nýja skipinu er ætlað að geta flutt bíla sjóleiðina til Borgarness, og mundi það skapa greiðari samgöngur milli Rvíkur og Norðurlands en nú er, og efast ég ekki um, að af þessu verði mikil not. Ég fylgi því óhikað þessari till.
Hvað viðvíkur brtt. hv. þm. N.-Ísf., þá er ég algerlega sammála honum um þörfina á flóabátaferðum í Norður-Ísafjarðarsýslu. Hv. þm. hefir fært skýr rök að því, að þessi sýsla getur ekki vænzt eftir landsamgöngum í náinni framtíð, og aðeins sé að ræða um sjóleiðina. Eini ágreiningurinn, sem er okkar á milli í þeim máli, er sá, hvort eigi að ráðast í það, sem hann fer fram á, nú á þessu ári. Ástæðan til þess, að ég tel ekki fært að leggja í þetta nú, er fjárhagsástand ríkissjóðs; ég hygg, að erfitt yrði að leggja fram fé í þessu skyni. Og ég tel erfitt mjög að bæta við þær ábyrgðir sem ríkið er þegar búið að taka á sig. Í stað þess gæti komið til mála, að næsta ár fengi sýslun. til umráða vitaskipið Hermóð, sem er mjög sæmilegur farkostur og fullnægir öllum þeim kröfum sem hægt er að gera til slíkra ferða. Um það hefir verið talað, að annað skip mætti nota til vitaflutninganna, og væri þetta þá ólíkt þarflegra en að láta Hermóð liggja einhversstaðar aðgerðalausan. Sú eina röksemd, sem færð hefir verið gegn því að taka Hermóð til þessa starfa, er sú, að hann væri of djúpskreiður. Ég hefi lagt nokkuð mikið upp úr þessu, en nú hefi ég sannfærzt um það, að bátur sá, sem gert er ráð fyrir að byggja, verður eins djúpskreiður. Eftir upplýsingum, sem ég hefi fengið, verður nýi báturinn 9 fet djúpskreiður, en það er sama og Hermóður. Hann getur því alveg eins gegnt þessum ferðum og nýi báturinn, þegar til kemur.
Ég hefi þá í stuttu máli skýrt þann ágreining, sem var í n. Ég get því ekki samþ. brtt. hv. þm. N.-Ísf., því ég held, að við verðum að láta þær bíða fyrst um sinn og vita, hvort ekki koma betri tímar, svo hægt verði að veita þann styrk síðar. Hitt atriðið, hve stór báturinn þarf að vera, er óþarft að deila um. Ég er hv. þm. alveg sammála um, að bátur fyrir N.-Ísafjarðarsýslu megi ekki minni vera en hann sagði. Það getur aldrei orðið sæmileg aðbúð fyrir fólkið í minni bát, hvað sem aðrir segja. Með því að tengja þessa brtt. við frv. taldi ég, að því gæti verið stefnt í óvænt efni; þar sem nú er, eins og allir vita, mjög liðið á þing, gæti allur dráttur valdið því, að frv. dagaði uppi. Og þar sem ég er því fylgjandi, að Skallagrímur fái þennan styrk, vil ég ekki láta eyðileggja málið með því að setja inn í frv. fleyga sem geta orðið því að falli. Ég er því á móti brtt. hv. þm. N.-Ísf.