13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1982 í B-deild Alþingistíðinda. (2618)

124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég vildi segja nokkur orð út af því, sem hv. þm. N.-Ísf. vitnaði í, að gerzt hefði á fundi í sameinuðum samgmn. í morgun, viðvíkjandi því máli, sem hér er rætt um.

Ég held, að það sé á nokkrum misskilningi byggt hjá þessum hv. þm., að þeir, sem mættir voru á fundi þessum í samgmn., hafi yfirleitt fallizt á það, að meiri styrkur væri greiddur til þess að halda þessum samgöngum uppi en það, sem þegar hefir verið samþ. í samgmn., nema þá ef svo færi, að sýslun. Norður-Ísafjarðarsýslu, sem mun hafa á hendi stjórn þessara samgangna, vildi ekki taka að sér að halda uppi ferðunum með þeim styrk, sem talað er um að veita í þessu skyni, að þá kæmi til mála, heldur en að láta allar ferðir þarna falla niður — sem n. en sammála um, að ekki megi eiga sér stað —, að Skipaútgerð ríkisins í umboði ríkisstj. ef til vill tæki að sér að halda uppi þessum ferðum, og ef rekstrarhalli yrði, þá mundi hann á þann hátt vitanlega lenda á ríkissjóði. Ég held, að það hafi verið þetta, sem vakti fyrir þeim nm., sem um málið fjölluðu á þessum umrædda fundi.

Um það, hvort þessi styrkur sé nægilegur eða ekki, er náttúrlega á þessu stigi málsins ómögulegt að segja fyrir nokkurn okkar með nokkurri vissu. Hv. þm. N.-Ísf. og þeir menn, sem með þessi mál fara í Norður-Ísafjarðarsýslu, halda að Hermóður verði það mikið dýrari í rekstri heldur en sá hugsanlegi bátur, sem smíða á, að það muni muna nokkuð miklu. Ég er nú jafnvel á þeirri skoðun, að þessi ótti sé ástæðulaus. Sú áætlun, sem liggur hér fyrir n. frá forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, sýnir það, eins og líka áður hefir verið bent á, að ef Hermóður verður lánaður leigulaust til þessara ferða, þá verður rekstur hans sennilega ódýrari en hins fyrirhugaða báts, og þó er kostnaðurinn við að halda þessum ferðum uppi með Hermóði ef til vill reiknaður 1 þús. kr. of hátt. Hv. þm. N.-Ísf. hefir jafnvel fallizt á það, að reikna mætti kolin lægra en gert hefir verið. Mismunurinn á rekstraráætl. beggja skipanna nemur nú tæpum 7 þús kr., og ef kolaliðurinn færist niður, þá nemur mismunurinn nálægt 8 þús. kr. Ennfremur minntist ég á það við 2. umr. málsins, að á áætlun mótorbátsins væri olían ef til vill ekki reiknuð nógu hátt.

A. m. k. upplýsti forstjóri Skipaútgerðar ríkisins það fyrir samgmn., að þann lið mætti taka með fyrirvara, og hafði í því fyrir sér sérfróðan mann í þessum efnum, sem hefir mjög góða þekkingu á þessu sviði. Útkoman verður því sú, að hægt er að lækka rekstrarkostnað Hermóðs, en rekstrarkostnaður vélbátsins hækkar ef til vill, svo að mismunurinn verður ef til vill ennþá meiri en áður er um getið. Mér virðist líka mega taka það með í reikninginn, að Hermóður er auk þess stærra skip heldur en hinn fyrirhugaði bátur og hefir betri skilyrði til þess að innvinna sér fargjöld heldur en mótorbátur sennilega mundi hafa, og það mundi sennilega oft koma fyrir, að burðarmagn Hermóðs yrði notað til fulls. Það kom fram í umr. um þetta mál, að fólkið vildi ekki ferðast með þessum bátum, ef þeir væru svo ófullkomnir, að þeir gætu ekki veitt farþegunum sæmilega líðan. Þetta skil ég mjög vel, og er því alveg sammála hv. þm. N.-Ísf. um það, að skip, sem heldur uppi svona ferðum, verður að vera svo vel útbúið, að því fólki, sem ferðast með því, geti liðið sæmilega og að það vilji ferðast með því. Ég held, að Hermóður hafi góð skilyrði til þess að taka takmarkaðan fjölda farþega, en að þeim takmarkaða fjölda geti liðið mjög vel.

Þetta vildi ég minna á í sambandi við það, sem komið hefir fram í málinu, og ég held, að ekki sé ástæða til þess, eins og málið horfir nú við, fyrir hv. þm. N.-Ísf. að leggja svo mjög mikið kapp á að láta sínar till. koma til atkv., og þegar það líka er vitanlegt, að ekki er nema um eina lausn á þessu máli að ræða, og hún er sú, að Hermóður verði notaður til þessara ferða næsta ár.